Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 10
Það er mjög mikilvægt
að stéttarfélög starfsmanna þeirra
ríkisfyrirtækja sem ætlunin er að
breyta í opinber hlutafélög kort-
leggi vandlega hvað breytingin
þýðir fyrir félagsmenn þeirra.
Starfsmenn geta einfaldlega misst
réttindi sín ef hver og einn hefur
ekki þær upplýsingar sem hann
þarf til að taka ákvarðanir um
framtíð sína. Þetta kemur fram í
máli Stefáns Aðalsteinssonar,
framkvæmdastjóra Bandalags
háskólamanna, sem rannsakað
hefur réttindamál starfsmanna
þeirra stofnana sem ætlunin er að
breyta í opinber hlutafélög.
Eins og fram kemur í opnu
bréfi sem trúnaðarmenn starfs-
manna Ríkisútvarpsins skrifuðu
útvarpsstjóra á þriðjudag óttast
starfsmenn Ríkisútvarpsins rétt-
indamissi ef frumvarp um breyt-
ingu RÚV í opinbert hlutafélag
verður að lögum óbreytt. Þrátt
fyrir umleitanir starfsmanna hafa
þeir ekki fengið nein svör um
hvort áunnin réttindi þeirra hald-
ist óskert eftir breytinguna. Þeir
búa því við mikla óvissu og finnst
að sér vegið að réttindamál þeirra
skuli ekki vera skýrð.
„Starfsmenn ríkisfyrirtækja
sem ætlunin er að „ohf-væða“
verða að gæta þess að ýmis rétt-
indi breytast við þessi umskipti og
ef þeir kjósa að starfa áfram undir
nýju rekstrarformi geta þeir ein-
faldlega misst þessi réttindi,“
segir Stefán. Hann segir einnig að
það geti til dæmis verið verulegt
hagsmunamál fyrir starfsmenn að
halda áfram í sama lífeyrisum-
hverfi og áður.
Í bréfi trúnaðarmanna til
útvarpsstjóra kemur fram að sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
á fundi með lögfræðingi Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins þá sé
það háð samkomulagi starfsmanns
og Ríkisútvarpsins ohf. hvort hann
geti verið áfram í Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins og haldið
áfram að ávinna sér réttindi í þeim
sjóði; fengið áfram 11,5 prósenta
framlag RÚV en ekki sex til sjö
prósenta framlag sem tíðkast á
almennum markaði. Það sama
gildir um viðbótarframlag.
Stéttarfélög starfsmanna Rík-
isútvarpsins hafa skrifað mennta-
málanefnd, sem hefur málið til
umfjöllunar, til að fá svör um
hvernig réttindi þeirra verða
tryggð án þess að hafa fengið skýr
svör. Menntamálanefnd fundar
um réttindamál starfsmanna í dag
að sögn formanns nefndarinnar.
Sigurðar Kára Kristjánssonar.
Starfsmenn
hjá RÚV geta
misst réttindi
Stéttarfélög starfsmanna ríkisfyrirtækja, sem ætl-
unin er að breyta í opinber hlutafélög, verða að
kortleggja hvað breytingin þýðir fyrir félagsmenn.
Hætta er á réttindamissi starfsmanna sem ekki hafa
fengið nauðsynlegar upplýsingar.
… ef þeir kjósa að starfa
áfram undir nýju rekstr-
arformi geta þeir einfaldlega
misst þessi réttindi.“
Sex japönsk hvalveiði-
skip héldu úr höfn í gær í árlegan
hvalveiðileiðangur á Suðurskauts-
mið. Þar ætla Japanar að veiða 860
hvali í vetur, og segja þeir veið-
arnar gerðar í vísindaskyni.
Japanar hófu vísindaveiðar
sínar fyrir tuttugu árum, eða strax
eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið
bannaði hvalveiðar í hagnaðar-
skyni árið 1986. Japanar hafa nú
þegar veitt 35 hvali í ár út af Jap-
ansströndum, en stefna á að veiða
í allt 1.240 hvali á þessu ári.
Japanir veiða 860 hvali
DMK Reglulegur sparnaður er skynsamleg leið til að ná
markmiðum, uppfylla framtíðardrauma eða mæta óvæntum
útgjöldum. Að einsetja sér reglulegan sparnað, hvort sem
upphæðin er stór eða smá, er fyrirhyggja sem ráðlegt er að
tileinka sér. DMK verðlaunar slíka fyrirhyggju með því að veita:
• 5% mótframlag á áunna vexti um hver áramót.
• styrki af ýmsum tilefnum sem hægt er að sækja um:
Brúðkaupsstyrki hver að fjárhæð 100.000 kr.
Fæðingarstyrki hver að fjárhæð 50.000 kr.
Námslokastyrki hver að fjárhæð 100.000 kr.
Stórafmælisstyrki hver að fjárhæð 25.000 kr.
Ferðastyrki hver að fjárhæð 25.000 kr.
• sérkjör á tryggingum.
Helstu þættir
DMK þjónustunnar eru:
• DMK Debetkort
• DMK Kreditheimild
• DMK Yfirdráttarheimild
• DMK Tiltektarlán
• DMK Léttlán
• DMK 90% íbúðalán
• DMK Ráðgjöf
• DMK Tilboð
A
RG
U
S
/
06
-0
55
2
Sæktu um DMK á spron.is
DMK Reglulegur sparnaður
– verðlaunaður með sérstöku mótframlagi!
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
Fram til áramóta fánýir viðskiptavinir í DMK gjafabréf fyrirtvo í Borgarleikhúsinu.