Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 2
Ertu ekki löglegur, Jón?
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Litháískur karlmaður á
fertugsaldri, Egidijus Narvidas,
hefur verið ákærður í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir stórfellt fíkni-
efnabrot, þegar hann reyndi að
flytja hingað til lands tæplega 4,5
kíló af amfetamíni í ágúst.
Maðurinn flutti efnið falið bak-
við og undir mælaborði bifreiðar af
Audi-gerð, sem hann flutti með far-
þegaferjunni Norrænu. Tollverðir
fundu efnið við leit í bifreiðinni við
komu ferjunnar til Seyðisfjarðar.
Narvidas var í félagi við annan
Litháa, sem reyndi að smygla álíka
miklu magni af amfetamíni í ann-
arri bifreið í sömu ferð með Nor-
rænu. Sá var einnig tekinn.
Narvidas er einnig ákærður
fyrir að hafa ekið sömu bifreið og
hann reyndi að smygla amfetam-
íninu í, réttindalaus og undir áhrif-
um áfengis um Strandbakka á
Seyðisfirði.
Ákæruvaldið krefst þess að
Narvidas verði dæmdur til refs-
ingar og til sviptingar ökuréttar.
Jafnframt að bifreiðin sem notuð
var við smygltilraunina verði gerð
upptæk.
Reyndi að smygla 4,5 kílóum
af amfetamíni með Norrænu
Halldór Ásgrímsson var ráðinn í starf
framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar
vegna hæfni sinnar, reynslu og framtíðarsýnar á nor-
rænt samstarf.
Jónína Bjartmarz, ráðherra norrænna samstarfs-
mála, greindi frá ráðningarferlinu á Alþingi í gær
þegar hún svaraði fyrirspurn Magnúsar Þórs Haf-
steinssonar, Frjálslynda flokknum, um málið.
Magnús vildi vita hvernig staðið var að kjörinu og
upplýsti um leið að sér virtist sem ýmsir hefðu verið
að „bralla allnokkuð í reykfylltum bakherbergjum,
verið að plotta, eins og sagt er á fínu máli“.
Jónína hafnaði bollaleggingum Magnúsar um bak-
tjaldamakk og kvað Geir H. Haarde hafa farið þess á
leit við Halldór að hann gæfi kost á sér í starfið.
Féllst Halldór á þá umleitan og í framhaldinu
greindi Geir norrænum kollegum sínum frá áhuga
Íslands á starfinu.
Eftir að Finnar höfðu einnig tilnefnt mann komu
samstarfsráðherrarnir sér saman um að ákvörðun
skyldi byggjast á hæfni og reynslu umsækjenda.
Voru frambjóðendurnir kallaðir til viðtala og rukkað-
ir um framtíðarsýn þeirra á norrænt samstarf. Eftir
þau viðtöl var ákveðið að ganga til samninga við Hall-
dór.
Hæfni, reynsla og framtíðar-
sýn réðu ráðningu Halldórs
Fimmtán verkamenn
voru í gær lokaðir inni á eins
kílómetra dýpi í kolanámu í
Slésíu í Suðvestur-Póllandi, eftir
að gassprenging varð í námunni í
fyrradag með þeim afleiðingum
að átta menn fórust. Björgunar-
sveit sem send var niður í
námuna varð að hörfa frá vegna
hættunnar á frekari gasspreng-
ingum. Tekist hafði að ná líkum
sex hinna látnu upp úr námunni
áður en gera varð hlé á björgun-
arstarfi vegna hættunnar á nýrri
gassprengingu.
Átta látnir og
fimmtán saknað
Skammbyssan, sem
kafarar á vegum dagblaðsins
Expressen fundu í stöðuvatni í
Mið-Svíþjóð í byrjun vikunnar,
hefur sennilega legið þar óhreyfð
síðan pósthússrán var framið í
bænum Mockfjärd árið 1983.
Engu að síður hefur Palme-
rannsóknarnefndin áhuga á
vopninu, þar sem byssukúlurnar
sem hleypt var af í Mockfjärd-
ráninu og er Palme var skotinn í
lok febrúar 1986, voru alveg eins.
Er talið að kúlunum hafi verið
stolið ásamt Smith & Wesson-
byssu úr sumarbústað í N-Svíþjóð
snemma hausts 1983.
Sennilega varp-
að í vatnið 1983
Biðlistar eftir
gerviliðaaðgerðum hafa lengst
jafnt og þétt að undanförnu.
Minnst 650 einstaklingar bíða eftir
slíkri aðgerð á Landspítalanum,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri og sjúkrahúsinu á Akranesi.
Biðin er lengst á Landspítalanum,
eða um eitt ár, en þar bíða um 500
einstaklingar eftir aðgerð. Ástæða
lengri biðlista er skortur á fjár-
magni frá heilbrigðisyfirvöldum
og sýnt að þeir muni lengjast á
næsta ári nema til komi sértækar
aðgerðir. Líðan fólks sem bíður
eftir gerviliðaaðgerð er afar slæm
vegna stöðugra verkja.
Ingvi Ólafsson, yfirlæknir á
bæklunarskurðdeild LSH, segir að
á síðustu sex mánuðum hafi ein-
staklingum á biðlistanum eftir
gerviliðaaðgerðum á LSH fjölgað
um tuttugu prósent og ástandið sé
í raun hræðilegt. „Ábendingin
vegna gerviliðaaðgerðar er slit
með verkjum. Biðlistasjúklingar
eru því allir með verki og oft á
tíðum svo slæma að þeir koma í
veg fyrir að fólk geti sofið. Maður
sér það í nokkuð vaxandi mæli að
verkir eru orðnir það miklir að
fólk kemur á slysadeild og aðstand-
endur hreinlega neita að taka við-
komandi heim aftur.“ Ingvi segir
það í raun hræðilegt að geta ekki
fjölgað aðgerðum. „Við stöndum
hérna með allt til alls, tæki og
kunnáttu, en getum ekkert gert.“
Þorvaldur Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga á FSA,
tekur undir orð Ingva og segir
ástandið mjög alvarlegt. „Við
höfum þurft að draga úr aðgerð-
um af því við höfum ekki fengið fé
til biðlistaaðgerða. Þess vegna
hafa biðlistar lengst sem er algjör-
lega óviðunandi. Það er fátt verra
en að segja við sjúkling að hann
þurfi að bíða í marga mánuði eftir
aðgerð.“ Þorvaldur segir málið
einfalt. Fjármagn verði að koma
frá heilbrigðisyfirvöldum til að
eyða þessum biðlistum. „Ég hef
oft sagt að þetta séu gleymdu sjúk-
lingarnir, aldrað fólk sem lætur
ekki mikið í sér heyra vegna veik-
inda sem þessara,“ segir Þorvald-
ur.
Þórir Bergmannsson, forstjóri
lækninga, segir að á sjúkrahúsinu
á Akranesi séu um 90 einstakling-
ar á biðlista. Bið þessara sjúklinga
er átta til níu mánuðir. „Við gerum
120 aðgerðir á ári en þurfum að
skera það verulega niður á næsta
ári vegna skertra fjárveitinga.
Það er ljóst að biðlistar munu
lengjast nema aukaframlög vegna
biðlistaaðgerða verði hækkuð.“
Allir sem bíða eftir
gervilið þjást mikið
Biðlistar eftir gerviliðaaðgerð lengjast jafnt og þétt. Líðan þeirra 700 einstakl-
inga sem nú bíða er mjög slæm vegna stöðugra verkja. Bæklunarsérfræðingar
segja ástandið hræðilegt og kalla eftir fjármagni frá heilbrigðisyfirvöldum.
Samkvæmt breyting-
artillögu meirihluta fjárlaga-
nefndar við fjárlagafrumvarpið,
sem lögð var fram á Alþingi í gær,
er gert ráð fyrir ríkisútgjöldin á
næsta ári verði um 9,5 milljörðum
króna hærri en gert er ráð fyrir.
Samkvæmt tillögunni hækka tekj-
ur ríkissjóðs um rúma þrjá millj-
arða. Verður tekjuafgangur ríkis-
sjóðs um níu milljarðar króna í
stað 15,5 milljarða eins og áætlað
var 1. október síðastliðinn.
Mest munar um aukin vaxta-
gjöld ríkissjóðs um 4,7 milljarða.
Fjárframlög til menntamálaráðu-
neytisins hækka um 1,7 milljarða,
1,5 milljarðar fara til heilbrigðis-
ráðuneytisins. Hækkunin er minni
til annarra ráðuneyta.
Tíu milljarðar í
aukin útgjöld
Það er fátt verra en að
segja við sjúkling að
hann þurfi að bíða í marga mán-
uði eftir aðgerð.
Breska dagblaðið
Evening Standard tileinkaði
íslensku innrásinni í breskt
fjármála- og menningarlíf heila
opnu í blaði sínu
í gær.
Blaðið furðar
sig á öllum þeim
eftirtektarverðu
kaupum og
yfirtökum sem
íslenskir
viðskiptamenn
hafa fram-
kvæmt á síðustu misserum þar
sem þeir hafi í fyrstu virst vera að
færast of mikið í fang.
En umfjöllunin einskorðast
ekki við fjármálageirann. Með
greininni fylgir einnig hálfsíðu
mynd af stúlknaflokknum Nylon
auk þess sem þar er minnst á
Björk, Stafrænan Hákon, Sigur-
rós, Emilíönu Torrini, íslenska
knattspyrnumenn sem spila þar í
landi og Ólaf Elíasson svo að
fáeinir séu nefndir.
Furða sig á
mætti Íslands
„Telur þú þá þessa tölu,
sem nefnd er í mati sem þú gerðir
að umtalsefni, það er 37 milljónir
króna vegna útboðsins 1996, gefa
vísbendingu um
hugsanlegan
ávinning af
samráðinu?“
spurði Skúli
Magnússon
héraðsdómari
Gísla Baldur
Garðarsson,
lögmann Olís, er
hann gerði
matsskýrslu að
umtalsefni í
málflutningi sínum. Gísli Baldur
vildi leggja matsskýrsluna fram
sem hluta af gögnum málsins en
lögmenn Kers og Skeljungs voru
því algjörlega ósammála.
Aðalmeðferð í máli Reykjavík-
urborgar á hendur olíufélögunum
fór fram í gær. Reykjavíkurborg
gerir kröfu um skaðabætur upp á
tæplega 160 milljónir króna
vegna samráðs í tengslum við
útboð árið 1996. Lögmenn
olíufélaganna sögðu engar
sannanir fyrir ávinningi af
samráði.
Lögmenn olíufé-
laga ósammála