Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 87
Tuttugasta og fyrsta James Bond
myndin, Casino Royale, verður
frumsýnd um víða veröld á morg-
un og Ísland er vitaskuld engin
undantekning. Myndarinnar
hefur verið beðið með óvenju
mikilli eftirvæntingu enda stígur
Daniel Craig sín fyrstu spor sem
Bond í henni.
Myndin er byggð á fyrstu
skáldsögu Ians Flemming um
þennan vaskasta útsendara henn-
ar hátignar. Það má því segja að
Bond fari aftur á byrjunarreit
þar sem myndin fjallar um fyrsta
verkefni hans eftir að hann fær
nafnbótina 007 sem gefur honum
leyfi til að drepa. Bond er því
yngri og óreyndari en fólk hefur
átt að venjast en að sama skapi
harðari og óvægnari.
Andstæðingur Bonds að þessu
sinni er alþjóðlegi fjárfestirinn
Le Chiffre sem sérhæfir sig í því
að ávaxta fé hryðjuverkamanna.
Sá er í vondum málum þar sem
hann hefur hlunnfarið viðskipta-
vini sína og bregður því á það ráð
að afla fjár í skyndi með því að
blása til risavaxins pókermóts í
spilavítinu Casino Royale.
Bond er besti fjárhættuspilar-
inn sem breska leyniþjónustan
hefur yfir að ráða og er því falið
það verkefni að knésetja Le Chif-
fre við spilaborðið þannig að
skúrknum sé nauðugur sá kostur
að leita hælis hjá Bretum í skipt-
um fyrir það sem hann veit um
viðskiptavini sína.
Bond þarf þó ekki aðeins að
kljást við Le Chiffre og hryðju-
verkamenn þar sem hann kolfell-
ur fyrir hinni þokkafullu Vesper
Lynd sem fjármálaráðuneytið
sendir með honum í leiðangurinn.
Ástin ruglar dómgreind kappans
sem hefur ekki áður flækst jafn
illa í neti konu en þegar upp er
staðið sannast hið fornkveðna á
kappanum að það sem ekki drep-
ur mann gerir mann sterkari og
jafnvel kaldrifjaðri og verri.
Gagnrýnendur hafa tekið
Craig og nýju Bond-myndinni
fagnandi enda kveður hér við
nýjan og ferskan tón og Bond
hefur heldur betur fengið andlits-
lyftingu og hefur hvorki verið
svalari né harðari í horn að taka
síðan Sean Connery var upp á sitt
besta.
Danski leikarinn Mads Mikk-
elsen leikur fúlmennið Le Chiffre
og lætur Craig heldur betur vinna
fyrir kaupinu sínu en Eva Green
fer með hlutverk Vesper Lynd,
stúlkunnar sem bræðir hjarta
Bonds. Judi Dench endurtekur
rullu sína sem M, yfirboðari
Bonds, og Jeffrey Wright bregð-
ur sér í hlutverk hins hundtrygga
Felix Leiter, útsendara CIA, sem
hefur oft komið Bond til aðstoðar
á ögurstundu.
Hristur, hrærður og í banastuði
Vísindaskáldsagnahöfundurinn
Philip K. Dick hefur löngum átt
upp á pallborðið hjá kvikmynda-
gerðarfólki en meðal mynda sem
gerðar hafa verið eftir verkum
hans eru Blade Runner, Total
Recall, Screamers, Minority
Report og Paycheck.
Leikstjórinn Richard Linklater
(Before Sunrise, The School of
Rock, Before Sunset, Fast Food
Nation) sótti einnig í smiðju höf-
undarins og hefur vakið nokkra
athygli fyrir A Scanner Darkly.
Hann tók hana upp með ekki
ómerkari leikurum en Keanu
Reeves, Robert Downey, Woody
Harrelson og Winona Ryder en
tölvuteiknaði svo yfir allt saman
þannig að á tjaldinu lítur myndin
út eins og leikin teiknimyndasaga.
Keanu Reeves leiðir hópinn í
hlutverki leynilögreglumannsins
Bob Arctor sem njósnar um vini
sína sem eru háðir eiturlyfinu D
sem er í meira lagi ávanabindandi
og heilaskemmandi.
Sjálfur er Bob ekki laus við
löngun í efnið og þegar honum er
gert að hafa auga með sjálfum sér
missir hann öll tök á raunveruleik-
anum, fyllist vænisýki og steypist
ofan í sýndarveröld þar sem hann
getur engum treyst og ekkert er
það sem það sýnist.
Philip K. Dick byggði A Scann-
er Darkly á eigin neyslu en honum
var einkar lagið að sveigja raun-
veruleikann til og snúa upp á hann
í verkum sínum og A Scanner Dar-
kly er fyrirmyndardæmi um brjál-
aða heimssýn dópistans.
Tölvuteiknaður
Keanu Reeves
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is
Kolefnin minnka loft-
þrýstinginn í boxinu sem gefur
hátalaranum meira rými til að
hreyfast fram og til baka.
Þannig verður til meiri dýpt og
hljómurinn úr litlu boxi verður
kraftmeiri heldur en úr stærra
hátalaraboxi.
Fyrir utan háþróaða tækni
hefur KEF lagt mikla áherslu
á glæsilegt útlit, nútímalega og
stílhreina hönnun sem fyrir
marga er hinn helmingurinn af
ánægjunni.
Njóttu þess í botn að hlusta á
góða tónlist í hátölurum sem
búa yfir tækni sem engir aðrir
hátalarar geta státað af.
Það sem gerir KHT6000
hátalarana frá KEF einstaka
er svokölluð ACE-tækni
(Acoustic Compliance
Enhancement). KEF hefur
kollvarpað lögmálinu um að
krafturinn í hljómburðinum sé
í réttu hlutfalli við stærðina á
hátalaraboxinu.
Tækni KEF byggir á því að
setja örlitlar agnir af sérstöku
kolefni í hátalaraboxið.
Helmingurinn
af ánægjunni
KEF KHT6000
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 6
0
5
6
0