Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 33
Metverð fékkst fyrir kíló af fiski á
mörkuðum landsins í síðustu viku.
1.332 tonn af fiski voru í boði og
var meðalverðið 176,57 krónur á
kíló sem er 19,83 krónum meira en
vikuna á undan. Meðalverðið fyrir
fisk hefur aldrei verið hærra en
nú.
Verðið hefur sveiflast nokkuð á
fiskmörkuðum síðustu vikurnar en
met var slegið á markaðnum fyrir
nokkru. Til samanburðar voru
1.000 tonnum meira af fiski í boði á
mörkuðunum fyrir hálfum mán-
uði. Meðalverð fyrir kíló af fiski þá
lækkaði hins vegar um fimm pró-
sent á milli vikna en var engu að
síður í hærri kantinum. Líkt og í
fyrri vikum var mest selt af ýsu á
fiskmörkuðum í síðustu viku. Með-
alverðið á slægðri ýsu var 158,34
krónur á kíló, sem er rúmum 3,3
krónum meira en í vikunni á
undan.
Fiskifréttir vekja athygli á því
að skarkoli og hlýri voru í þriðja og
fjórða sæti yfir sölu- hæstu
fisktegundir í boði
í síðustu viku en
slíkt gerist ekki
Metverð á
fiskmarkaði
Windows Mobile heitir ný lausn
fyrir viðskiptavini Vodafone sem
gerir þeim mögulegt að fá Wind-
ows-umhverfið í GSM síma. Með
Windows Mobile er hægt með ein-
földum hætti að sækja tölvupóst,
dagbók, tengiliða- og verkefna-
lista, auk þess að nota MSN í sím-
tækinu.
„Sífellt fleiri farsímar búa
orðið yfir Windows-umhverfi, til
dæmis Qtek-farsímar, sem gerir
fólki mögulegt að nota Office-hug-
búnað á borð við Word, Excel eða
Powerpoint. Notendur geta því
flutt vinnuumhverfið sitt yfir í
farsímann. Windows Mobile-far-
símar eru einnig hefðbundnir
GSM-símar með öllum þeim eigin-
leikum sem nútímafarsímar þurfa
að hafa í dag og gott betur,“ segir
Gísli Þorsteinsson upplýsingafull-
trúi Vodafone.
Að sögn Gísla eru Windows
Mobile-farsímarnir einstök sam-
skiptatæki. „Með slíkum tækjum
er hægt að hafa samband við sam-
starfsfólk, vini og ættingja á þann
hátt sem hentar, hvort sem það er
um tölvupóst, SMS, MSN eða
MMS.“
Með Windows
í gemsanum
Síminn hefur stækkað IP-net (int-
ernet protocol net) sitt verulega
og býður nú enn öruggari og hrað-
ari gagnaflutninga.
Í tilkynningu frá Símanum
segir að eftir stækkunina
sé netið mun öflugra
og geti borið meiri
umferð en áður.
Slíkt auki rekstr-
aröryggi fyrir-
tækja til muna.
Þá segir enn- frem-
ur að vegna þeirra gífurlegu
framfara sem átt hafi sér stað í
fjarskiptum byggi fyrirtæki nú í
auknum mæli afkomu sína á því
að geta sótt og sent gögn sín hratt
og örugglega. Þess vegna þarf
netið að vera í stöðugri uppbygg-
ingu og vænta má enn frekari
stækkunar á IP-neti Símans á
næstunni.
Algengt er að fyrirtæki endur-
nýi ekki símstöðvar sem úreldast
heldur færi tal yfir á
IP-netið. Það getur
verið hagkvæmt því
ekki þarf að ráða
starfsmenn til þess
að sjá um fjarskipt-
in heldur sjá sér-
fræðingar Símans
um að reka kerfið
og aðlaga það að
starfsemi hvers fyrirtækis. Fyrir-
tækin geta í staðinn einbeitt sér að
sinni kjarnastarfsemi, að því er
segir í tilkynningu Símans.
IP-netið endurnýjað
Sænska ferðaskrifstofukeðjan
Ticket, sem er að fjórðungshluta í
eigu Fons, hefur samið um kaup á
75 prósentum hlutafjár í MZ Tra-
vel, sænskri ferðaskrifstofukeðju
sem sérhæfir sig í viðskiptaferð-
um. Ábyrgjast seljendur að aðrir
hluthafar MZ selji einnig bréf sín.
Stjórnendur Ticket munu einn-
ig vera að skoða kaup á fleiri fyr-
irtækjum á sviði ferðaþjónustu.
MZ Travel hefur vaxið gríðar-
lega hratt á undanförnum árum í
sölu á ferðalögum fyrir viðskipta-
lífið en sala slíkra ferða er arð-
bærari en annarra ferðalaga.
Greiðir Ticket 580 milljónir króna
fyrir félagið en kaupverðið er að
hluta til tengt rekstrarárangri MZ
í ár og getur farið hæst í 750 millj-
ónir króna. Velta MZ var um átta
milljarðar króna í fyrra og skilaði
félagið um fjörutíu milljóna króna
hagnaði.
Gert er ráð fyrir að sameigin-
leg velta fyrirtækjanna nemi 45-
55 milljörðum króna á þessu ári og
hagnaður verði um eitt prósent af
veltu eða tæpur hálfur milljarður
króna.
Kaupin styrkja þau markmið
stjórnenda Ticket að hlutfall
rekstrarhagnaðar fyrir afskriftir
(EBITDA) verði um sjö prósent af
veltu innan þriggja ára.
Ticket styrkist í viðskiptaferð-
um og skoðar fleiri yfirtökur