Fréttablaðið - 16.11.2006, Qupperneq 48
Í versluninni Gull í grjóti á
Skólavörðustíg 4 er gott úrval
af skófatnaði.
„Við sérhæfum okkur fyrst og
fremst í skóm á alla fjölskylduna,
en einnig í fallegu skarti og tösk-
um,“ segir Sigrún Halldórsdóttur,
einn verslunareigenda Gulls í
grjóti.
„Hérna fást til að mynda mjög
vandaðir Neri-skór á konur og
karlmannsskór, -veski og -belti frá
Lorenzi, virtu vörumerki frá Míl-
anó á Ítalíu,“ heldur Sigrún áfram.
„Einnig skal getið skófatnaðar frá
hinu vinsæla vörumerki Diego
Bellini. Í raun gæti ég haldið upp-
talningunni endalaust áfram.“
Rúmt ár er síðan Gull í grjóti
var opnuð og segir Sigrún viðtök-
urnar hafa farið fram úr björtustu
vonum. „Ég hef ekki slegið slöku
við síðan hér var opnað,“ útskýrir
hún og bætir við að sérþekking sín
á skófatnaði eigi vafalaust þátt í
aðsókninni, en hún vann um árabil
í Skóverslun Steinars Waage.
Að sögn Sigrúnar er margt á
döfinni, en sem dæmi má nefna að
hún hyggst brátt bjóða upp á ný
vörumerki frá Danmörku. „Ég er
dugleg við að endurnýja framboð-
ið í versluninni,“ útskýrir hún.
„Fyrir þær sakir er alltaf eitthvað
nýtt og fallegt í hillunum. Það er
bara um að gera og kynna sér
úrvalið.“
Ný skó-vörumerki
brátt á boðstólum
Það hljómar kannski hálf ótrúlega
en vaselín er sú „snyrtivara“ sem
oftast er nefnd þegar fyrirsætur
og aðrar flottar skvísur, eru
spurðar út í það hver sé uppáhalds
snyrtivara þeirra. Vaselín, eða
petroleum jelly, er til margra
hluta nytsamlegt en fyrst og
fremst er það einangrandi eigin-
leiki þess sem gagnast okkur við
vaselínið.
Þegar það er borið á þurr svæði
líkamans, t.d. varirnar, þá ein-
angrar það náttúrulegan raka og
varnar því að hann „sleppi út“.
Þess vegna er það mjög heppilegt
þegar um mikinn þurrk er að
ræða. Petroleum jelly er einnig
mikið notað sem hráefni í aðrar
snyrtivörur, nánast annað hvert
krem sem við notum inniheldur
eitthvað af petroleum jelly. Fyrsti
maskarinn sem var búinn til inni-
hélt vaselín og kolaryk og nafn
hans, Maybelline, var dregið af
kvenmannsnafninu Mabel og svo
Vaseline. Til að lengja líftíma ilm-
vatns má líka bera svolítið vaselín
á úlnliðina áður en ilmvatninu er
úðað á, þá endist það töluvert leng-
ur.
Á heimilinu kemur vaselín líka
oft að miklu gagni, t.d. má smyrja
því ofan í kertastjaka til að varna
því að vaxið festist og svo dugar
það vel til að fjarlægja varalita-
bletti úr fötum (en þá er það borið
á blettinn áður en hann fer í þvott).
Uppáhalds
snyrtivaran
Vaselín er til margra hluta
nytsamlegt.
fyrir vinnandi konur
L a u g a v e g i 6 6 • S í m a p a n t a n i r : 5 5 2 2 4 6 0
Jólafötin komin!
otta krakka
1 mán til 9 ára
Skólavörðustíg 18
RÝMINGARSALA
Ný
sending
af flottum
úlpum
Vertu þú sjálf
- vertu Bella donna
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum.
Spar Þín Verslun Kópavogi, Fjarðarkaup Hafnarfirði og Lipurtá.
NÝTT
Fáðu fæturnar mjúkar
og fínar á aðeins
2 vikum með nýja