Fréttablaðið - 16.11.2006, Qupperneq 92
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
65 þúsund gestir
ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA
FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA?
MEÐ ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI I
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN Á MIDI.IS
ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FORSÖLU Í KVIKMYNDAHÚSUNUM
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
SKÓGARSTRÍÐ ENSKT TAL kl. 6, 8, og 10
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
ÓTTALAUS kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
SKRATTINN KLÆÐIST PRADA kl. 8 og 10.20
SKÓGARSTRÍÐ kl. 4 og 6
SKÓGARSTRÍÐ ENSKT TAL kl. 4 og 10
BORAT kl. 4, 6, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 4, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 4 og 10.20
ÓTTALAUS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
BORAT kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
Jónas Sigurðsson, fyrrum
söngvari Sólstrandagæj-
anna, hefur gefið út sína
fyrstu sólóplötu sem nefnist
Þar sem malbikið svífur
mun ég dansa.
Jónas hefur starfað síðustu ár við
hugbúnaðargerð hjá Microsoft í
Danmörku. Upptökur plötunnar
fóru fram á heimilum vina og
kunningja í íslenskum og norskum
sjávarþorpum, Reykjavík og
Kaupmannahöfn á tveggja ára
tímabili. Platan inniheldur ellefu
lög með íslenskum textum og efn-
istökin margvísleg; tilgangur lífs-
ins, myrkur og fegurð.
Jónas segist hafa haft plötuna í
hausnum í fjögur til fimm ár áður
en hann ákvað að stíga skrefið og
taka hana upp. „Ég flutti til Dan-
merkur fyrir fjórum árum og átti
svo mikið efni sem ég var í að spá
í að gefa út. Ég bara náði ekki
alveg að finna hvernig ég ætti að
hafa „sándið“,“ segir Jónas. „Fyrir
þremur árum byrjaði ég að fara í
stúdíó og taka upp og vinna þessar
hugmyndir. Ég var á tímabili
búinn að ýta þessu til hliðar og var
að vinna við forritun. En tónlistin
var svo knýjandi að ég varð að
koma henni að til að viðhalda mínu
andlega heilbrigði.“
Jónas vill ekki meina að erfitt hafi
verið að koma sér úr gír Sólstran-
dagæjans yfir í gír alvarlega sóló-
tónlistarmannsins. „Sólstranda-
gæjarnir voru í rauninni hálfgert
partí. Ég og vinur minn sömdum
það allt saman á tveimur helgum
og svo varð það alveg risastórt og
yfirtók allt annað. Á þessum tíma
var ég að leyfa fólki að heyra
demó sem ég hafði samið fyrir
sjálfan mig og það spurði bara:
Hvað er nú þetta? Þetta verður
aldrei vinsælt,“ segir hann og
hlær. „Það er í rauninni ótrúlegt
hvað þetta lifir því hljómsveitin
var ekki einu sinni til í tvö ár. Við
vorum nýútskrifaðir stúdentar að
vinna í frystihúsi og gáfum þessa
plötu út fyrir vini okkar sem part-
íefni. Síðan var þetta bara stans-
laust partí.“
Jónas segist hafa nálgast plötuna
sína mikið út frá rythma, enda er
hann trommuleikari að upplagi.
„Ég var mikið í lúðrasveitum og
var alltaf hrifinn af þessu „energ-
íi“ sem er í þessum lúðrum þegar
þeir eru notaðir hráir. Ég man
þegar það voru haldin lúðrasveita-
mót einu sinni á ári þar sem allar
lúðrasveitirnar komu saman og
duttu í það. Þá voru allir að spila á
lúðrana og mér fannst það svo
geðveikt „sánd“. Það var dálítið
erfitt að fá hljóðfæraleikarana til
að spila þannig á plötunni,“ segir
hann og hlær.
Jónas reyndi jafnframt að forð-
ast að vera með trommusett á plöt-
unni. Vildi hann frekar hafa hljóm-
inn eins og í lúðrasveit, þar sem
einn er á bassatrommu og annar á
sneril. „Ég er mjög ánægður með
að vera kominn með þessa plötu.
Mér finnst ég hafa eitthvað að
segja og mig langaði að gera
meira, það er engin spurning.“
Fjölmargir danskir og íslenskir
tónlistarmenn koma við sögu á
plötunni og mun Jónas koma fram
með átta manna hljómsveit á
útgáfutónleikum sem hefjast í
Tjarnarbíói klukkkan 22.00 í
kvöld. Miðaverð er 1.000 krónur.
Trúbadorinn Halli Reynis er að
senda frá sér sína sjöundu plötu
sem nefnist Fjögurra manna far.
Er hún gefin út á vegum Músík
ehf. og er þetta í fyrsta sinn sem
Halli gerir útgáfusamning á ferli
sínum. Í tilefni plötunnar ætlar
hann að halda einn með gítarinn í
tónleikaferð sem byrjar í kvöld á
Græna hattinum á Akureyri. Nán-
ari upplýsingar um tónleikaferð-
ina má fá á Hallireynis.com.
„Þessi plata er unnin með sama
mannskap að stærstum hluta og
vann með mér plötuna Við erum
eins, sem kom út 2004. Nafnið
Fjögurra manna far vitnar í að
þeir unnu hana með mér,“ segir
Halli. Hann bætir því við að platan
sé hrárri en fyrri plötur hans.
„Hún er tekin upp „live“. Það var
allt sungið og spilað í einu og er að
því leytinu í sama anda og það sem
ég gerði á Við erum eins. „Mig
langaði til að gera hressa plötu
eftir kassagítarplötuna í vor. Ég
held að hún sé mjög létt og leik-
andi.“ 1. desember verður Halli
fertugur og ætlar að halda af því
tilefni tónleika á Café Rosenberg,
sem verða þeir seinustu á tón-
leikaferðinni. Verða tónleikarnir
sendir út beint á Rás 2.
Halli í tónleikaferð
Hljómsveitin Depeche Mode hefur
gefið út safnplötuna The Best Of
Depeche Mode: Volume 1. Platan
hefur að geyma 17 smáskífulög sveit-
arinnar sem flest hver hafa notið
mikilla vinsælda undanfarin 25 ár.
Á meðal laga á plötunni eru Per-
sonal Jesus, Just Can´t Get Enough,
Everything Counts, Enjoy The
Silence og nýjasta smáskífulagið,
Martyr.
Lögin eru tekin af ellefu hljóðver-
splötum Depeche Mode sem voru
teknar upp á árunum 1981 til 2005.
Með plötunni fylgir í takmörkuðu
upplagi DVD-mynddiskur með 23 tón-
listarmyndböndum með hljómsveit-
inni, meðal annars með lögum sem
eru ekki á safnplötunni. Má þar nefna
Stripped, A Question of Time, Barrel
of A Gun, Only When I Lose Myself
og I Feel Loved. Einnig er þar hálf-
tíma löng stuttmynd um sveitina.
Plata Depeche Mode frá síðasta
ári, Playing the Angel, hefur selst í
þremur milljónum eintaka. Komst
hún í toppsæti vinsældalista í átján
löndum. Á þessu ári hefur hljóm-
sveitin spilað fyrir framan 2,5 millj-
ónir áhorfenda í 31 landi á Playing
the Angel-tónleikaferðinni.
17 smáskífulög og 23 myndbönd
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA VTF Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru bíómiðar, tölvuleikir
DVD myndir og margt fleira
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.