Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 83
Þeir félagar Kristinn Sigmunds-
son og Jónas Ingimundarson verða
með ljóðatónleika í Salnum á laug-
ardag kl. 16. Ljóðatónleikar þeirra
hafa löngum verið hápunktur í
starfi Salarins og hafa þeir verið
duglegir að koma fram, eiga sér
dyggan aðdáendahóp sem sækir
alla þeirra tónleika enda er
frammistaða þeirra rómuð á þess-
um heimilislegu tónleikum. Að
þessu sinni bæta þeir enn við efn-
isskrá sína og er því hætt við að
slegist verði um miðann: tveir
ljóðaflokkar eru á efnisskránni:
Vier Ernste Gesänge op. 121 eftir
Johannes Brahms og Songs of
Travel eftir Ralph Vaughan Willi-
ams, auk sönglaga eftir Francesco
Paolo Tosti.
Kristinn er ótvírætt sá söngv-
ari íslenskur sem mestan veg á í
heimi söngsins um þessar mundir
þótt hann stæri sig ekki af glæsi-
legum framgangi sínum á öllum
stærstu óperusviðum heims. Á
þessu ári hefur hann sungið í
Rómeó og Júlíu eftir Gounod og
Fidelio eftir Beethoven í Metrópó-
litan-óperunni í New York, í Val-
kyrjunni eftir Wagner í Feneyj-
um, Brottnáminu úr kvennabúrinu
eftir Mozart í Trieste, Rósariddar-
anum eftir Richard Strauss í
München, Ítölsku stúlkunni í Alsír
eftir Rossini í Vínaróperunni,
Tristan und Isolde eftir Wagner
og Rigoletto eftir Verdi í San
Francisco-óperunni. Eru fá ef
nokkur dæmi um að íslenskur
söngvari hafi átt jafn fjölbreyti-
lega hlutverkaskrá og komið svo
víða fram á skömmum tíma. Öll
hús sem Kristinn syngur í eru í
úrvalsflokki á heimsvísu.
Jónas Ingimundarson er með
aðsetur hér heima. Hann hefur
ekki síður setið auðum höndum. Á
sunnudag stýrði hann glæsilegum
tónleikum í Salnum þar sem flutt
voru sönglög eftir Sigvalda Kalda-
lóns. Hann er mikilvirkur frum-
kvöðull í störfum sínum enda kom-
inn í hóp senjora í íslenskri
tónlistarmannastétt.
Efnisskráin er sótt í þrjá staði:
Francesco Paolo Tosti (1848-1916)
var meistari ítalskrar sönglaga-
gerðar. Hann bjó lengi í London,
og var söngkennari og tónlistar-
ráðunautur Viktoríu drottningar í
mörg ár. Hann var í miklum
metum samtímatónskálda, svo
sem Verdi, Puccini, Leoncavallo
o.fl. Lög hans eru löngu orðin
sígild. Johannes Brahms (1833-
1897) samdi ljóðaflokkinn Vier
ernste Gesänge við texta úr Biblí-
unni árið 1896, skömmu fyrir and-
lát sitt. Ljóðaflokkur er talinn
meðal áhrifamestu tónverka
Brahms. Robert Louis Steven-
son(1850-1894) var gífurlega
afkastamikill rithöfundur og
skáld. Sennilega eru sögurnar
„Strange case of Dr. Jekyll and
Mr. Hyde“ og Gulleyjan þekktustu
verk hans. Stevenson orti mikinn
ljóðabálk sem hann nefndi „Songs
of Travel“. Vaughan Williams
(1872-1958) valdi níu ljóð úr
flokknum og gerði við lög árið
1904. Þessi fallegi lagaflokkur er
mjög oft fluttur, enda í öndvegi
enskra söngbókmennta og er nú
kominn á efnisskrá þessara mikil-
hæfu listamanna.
Jónas og Kristinn í Salnum
Múlinn er nú sestur að í glæsilegu
nýju húsnæði hinna geðþekku
lífskúnstnera Kormáks og
Skjaldar, Domo í Þing-
holtsstræti. Í kvöld mæta
í spilamennsku þar
hressu strákarnir í Prímal
Freeman til að halda uppi
þéttri stemningu: Helgi
Svavar Helgason, Róbert
Reynisson, Davíð Þór Jóns-
son, Eiríkur Orri Ólafsson
og Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson.
Þeir félagar lofa
litríkum blæbrigð-
um, óræðum draumförum og nær
öruggri opnun þriðja augans
(trepanasjon). Frumsamið
efni mun prýða dag-
skrána sem endranær,
m.a. verður tónsmíðin
„Regnbogahrossið“
frumflutt.
Tónleikarnir hefjast
kl. 21.
Djassað í Dómó
Upp úr 1966 tók að heyrast hér
tónlist sem stakk í stúf við gítar-
gutlið sem drengjapoppið hafði
sem megineinkenni. Fyrstu hljóm-
arnir bárust hingað um Kanaút-
varpið og takturinn var annar,
söngurinn rámari og blár og saxó-
fónar og önnur blásturstól áber-
andi. Sálartónlistin var hún kölluð
og átti sér fyrst stað í ljósrauðu
diskóteki á Grensásveginum og
fór svo að hljóma um allt. For-
framaðir menn gátu dregið upp
amerískar plötur með hetjum á
borð við Wilson Pickett og Otis
Redding. Að ógleymdum stelp-
unum í Supremes.
Einu mennirnir sem þorðu að
taka þetta stöff upp og spila það
voru Roof Tops, þótt aðrir legðu í
sínar útgáfur, en alla aðra vantaði
blásara. Hljómsveitin Roof Tops
kom fyrst fram í veitingahúsinu
Glaumbæ í mars 1968 og vakti
fljótlega athygli fyrir taktfasta og
hressilega danstónlist. Vorið 1969
kom út fyrsta hljómplata hljóm-
sveitarinnar, fjögurra laga plata
þar sem meðal annars var að finna
lagið Söknuð, sem náði gríðarleg-
um vinsældum sem seint virtust
ætla að dvína. Í kjölfarið fylgdu
fleiri hljómplötur,
þar á meðal breið-
platan Trans-
parency.
Nú eru
hljóðritan-
ir með
þessari
vinsælu
hljómsveit
komnar
saman í
þriggja diska kassa. Þar er að
finna efnið sem kom út í hljóðrit-
unum í hljóðveri á einum disk, og
á hinum diskunum tveimur eru
upptökur frá dansleikjum með
Roof Tops, annars vegar frá Ungó
í Keflavík árið 1972 og hins vegar
úr veitingahúsinu Tjarnarbúð árið
1974. Skömmu eftir áramótin
74/75 hætti hljómsveitin störfum.
Upptöku af íslensku bítla-
hljómsveitunum á vettvangi dans-
leikjahaldsins eru ekki margar til.
Aðstæður við slíkar upptökur
voru erfiðar: mixborð voru ekki
til fyrr en seinna. Þó eru til magn-
aðar upptökur í einkaeign af
sumum þessara banda og það
bíður betri tíma að hreinsa þær og
koma á diska. Tiltæki Roof Tops
er því kærkomið. Af þessu tilefni
mun Roof Tops koma saman á
kvöldskemmtun á Hótel Sögu á
laugardagskvöldið kemur en rúm
30 ár eru nú liðin síðan þeir félag-
ar léku síðast saman á dansleik.
DJAMMIÐ UM HELGINA:
Allt um djammið
YELLO
KEFLAVÍK
GRAND ROKK
BREIÐBANDIÐ
& HELGI VALUR
Fimmtudagur:
DJ ATLI
DREKKTU BETUR
Föstudagur
DJ S.T.E.F
Laugardagur
Spurningakeppnin
Beinar útsendingar alla helgina á efri hæðinn
á föstudegi kl. 17.30 að venju
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS