Fréttablaðið - 16.11.2006, Qupperneq 80
! Ath. kl. 20.00Jóhann Helgason heldur tónleika
með sveit úrvalshljóðfæraleikara í
Salnum og flytur þar öll sín helstu
lög.
- pbb
Þjóð í hlekkjum hugarfarsins
Aðalfundur kjördæmisfélag
Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi
Aðalfundur kjördæmafélags Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjör-
dæmi (Kraganum) verður haldinn laugardaginn 18. nóvember
kl. 11:00-13:00 í húsnæði flokksins að Aðalstræti 9, Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verður kosning stjórnar, venjubundin
aðalfundarstörf og önnur mál.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins og Sigurlín
Margrét Sigurðardóttir varaþingmaður flokksins í kjördæminu flytja
ávörp.
Mælst er til þess að allt áhugafólk um framboð Frjálslyndra
í Suðvesturkjördæmi fjölmenni.
Tvö íslensk málverk voru slegin í
fyrradag á uppboði Bruun Rasmuss-
en í Landskrona. Bæði verkin voru
kynnt á vef fyrirtækisins danska
sem þau væru eftir nafnlausa lista-
menn en íslenska. Annað verkið er
eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur frá
1988 (66x1.000) og fór á 5.500 dkr.,
eða 66.292 ísl. kr. Hitt verkið er eftir
Guðbjörgu Láru frá 1989 (74x80) og
seldist á 1.650 dkr. – 19.887 ísl. kr.
Mestu tíðindi af uppboðum í Evr-
ópu á síðustu dögum er sala á þrykki
eftir Edward Munch í Stokkhólmi.
Þar seldist á mánudag tréþrykkið
Tvær manneskjur – hin einmana
fyrir hátt verð, svo hátt að uppboðs-
haldarinn taldi verðið heimsmet:
88,5 milljónir íslenskra króna. Var
því víða slegið upp að þetta væri
hæsta verð sem fengist hefði fyrir
þrykk. En Blomqvist Kunsthandel
mátti éta allt ofan í sig. Víst var
þetta hæsta verð sem fengist hafði
fyrir Munch, en verk eftir Picasso
sem selt var í Galleri Kronfeld í
Sviss 1990, Minotauromachie, fór þá
á rúmar 120 milljónir.
Síðustu uppboð hér á landi á
árinu verða 3. desember á vegum
Gallerís Foldar og á vegum Skaft-
fells á Seyðisfirði snemma í desem-
ber. Það verður eftirtektarvert en
þar verða slegin 42 verk eftir 36
listamenn. Þeir eru Anna Líndal,
Aðalheiður Eysteinsdóttir, Bernt
Koberling, Birgir Andrésson, Bjarni
Þór Sigurbjörnsson, Björn Roth,
Carl Boutard, Daði Guðbjörnsson,
Davíð Örn Halldórsson, Dieter Roth,
Elín Helena, Erling Klingenberg,
Garðar Eymundsson, Georg Guðni,
Guðjón Ketilsson, Halla Dögg Önnu-
dóttir, Halldór Ásgeirsson, Hall-
grímur Helgason, Haraldur Jóns-
son, Hildigunnur Birgisdóttir.
Húbert Nói, Hulda Hákon, Inga
Jónsdóttir, Jón Laxdal, Jón Óskar,
Kristján Guðmundsson, Kristján
Steingrímur, Kristofer Taylor, Mar-
grét M. Norðdahl, Ómar Stefánsson,
Bjarni Þórarinsson og Goddur, Pétur
Kristjánsson, Pétur Már Gunnars-
son, Sigurður Guðmundsson, Sirra
Sigrún Sigurðardóttir, Þórarinn
Hugleikur Dagssons og Þrándur
Þórarinsson. Listamennirnir hafa
allir gefið verk sín í þeim tilgangi að
þau verði boðin upp og mun ágóðinn
nýtast í frekari uppbyggingu Skaft-
fells. Verkin eru nú til sýnis í Skaft-
felli á Seyðisfirði en dagsetning
uppboðsins er ekki ákveðin.
Af uppboðum
Í kvöld verða tónleikar hjá Sin-
fóníunni sem helgaðir eru verk-
um Mozarts sem hann samdi í
þjónustu erkibiskupsins í Salz-
burg. Verður Hamrahlíðarkórinn
í stóru hlutverki á tónleikunum.
Á efnisskránni er verkið Exultate
jubilate, eitt frægasta æskuverk
Mozarts, auk tveggja verka sem
Mozart samdi við Maríutextann
Regina Coeli. Hafa ber í huga að
Mozart var 15 ára þegar hann
samdi fyrra verkið en 16 ára
þegar hann samdi það seinna.
„Hvað tónlistina varðar kemur
fátt á óvart í þessari hrífandi tón-
smíð nema það að tæplega 17 ára
drengur skuli geta samið af svo
mikilli yfirburða kunnáttu, og að
því er virðist nær fyrirhafnar-
laust,“ segir Árni Heimir Ingólfs-
son tónlistarfræðingur um efnis-
skrána.
Hljómsveitarstjóri á tónleik-
unum er Robert King og kanad-
íska söngkonan Gillian Keith
syngur einsöng. Þorgerður Ing-
ólfsdóttir og Hamrahlíðarkórarn-
ir hafa fyrir löngu sungið sig inn
í hug og hjörtu þjóðarinnar og
samstarf þeirra við Sinfóníu-
hljómsveitina er langt og gæfu-
ríkt. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 19.30 og er fátt miða eftir á
þennan viðburð.
Salzburgarárin hans Mozarts
Stjórn Íslensku óperunn-
ar varð á síðasta ári fyrir
nokkurri gagnrýni vegna
þess að hún sinnti ekki
frumsköpun í óperusmíði.
Þá hafði Óperan stofnað
Óperustúdíó til að þróa ný
verk.
Nú svarar hún kallinu betur: í lok
vikunnar verður frumsýnt nýtt
íslenskt óperuverk í samstarfi við
leikfyrirtæki Messíönu Tómasdótt-
ur, leikmynda- og búningahöfund.
Óperan heitir Skuggaleikur,
tónlistin eftir Karólínu Eiríksdótt-
ur og textinn eftir Sjón. Hún bygg-
ist á sögunni Skugganum eftir H.
C. Andersen sem er dæmisaga:
skáld felur skugga sínum að finna
skáldgyðju sína. Honum til skelf-
ingar hverfur skugginn. Löngu
seinna vitjar skugginn skáldsins
aftur og er þá orðinn að manni án
skugga og það sem verra er án sið-
ferðiskenndar. Skugginn nær
valdi yfir skáldinu og þeir skipta
um hlutverk, skugginn verður
maðurinn og skáldið verður skugg-
inn. Þegar blekkingarnar loks
ganga fram af skáldinu vill hann
leiða sannleikann í ljós, en það er
of seint og hann geldur fyrir með
lífi sínu.
Þessi dæmisaga er eitt af fáum
ævintýrum sem H. C. Andersen
skrifaði fyrir fullorðna. Sagan er
margræð, vekur upp siðferðilegar
spurningar og á ekki síður erindi í
nútímanum en þegar hún var
skrifuð. Óperan er bönnuð börn-
um yngri en 12 ára.
Karólína lýsir aðkomu sinni að
texta Sjóns og sögunni svo: „Skáld-
ið er í rauninni eini maðurinn í
verkinu, hinir karakterarnir eru
eiginlega ekki af þessum heimi og
frekar táknmyndir fyrir ýmsa eig-
inleika. Skáldið er breyskur
maður, sem gerir sér leik að því að
stríða skugganum og gera lítið úr
honum, en það kemur honum í koll
síðar. Hann er líka að leita að feg-
urðinni og sannleikanum, en er
jafnframt hégómlegur og þráir
frægð og frama. Skáldgyðjan er
tákn fegurðarinnar og sannleik-
ans sem skáldið er að leita að, en
hann kemst aldrei til hennar,
brestur kjark þegar á reynir og
sendir skuggann sinn í staðinn.
Skugginn er skuggi skáldsins, eins
konar tákn fyrir skuggahliðar
hans, en Skugginn nær yfirhönd-
inni og tortímir skáldinu og skáld-
gyðjunni með hjálp prinsessunn-
ar, en hún er slóttug og hefur
komist áfram í heiminum með
svikum eins og Skugginn. Hún er
því eins konar skuggapersóna líka.
Þessar ólíku persónur eru túlkað-
ar með ólíkri tónlist, hver þeirra
hefur sín sérkenni.“
Einsöngvarar í sýningunni eru
Eyjólfur Eyjólfsson tenór, sem
syngur hlutverk Skáldsins, Sverr-
ir Guðjónsson kontratenór, sem
syngur hlutverk Skuggans. Ingi-
björg Guðjónsdóttir sópran syng-
ur hlutverk Skáldgyðjunnar, og
Ásgerður Júníusdóttir mezzósópr-
an syngur hlutverk Prinsessunn-
ar. Hljómsveitin samanstendur af
sex hljóðfæraleikurum og hljóm-
sveitarstjóri er Guðni Franzson.
Leikstjóri sýningarinnar er Mess-
íana Tómasdóttir, en hún hannar
einnig búninga, sviðsmynd og
brúður sem spila stórt hlutverk í
sýningunni. Danshöfundur er
Ástrós Gunnarsdóttir og ljósa-
hönnuður er gamall samverka-
maður Messíönu, David Walters.
Aðeins eru þrjár sýningar fyr-
irhugaðar á verkinu næstu laugar-
daga en frumsýningin er núna á
laugardaginn 18.