Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 12

Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 12
 „Þetta er í rauninni bara gamla kennsluaðferðin, íslenski stíllinn, í nýjum búningi,“ segir Anton Karl Ingason, annar af höfundum námsvefjar sem Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar klukk- an tvö í dag – á Degi íslenskrar tungu – við athöfn í Reykjavíkur- akademíunni. Anton, sem hefur töluverða reynslu af hugbúnaðar- gerð, og félagi hans Skúli Bern- hard Jóhannsson, nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, hafa unnið að námsvefnum undanfarið ár. Ef vefurinn reynist vel, og kemst í almenna notkun í skóla- kerfinu, getur hann minnkað álag á kennara því hann er algerlega vél- rænn; spilar upptökur af íslensk- um stílum, fer yfir þá og leiðréttir án þess að mannshöndin komi þar nærri. Auk þess geta nemendur notað vefinn á gagnvirkan hátt til að læra vélritun. Nemandi sem notar vefinn getur hlustað á, og skrifað upp, einn af þeim stílum sem eru vistað- ir inni á honum. Eftir að nemand- inn hefur lokið við stílinn fer vef- urinn yfir hann, leiðréttir og bendir nemandanum á hvaða málfræði- reglur hann braut þegar hann skrifaði stílinn. Stílæfingar í for- ritinu eru tvenns konar: æfingar þar sem nemendur skrifa upp eftir mæltu máli og æfingar þar sem þeir lesa texta af skjánum og skrifa hann niður eftir sjónminni. Allar villur sem nemandinn gerir verða glósaðar og flokkaðar inni á vefn- um sem þýðir að fyrir próf mun nemandinn geta rifjað upp hvaða villur hann hefur gert í stílum. „Líklega munu nemendur vinna stílana á tölvur heima hjá sér, því tölvukostur í skólum er ekki nægj- anlegur til að allir nemendur hafi aðgang að þeim þar. Kennarar munu geta séð að tiltekinn nem- andi hafi gert ákveðið margar n- villur eða y-villur og getur þá hagað þeirri kennslu sem hann veitir viðkomandi nemanda eftir því. Kennarinn sparar sér því ófrjóa handavinnu við yfirferð en fær í staðinn upp í hendurnar verð- mæta tölfræði sem hjálpar honum að stýra áherslum í kennslu,“ segir Anton Karl. Hann segir óþarfa að kennarar lesi enn þá upp og fari yfir stíla þegar tækni sé fyrir hendi til að láta tölvur gera það. Frá og með deginum í dag getur fólk notað námsvefinn www. rettritun.is sér að kostnaðarlausu og segir Anton Karl að ýmsir skól- ar muni á næstunni reynsluprófa hann. Tölvur kenna stafsetningu Námsvefur með gagnvirkum æfingum í stafsetn- ingu og vélritun verður opnaður í dag. Aðgangur að vefnum verður öllum opinn og gjaldfrjáls. Þrjátíu gefa kost á sér í sæti á listum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykja- víkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi. Frestur til þátttöku rann út um síðustu helgi. VG efnir til sameiginlegs forvals við val á framboðslista í kjördæmunum þremur og hefur sú leið ekki verið farin fyrr. Fer forvalið fram 2. desember og hafa félagar í VG kosningarétt. Kjörskrá verður lokað 25. nóvem- ber. VG á einn þingmann í hvoru Reykjavíkurkjör- dæmanna en hlaut ekki kosningu í Suðvesturkjör- dæmi í síðustu kosningum. Báðir þingmenn flokksins í Reykjavík, Kolbrún Halldórsdóttir og Ögmundur Jónasson, gefa kost á sér áfram, sem og Álfheiður Ingadóttir varaþing- maður. Þá eru Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi og Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins, meðal þátttakenda í forvalinu. Þrjátíu sækjast eftir sæti hjá VG EKKERT GERVIGRAS! NÝTT OG BETRA GRAS... WWW.GRAS.IS Þotueldsneyti hefur lækkað í verði um 25 prósent síðan í september að því er fram kemur á heimasíðu FÍB. Samstíga hækkun flugfar- gjalda flugfélaganna Icelandair og Iceland Express hefur verið í umræðunni að undanförnu og hafa forsvarsmenn flugfélaganna haldið því fram að hátt eldsneyt- isverð skýri að hluta hækkun flugfargjalda. Á heimasíðu FÍB er leitt að því líkum að lækkun eldsneytisverðs hljóti að skila sér í lækkun flug- fargjalda. Fjórðungslækkun á eldsneyti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.