Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 95
John Arne Riise, leikmað-
ur Liverpool, hefur sagt að Jose
Reina sé gunga fyrir að afskrá
Liverpool í titilbaráttunni þetta
tímabilið. Reina lét hafa eftir sér
eftir tapið gegn Arsenal um síð-
ustu helgi að markmið Liverpool
úr því sem komið er sé fjórða sæti
deildarinnar.
Riise neitar þó að afskrifa
möguleika liðsins á meistaratitlin-
um og þó að hann hafi ekki nefnt
Reina á nafn þá voru ábendingarn-
ar hans augljósar.
„Við megum aldrei gefst upp,
gungur gefast upp. Rafa Benitez
var rólegur inni í búningsherbergi
eftir leikinn gegn Arsenal á sunnu-
daginn en hann vissi, og við viss-
um, að þetta var ekki góður leikur.
Ég skil ekki af hverju við erum
svona lélegir á útivöllum. Ég bara
skil það ekki.
Auðvitað verður erfitt að ná
Manchester United. En ef við
skoðum síðasta tímabil þá vorum
við á tímabili langt á eftir Chelsea
en í maí enduðum við níu stigum á
eftir þeim,“ sagði Riise en eftir
tapið á sunnudaginn er Liverpool í
níunda sæti, fjórtán stigum á eftir
toppliði Manchester United.
„Fjórða sætið er okkar mark-
mið núna, við þurfum að berjast
til að ná því,“ sagði Jose Reina
eftir 3-0 tapið gegn Arsenal á
sunnudaginn.
Eigum enn möguleika
Hermann Hreiðarsson og
Rúrik Gíslason hafa fengið nýjan
framkvæmdastjóra til Charlton,
en Les Reed hefur verið ráðinn
stjóri félagsins. Reed var
aðstoðarmaður Iains Dowie og
stjórn félagsins segir að hann sé
ekki ráðinn til bráðabirgða,
heldur sé hann framtíðarstjóri
félagsins.
„Við viljum taka það fram að
Les Reed er ekki hér til að fylla í
upp í skarðið tímabundið og Mark
Robson verður aðstoðarmaður
hans. Það eina sem gæti breyst er
að nýr varaliðsþjálfari verði
ráðinn til starfa. Reed þarf að rífa
menn upp og það verður nóg að
gera hjá honum næstu daga,“
sagði Peter Varney stjórnarfor-
maður Charlton.
Les Reed
ráðinn stjóri
Owen Hargreaves,
leikmaður Bayern München,
reynir hvað hann getur að hugsa
ekki um hugsanlega sölu til
Manchester United. Hargreaves
fótbrotnaði í upphafi tímabilsins
og vill einbeita sér að því að ná
fullum bata að nýju.
„Þessi viðskipti eru ekki í
mínum höndum. Manchester
United hafa oft látið í ljós áhuga
sinn á að kaupa mig en það
mikilvægasta er að ég jafni mig
af meiðslunum. Endurhæfingin
tekur tíma en það er gaman að sjá
árangur. Ég er ánægður,“ sagði
Hargreaves í viðtali við BBC.
Hugsar ekki
um Man. Utd
Forseti nígeríska
knattspyrnusambandsins, Waidi
Akanni, hefur hvatt sóknarmann-
inn Obafemi Martins að yfirgefa
Newcastle, áður en ferill hans
hljóti skaða af. Martins var
keyptur frá Inter Milan á tíu
milljónir punda í ágúst og hefur
eingöngu skorað þrjú mörk í tólf
leikjum fyrir Newcastle.
„Martins hefði átt að fara í
sigurlið, ekki miðlungslið eins og
Newcastle. Ef ekkert gerist
fljótlega þá gæti ferill hans hlotið
varanlegan skaða,“ sagði Akanni
við breska blaðið The Sun.
Átti að fara
í sigurlið
Fjölbreytt tónlist
(popp, rokk/jaðartónlist,
dægurtónlist og ýmis tónlist)
::: Flytjandi ársins
::: Lag og texti ársins
::: Söngkona ársins
::: Söngvari ársins
Popp
::: Hljómplata ársins
Rokk/jaðartónlist
::: Hljómplata ársins
Dægurtónlist
::: Hljómplata ársins
Ýmis tónlist
::: Hljómplata ársins
Skila skal 9 eintökum af plötu
Sígild og samtímatónlist
::: Hljómplata ársins
::: Flytjandi ársins
::: Tónverk ársins
Skila skal 7 eintökum af plötu
Jazz
::: Hljómplata ársins
::: Flytjandi ársins
::: Lag ársins
Skila skal 7 eintökum af plötu
Sameiginleg verðlaun fyrir alla flokka
::: Plötuumslag ársins
Skila skal 3 eintökum af plötu
::: Myndband ársins
Skila skal 6 eintökum af dvd/vhs
::: Bjartasta vonin
Óskað er eftir tillögum að tilnefningum til
Íslensku tónlistarverðlaunanna 2006
Veitt verða verðlaun í eftirfarandi flokkum:
ÍSLENSKU
TÓNLISTARVERÐLAUNIN
Þátttökurétt eiga plötur sem hafa verið
gefnar út til almennrar sölu og dreifingar
frá 25. nóvember 2005 - 24. nóvember
2006. Skráningargjald fyrir plötu er 8.000
krónur sem greiðist við skráningu. Ekki er
tekið við ófullgerðum plötum. Tónverkum í
flokki sígildrar og samtímatónlistar skal
skila á hljóðriti í Íslenska tónverkamiðstöð,
Síðumúla 34, 108 Reykjavík.
Tillögum skal skila á skrifstofu FÍH fyrir
kl. 17.00 föstudaginn 24. nóvember 2006
Skráningareyðublöð er að finna á www.islensktonlistarverdlaun.is
og á skrifstofu FÍH, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík.
ÍSLENSKU
TÓNLISTARVERÐLAUNIN