Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 24
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Afsökun sem virkar
á allt
Hjúkk!
Nemendur í Korpuskóla afhentu
jólasveininum þeirra framlag til
verkefnisins „Jól í skókassa“ á frí-
stundaheimilinu Ævintýralandi
fyrir skömmu. Pakkarnir eru hluti
af áðurnefndu verkefni sem
KFUM og KFUK standa fyrir
árlega og verður þeim dreift til
þurfandi barna í aðdraganda
jólanna.
Lokaskiladagur var síðasta
laugardag og er talið að komið
hafi verið með um 5.000 jólagjafir
í skókössum. Í ár, líkt og í fyrra,
eru það börn í Úkraínu sem munu
fá íslensku jólaskókassanna undir
jólatréð.
Alvarleg
stórvirki
Stubbur, Láki, selurinn
Snorri og Palli sem var
einn í heiminum. Áratugum
saman hafa þessir kappar
og reyndar fjölmargar
aðrar persónur skemmt
æsku landsins. Bókaútgáfan
Björk gefur út ævintýrin
um þetta heiðursfólk.
Erlendur Daníelsson er
eigandi útgáfunnar og rek-
ur hana frá heimili sínu á
Selfossi.
Faðir Erlendar, Daníel Ágústín-
usson, og skólabróðir hans, Stef-
án Júlíusson, stofnuðu bókaútgáf-
una Björk á Akranesi árið 1941.
„Upphaflega átti að gefa út bók
sem Stefán hafði skrifað, Þrjár
tólf ára telpur, en svo hlóð þetta
bara utan á sig,“ segir Erlendur.
„Það hefur ýmislegt verið reynt í
gegnum tíðina, en nú einskorðum
við okkur við sögurnar um Palla
og selinn Snorra og svo skemmti-
lega smábarnabókaflokkinn. Ég
reyni að bæta tveimur bókum við
þann flokk á hverju ári og í ár
komu út bækur númer 53 og 54,
Gleði- gjafinn og Starf
fyrir kanínu-
strákinn.
Bækur selj-
ast alltaf
upp á endan-
um og þá
þarf að end-
urprenta, en
að jafnaði
eru um 40
bækur í
flokknum
fáanlegar.
Margir
titlar selj-
ast í tölu-
verðu
upplagi á
hverju ári,
enda eru bækurnar tiltölulega
ódýrar. Nú er salan mest komin
inn í Bónus en skemmtilegu smá-
barnabækurnar fást í átján Bón-
usbúðum. Upphaflegir lesendur
eru nú orðnir afar og ömmur og
kaupa bækurnar fyrir barnabörn-
in, miðla því sem þau ólust upp
við áfram til nýrrar kynslóðar.“
Erlendur er ekki alveg með
sölutölurnar á hreinu en segir
marga titla hafa verið endur-
prentaða í tíu skipti eða meira og
í 10 til 15 þúsund eintökum í
hverri prentun. „Stubbur er á
toppnum og bókin um hann hefur
selst mest, gæti ég trúað. Stubbur
kom fyrst út á íslensku árið 1947,
en tíunda prentun kom út í fyrra.
Svo koma líklega Láki, Stúfur og
Svarta kisa. Það má alveg gera
ráð fyrir að mest seldu bækurnar
hafi selst í vel á 200 þúsund ein-
tökum.“
Margar nýrri bókanna eru
gefnar út í samvinnu við banda-
ríska Golden Books fyrirtækið
sem er hluti af Random House
samsteypunni, en Erlendur segir
fyrstu bækurnar í smábarna-
flokknum víða að. „Vilbergur
Júlíusson, sá sem þýddi
margar bækurnar, var
víðförull og kom með
bækur víða að. Ég
held meira að
segja að flipabókin
Benni og Bára
komi alla leið frá
Ástralíu.“
Bækurnar eiga
sér margar
skemmtilegar
sögur, til dæmis
Selurinn Snorri
eftir Norðmanninn
Frithjof Sælen, sem
gerði líka hinar frá-
bæru teikningar. Snorri
kom upphaflega út árið
1941 þegar Noregur var
hersetinn af Þjóðverj-
um. Mánuði eftir
útkomu bókarinnar
var hún bönnuð af Þjóðverjum.
Þeim fannst augljóst að Snorri
ætti að tákna hina herteknu þjóð
en að þeir sjálfir væru háhyrn-
ingarnir Glefsi og Voði.
Stubbur er á toppnum
Snjóar og snjóar fyrir norðan