Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 4
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS SUZUKI IGNIS Nýskr. 08.05 - Beinskiptur - Ekinn 8þús. km. - Allt að 100% lán. Verð á ður: 1. 230.0 00- Tilboð : 1.070. 000.- Miryam Shomrat, sendi- herra Ísraels, segir íslenska stjórnmálamenn sem hún ræddi við í gær og fyrradag einblína um of á „atvikið í Beit Hanoun“ í síðustu viku, þar sem nítján óbreyttir borgarar, þar á meðal konur og börn, létu lífið í árás Ísraelshers á Gaza. Árásinni var annars beint gegn skæruliðum Palestínumanna sem stunda það að varpa sprengjum yfir landa- mærin. Það leyndi sér annars ekki í gær að Ísraelsher hefði orðið lítið ágengt í að stöðva slíkar árásir frá Gaza, er að minnsta kosti sjö sprengiflaugum var varpað yfir landamærin. Ein sprengjan lenti í miðbæ Sderot, rétt hjá heimili ísraelska varnar- málaráðherrans, og banaði einni konu og særði ungan karlmann alvarlega. Að sögn AP-fréttastof- unnar var þetta fyrsta dauðsfall- ið sem slíkar sprengiflaugaárás- ir Palestínumanna frá Gaza hafa valdið í Ísrael frá því í septem- ber í fyrra. Sendiherrann segir að ísra- elsk stjórnvöld harmi mjög það sem gerðist í Beit Hanoun og ítrekar að „að sjálfsögðu beinir Ísraelsher vopnum sínum ekki vísvitandi að óbreyttum borgur- um“, öfugt við palestínsku skæruliðana sem beini árásum sínum nær eingöngu að ísraelsk- um borgurum. Shomrat segir erindi sitt til Íslands nú aðallega hafa verið að koma þessum sjónarmiðum á framfæri og biðja Íslendinga, sem vinveitta lýðræðisþjóð, að íhuga þá aðstöðu sem Ísrael væri í og hvernig ísraelskum stjórn- völdum bæri skylda til að gera það sem í þeirra valdi stæði til að reyna að tryggja öryggi íbúa landsins. Sendiherrann skorar enn fremur á Íslendinga og aðrar þjóðir alþjóðasamfélagsins til að láta ekki af þrýstingnum á pal- estínsk stjórnvöld fyrr en þar er til valda komin stjórn sem upp- fyllir þessi þrjú meginskilyrði: viðurkenni Ísraelsríki, viður- kenni þá samninga sem áður hafa verið gerðir milli Ísraels og Pal- estínumanna, þar á meðal Ósló- arsamkomulagið svonefnda, og loks í þriðja lagi sverji af sér beitingu ofbeldis til að ná fram markmiðum sínum. Shomrat biður jafnframt allar þjóðir heims, sem styðja tilveru- rétt Ísraels, að taka höndum saman um að hindra að Írönum takist að koma sér upp kjarn- orkuvopnum. Biður Íslendinga að íhuga stöðu Ísraela Sendiherra Ísraels segir íslenska stjórnmálamenn „einblína um of á atvikið í Beit Hanoun“. Hún biður Íslendinga að setja sig í spor Ísraela og fordæma þá ekki fyrir þær aðgerðir sem þeir grípa til í því skyni að tryggja öryggi sitt. Hryðjuverk, glæpir og loftslagsbreytingar eru helstu áhersluatriðin í þeim lagafrumvörp- um sem Tony Blair og ríkisstjórn hans ætla að leggja fram síðasta veturinn sem hann situr á stóli forsætisráðherra Bretlands. Að venju las Elísabet Breta- drottning upp stefnuræðu forsetans við setningu þingsins í gær. Eins og jafnan var ræðan lítið annað en upptalning á þeim þrjátíu lagafrum- vörpum, sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á þessu þingi, en ekki er farið náið út í útfærslu þeirra. Meðal annars er stefnt að því að þingið samþykki lög um að Bretar verði búnir að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 60 prósent árið 2050. Einnig kynnti hún lög um harðari refsingu fyrir ofbeldisglæpi, strangari reglur um hælisveitingar og einföldun dóms- kerfisins. Áhersla stjórnarinnar á öryggis- mál, löggæslu og varnir gegn hryðjuverkum, kemur í beinu framhaldi af yfirlýsingu yfirmanns bresku leyniþjónustunnar, Dame Eliza Manningham-Buller, sem sagði í síðustu viku að leyniþjónustan vissi um nærri 1.600 manns sem væru þessa dagana að skipulegga um þrjátíu hryðjuverkaárásir í Bret- landi. Skuggahverfi hf. hefur enn ekki fengið endanlegt samþykki byggingarfulltrúa fyrir nýjum háhýsaklasa ofan við Skúlagötu. Reisa á sex blokkir ofan á sameiginlegum bílkjallara fyrir 169 íbúðir. Hæsta blokkin verður nítján hæða, eða jafnhá hæstu blokkinni á Höfðatorgs- reitnum sem íbúar þar í grennd- inni hafa harðlega mótmælt og er nú til meðferðar hjá skipulags- ráði. Nýju blokkirnar við Skúlagötu voru samþykktar í skipulagsráði í apríl síðastliðnum en fá ekki samþykki byggingarfulltrúa fyrr en formsatriðin eru öll komin í lag. Framkvæmdir eru þegar hafnar. - Stefna í nítján hæðir Norska ál- og orkufyrir- tækið Norsk Hydro hyggst opna Norður-Atlantshafsskrifstofu í Reykjavík á næstunni. Fyrirtækið hefur áform um frekari starfsemi hér á landi í tengslum við opnun skrifstofunnar. Torstein Dale Sjøtveit, varaforstjóri Hydro og forstjóri Hydro Aluminium Metal, og nokkrir af æðstu yfirmönnum álbræðslu- og súrálsmála fyrir- tækisins funda með Jóni Sigurðs- syni iðnaðarráðherra í dag. Iðnaðarráðherra þekkir ekki til framtíðaráforma Norsk Hydro á Íslandi umfram opnun skrifstof- unnar. Thomas Knutzen upplýs- ingafulltrúi vildi ekki upplýsa framtíðarsýn fyrirtækisins hér á landi fyrr en í síðar í dag. Opna skrifstofu í Reykjavík Tillaga um deili- skipulag Lýsislóðarinnar í vesturbæ Reykjavíkur kemur fljótlega til auglýsingar. Verði tillagan samþykkt í skipulagsráði og borgarráði verður hún auglýst. Margrét Þormar, hverfisarkitekt hjá borginni, segir að deiliskipu- lagið verði samþykkt í fyrsta lagi í lok janúar. Fyrirhugað er hjúkrunarheim- ili með pláss fyrir 90 vistmenn og fjölbýlishús með allt að 100 íbúðum. Deiliskipulagið á lokaspretti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.