Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 22
„Við látum ekki kúga
okkur núna, ekki fremur en við
höfum látið kúga okkur áður fyrr,“
sagði Abdullah Gul, utanríkisráð-
herra Tyrklands, í gær í Nikosíu,
höfuðborg tyrkneska hlutans á
Kýpur.
Evrópusambandið hefur und-
anfarið beitt Tyrki nokkrum þrýst-
ingi um að opna bæði flugvelli og
hafnir í Tyrklandi fyrir skipum og
flugvélum frá gríska hlutanum á
Kýpur. Evrópusambandið hefur
hótað Tyrkjum því, að verði þeir
ekki við þessu fyrir árslok, þá geti
svo farið að ekkert verði úr frek-
ari aðildarviðræðum Tyrkja við
Evrópusambandið, að minnsta
kosti ekki alveg á næstunni.
Í gær héldu Kýpur-Tyrkir upp á
það að 23 ár voru liðin frá því þeir
stofnuðu sérstakt ríki á norðan-
verðri eyjunni. Tyrkland er hins
vegar eina ríkið í heiminum sem
viðurkennir ríki Kýpur-Tyrkja.
Suðurhluti eyjunnar, sem er
undir stjórn Kýpur-Grikkja, fékk
aðild að Evrópusambandinu árið
2004 og krefst þess að fá aðgang
að höfnum og flugvöllum í Tyrk-
landi alveg eins og önnur aðildar-
ríki Evrópusambandsins.
Tyrkir neita hins vegar alfarið
að veita þeim þann aðgang nema
Evrópusambandið létti jafnframt
öllum hömlum á samgöngum við
tyrkneska hlutann á Kýpur.
„Við bíðum eftir að hömlunum
verði aflétt,“ sagði Gul í gær. Hann
krefst þess einnig að Sameinuðu
þjóðirnar sjái áfram um að miðla
málum í deilunni milli Kýpur-
Grikkja og Kýpur-Tyrkja.
„Að búast við því að Tyrkland
láti undan með því að flytja deil-
una frá Sameinuðu þjóðunum til
Evrópusambandsins er blind-
gata,“ sagði Gul.
Segjast ekki
láta kúga sig
Utanríkisráðherra Tyrklands segir að Tyrkir ætli
ekki að láta kúga sig nú fremur en áður til þess að
gefa eftir í Kýpurdeilunni.