Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 86
V
in
n
in
g
ar
ve
rð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
DÝRIN TAKA VÖLDIN!
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA OSF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
FARÐU ÁMYNDINASPILAÐULEIKINN!
11.
HVERVINNUR!
Vill Keanu Reeves í hlutverk Erlendar
Teiknimyndin Jonah: A VeggieTa-
les Movie verður frumsýnd á
föstudaginn en þar er gamla
biblíusagan um Jónas í hvalnum
færð í nýjan búning.
Myndin hefst á því að sendi-
ferðabíll fullur af syngjandi græn-
meti með Robba tómat í farar-
broddi bilar á þjóðvegi. Á meðan
grænmetishópurinn bíður eftir
dráttarbíl hittir hann lötustu sjó-
ræningja sem sögur fara af og
þeir stytta ferðalöngunum stundir
með því að segja þeim söguna af
Jónasi.
Jónas er einhvers konar bréf-
beri sem flytur skilaboð frá Guði.
Hann ann starfi sínu en svíkst
undan merkjum þegar honum er
falið að flytja þjóðflokki sem hann
hefur andstyggð á skilaboð. Hann
stingur af og fer á sjóinn þar sem
hann kemst í kynni við sjóræn-
ingja og endar í iðrum hvals.
Ævintýrum hans lýkur þó síður
en svo í maga hvalsins en þar
rennur upp fyrir honum að það
dýrmætasta sem maður getur
fengið er annað tækifæri þannig
að hann ákveður að taka sig saman
í andlitinu og klára verkefnið sem
honum var falið.
Myndin er eingöngu sýnd með
íslensku tali og á meðal þeirra sem
ljá sjóræningjunum, Jónasi og
grænmetinu raddir sínar eru
Pétur Örn Guðmundsson, Björg-
vin Franz Gíslason, Hildigunnur
Þráinsdóttir og Örn Árnason.
Biblíugrænmeti
Harry Potter verður í jólafríi þetta
árið en þeir sem þrá alvöru ævin-
týri í bíó um jólin þurfa ekki að
örvænta. Eragon mun fylla skarðið
en rétt eins og Harry Potter þá
byggir hún á vinsælli ævintýra-
bók. Þá eru tökur á Gyllta áttavit-
anum í fullum gangi en þessi fyrsta
mynd sem byggir á vinsælum þrí-
leik Philips Pullman verður jóla-
mynd ársins 2007.
Fyrsta bók rithöfundarins unga
Christopher Paolini kom út á
íslensku í fyrra og vakti mikla
athygli en bókin hafði þá þegar
farið sigurför um heiminn, verið
þýdd á fjölda tungumála og selst í
yfir tveimur milljónum eintaka.
Það þarf minna en þetta til að ná
athygli mógúlanna í Hollywood
sem keyptu kvikmyndaréttinn á
bókinni í snarhasti. Afraksturinn
er væntanlegur í bíó á Íslandi í
desember en þá verður Eragon
með ekki ómerkari mönnum en
Jeremy Irons, John Malkovich og
Robert Carlyle í lykilhlutverkum
frumsýnd.
Öll meginstef Eragon eru kunnug-
leg en sagan fjallar um sveitapilt-
inn unga Eragon sem finnur dreka-
egg og dregst í framhaldinu inn í
heim töfra og harkalegrar valda-
baráttu. Eggið er forn arfleifð
drekariddaranna og nú reynir á
hvort Eragon sé maður til þess að
halda merki þeirra á lofti og berj-
ast gegn Veldinu illa og konungi
þess.
Íslenskir aðdáendur Eragons
hafa beðið þess með óþreyju að fá
næstu bók í flokknum í hendurnar
en þeirri bið lýkur á miðnætti
annað kvöld þegar forsala á bók-
inni hefst hjá Eymundsson í Smára-
lind. Bókin heitir Öldungurinn
og þar halda ævintýri Era-
gons áfram og lífsháskinn
sem bíður hans þar er engu
minni en í fyrstu bókinni.
Myndin um Eragon þykir
líkleg til vinsælda í vetur
enda þarf hún ekki að
etja kappi við
önnur stór ævin-
týri sem leynast
þó handan við
hornið. Harry
Potter mun
mæta til leiks
eina ferðina enn í júlí á næsta ári í
Harry Potter og Fönixreglunni og
Gyllti áttavitinn, fyrsta myndin
sem byggir á feikivinsælum Norð-
urljósaþríleik Philips Pullman,
kemur fyrir augu áhorfenda í
desember þetta sama ár.
Bækur Pullmans þykja, ef eitt-
hvað er, betri en sögur J.K. Row-
ling um Harry Potter en fáir eru þó
líklegir til þess að skáka Harry
þegar kemur að sölu á bókum og
bíómiðum þó að framleiðendur
Gyllta áttavitans gangi að því sem
vísu að myndin muni mala þeim
gull.
Saga Pullmans er heimspekilegri
en gengur og gerist um ævintýri af
þessu tagi þó að vissulega séu allir
grunnþættir ævintýrisins til stað-
ar með áherslu á baráttu góðs og
ills. Bækurnar í þríleiknum eru
þrjár, Gyllti áttavitinn, Lúmski
hnífurinn og Skuggasjónauk-
inn.
Hin unga Lyra Belacqua er
aðalpersóna Gyllta áttavit-
ans. Hún býr í heimi hlið-
stæðum okkar heimi þótt
hann sé um margt frábrugðinn
þeirri veröld sem við þekkj-
um. Hún kemst að því að heimur
hennar er umkringdur öðrum sam-
liggjandi heimum þegar besta vini
hennar er rænt af dularfullum
verum. Þá leggst hún í sannkallað
heimshornaflakk og flækist í væg-
ast sagt skuggalega svikamyllu
illra afla.
Faðir hennar, Asríel lávarður,
leikur lykilhlutverk í baráttunni
við myrkraöflin. Öllu verra er að
átta sig á hvar hin fláráða frú Coult-
er stendur en hún tekur Lyru að sér
og virðist hafa varhugaverðar áætl-
anir um framtíð stúlkunnar.
Breska stúlkan Dakota Blue
Richards hreppti hlutverk Lyru
eftir mikla leit en 10.000 stúlkur
mættu í áheyrnarprufu fyrir hlut-
verkið. Richards, sem er 12 ára, er
mikill aðdáandi bóka Pullmans og
er sögð hafa þráð það heitt að fá að
bregða sér í hlutverk söguhetjunn-
ar.
Daniel Craig kemur ferskur úr
hlutverki James Bond og leikur
Asríel lávarð og sjálf Nicole Kid-
man fer með hlutverk frú Coulter.
Þá skýtur Eva Green, sem leikur á
móti Craig í Casino Royale, upp
kollinum í einum heima myndar-
innar sem nornin góða, Serafina
Pekkala. Harðjaxlarnir Sam Elliott
(Tombstone) og Ian McShane
(Deadwood) láta einnig til sín taka í
myndinni þannig að enginn skortur
er á úrvalsleikurum í myndinni
sem Chris Weitz (About a Boy,
Antz) leikstýrir.
Sean Connery lék James Bond manna fyrstur í Dr. No. og hefur að
flestra mati verið hinn eini sanni Bond síðan þá.
George Lazenby fékk það vanþakkláta verkefni að fylla skó
Connerys þegar hann hafði fengið sig fullsaddan af Bond. Hann stóð
sig með ágætum en lék njósnarann aðeins einu sinni.
Eftir að Lazenby fór í fússi var Connery troðið í smókinginn eina
ferðina enn í Diamonds Are Forever. Eftir það sagði Connery „aldrei
aftur“ og röðin kom að Roger Moore ferskum úr sjónvarpsþáttunum
um Dýrlinginn.
Nálgun Moores var í raun út úr kú sé horft til þess sem áður hafði
verið gert. Léttleikinn var í fyrirúmi og trúðslætin í Moore gerðu Bond
myndirnar nánast að gamanmyndum. Þetta gekk samt upp og hingað til
hefur enginn leikið Bond jafn oft og Moore.
Timothy Dalton, alvarlegur Shakespeare leikari, tók við af Moore.
Hann skorti bæði töffið sem Connery hafði og var of flatur og litlaus til
þess að geta fyllt skó grínistans Moore. Hann fékk tvö tækifæri og svo
var það búið.
Þá birti heldur til yfir ásjónu Bonds. Pierce Brosnan fékk loks að
spreyta sig og Bond varð aftur töffari. Goldeneye var ákveðið aftur-
hvarf til Connerys. Grínið var til staðar en harkan var aftur kominn í
kappann. Fyrstu tvær Brosnan-myndirnar stóðu vel fyrir sínu en síðan
fjaraði undan og það verður vart við leikarann sakast. Dellan tók
völdin aftur í handritunum og því fór sem fór.
Með ráðningu Daniels Craig í hlutverkið hefur verið tekin afgerandi
stefnubreyting. Hann er gerólíkur forverum sínum en fær að njóta sín
vel skrifaðri Bond mynd sem leggur megináherslu á hörkuna sem
menn þurfa að hafa til að geta drepið fólk án þess að blikka auga.
Daniel Craig er Bond eins og Ian Flemming skrifaði hann og Connery
reyndi að túlka á tímum þar sem ekki var hægt að gera hvað sem er í
bíó. Nú er allt leyfilegt og Craig nýtur þess.
George Lazenby sagðist í lok On Her Majesty’s Secret Service hafa
allan tímann í heiminum þar sem hann hélt vankaður á látinni eigin-
konu sinni í fanginu. Þeir sem leika Bond hafa hins vegar takmarkaðan
tíma og Craig þurfti ekki nema rúmlega tvær klukkustundir til þess að
sanna sig og komast jafnfætis Connery.
Bondarnir sex