Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 4
75.000 KR. GJAFABRÉF FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA ÖLLUM NOTUÐUM BÍLUM FRÁ INGVARI HELGASYNI Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir ekki koma til greina að fleiri þýskir hermenn verði sendir til Afganistans. Engir þýskir hermenn verða heldur send- ir til suðurhluta landsins, þar sem átök hafa verið hörð undanfarið. James L. Jones, yfirherforingi Atlantshafsbandalagsins, ítrekaði í gær hvatningu til aðildarríkja bandalagsins um að senda fleiri hermenn til Afganistans, að öðrum kosti muni hernaðurinn þar drag- ast á langinn og verða dýrkeyptari. Nærri þrjú þúsund þýskir her- menn eru í Afganistan, flestir í norðanverðu landinu þar sem er til- tölulega friðsælt. „Við viljum ekki að neinn vafi leiki á um árangur þeirra í norður- hlutanum og ég get ekki séð að neinn vilji stofna í hættu því öryggi sem ríkir í norðurhlutanum,“ sagði Merkel í gær. Í gær hafði Merkel verið kansl- ari Þýskalands í eitt ár og notaði tækifærið til að stæra sig svolítið af árangri ríkisstjórnarinnar, þótt hún segði margt eftir ógert. Samskipti stjórnarflokkanna tveggja, Kristilegra demókrata og Sósíaldemókrata, í „stóru sam- steypustjórninni“ sem mynduð var eftir síðustu þingkosningar, hafa þó verið stirð að undanförnu og skoð- anakannanir sýna að vinsældir hennar minnka. Neitar að senda fleiri þýska hermenn til Afganistans Aðildarríki Evrópu- sambandsins hafa samþykkt að draga úr hömlum á úthafsveiðum og hunsa þar með viðvörunarorð um að sumir fiskistofnar séu í útrýmingarhættu og þess vegna þurfi að hætta úthafsveiðum með öllu. Á tveggja daga fundi sjávarút- vegsráðherra aðildarríkjanna í Brussel var á hinn bóginn samþykkt að herða reglur um möskvastærð veiðarfæra og strandveiðar í Miðjarðarhafinu. Í næsta mánuði taka ráðherr- arnir ákvarðanir um fiskveiðikvóta í lögsögu aðildarríkjanna. Minni hömlur á úthafsveiðar Hagvöxtur mun dragast saman á öllum Norður- löndunum nema Noregi á næsta ári samkvæmt spá norrænu efna- hagsnefndarinnar í nýútkominni skýrslu. Mestur samdráttur verð- ur á Íslandi þar sem hagvöxtur mun fara úr 4,2 prósentum í ár niður í eitt prósent. Hagvöxtur á hinum Norðurlöndunum verður á bilinu tvö til 3,6 prósent. Afkoma hins opinbera hefur sjaldan verið betri á Norðurlönd- unum samkvæmt skýrslunni og stendur Noregur þar langbest með 19,5 prósent af vergri landsfram- leiðslu. Næst kemur Ísland með 3,8 prósent. Ísland verður hins vegar með lægstu afkomu hins opinbera á næsta ári samkvæmt spám eða 1,5 prósent. „Afkoman verður þó jákvæð á næsta ári sem telst gott með hliðsjón af því að víðast hvar í Evrópu er halli á rekstri hins opinbera,“ segir Bene- dikt Þór Valsson, hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu, sem situr í norrænu efnahagsnefndinni fyrir hönd Íslands. Við samanburð á Norðurlönd- unum er mikilvægt að líta til þess að svokallað öldrunarvandamál framtíðar virðist vega þyngra á hinum Norðurlöndunum að sögn Benedikts. Í því felst að færri munu borga skatta til að greiða líf- eyri og aðra opinbera þjónustu til æ vaxandi fjölda fólks. „En íslenska þjóðin er ung og við sjáum fram á að okkar lífeyris- sjóðskerfi verði sjálfbært. Hinar þjóðirnar eru að reka sína ríkis- sjóði með góðri afkomu til að geta mætt miklum skuldbindingum í framtíðinni, bæði vegna öldrunar og lífeyrisskuldbindinga.“ Verðbólga hefur verið fremur lág á öllum Norðurlöndunum nema á Íslandi sem sker sig úr með 7,3 prósent verðbólgu fyrir árið 2006. Næst mest er verðbólgan í Noregi 2,5 prósent. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir þessar tölur sýna þann samdrátt sem talað er um að verði hér á næsta ári. „Þetta endurspeglar aðlögun íslenska hagkerfisins að nýju jafn- vægi eftir þá gríðarlega miklu þenslu og ójafnvægi sem hefur verið undanfarið.“ Tryggvi bendir á að margfalt meiri hagvöxtur hafi verið á Íslandi en á hinum Norðurlöndun- um í langan tíma og því eigi þetta ekki að breyta neinu stóru. „Þetta er nauðsynleg aðlögun sem verður að eiga sér stað til þess að hér náist verðbólga niður og hagkerf- ið fari í jafnvægi.“ Minnstur hagvöxtur á Íslandi á næsta ári Hagvöxtur og afkoma hins opinbera dregst mest saman á Íslandi á næsta ári samkvæmt spá um efnahagshorfur á Norðurlöndum. Sagt nauðsynleg aðlögun. 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi verður haldið hér á landi dagana 24. nóvember til 10. desember næstkomandi. Á fjórða tug stofnana og samtaka munu meðal annars standa fyrir alls kyns fundum, mótmælum málþingum á þeim tíma. Átakið í ár á að beina sjónum að þeim fjölmörgu samfélagsmeinum sem stuðla að ofbeldi gegn konum. 16 daga átakið hefur í 16 ár unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömb- um ofbeldis og þrýsta á bætta réttarstöðu þolenda. 16 daga átak haldið í 16 sinn Tuttugu einbýlis- hús sem hvert um sig mun verða allt að 600 fermetrar munu rísa í landi Gljúfurárholts í Ölfusi ef ný tillaga að deiliskipulagi sem nú hefur verið auglýst verður samþykkt. Húsin, sem verða eins konar herragarðar, mega vera tíu metra há. Með hverju íbúðar- húsi er að auki gert ráð fyrir allt að 100 fermetra gróðurhúsi og hesthúsi fyrir tíu hesta. Lóðirn- ar verða allt að tíu þúsund fermetrar hver. Einnig er gert ráð fyrir tvíbýlishúsum í þessum 1. áfanga í skipulagn- ingu íbúðabyggðar í landi Gljúfurárholts. Risastórir herragarðar Úrslit þingkosning- anna í Hollandi í gær virtust sam- kvæmt fyrstu tölum verða á þann veg að hvorki fylking hægri manna né fylking vinstri manna hlyti meirihluta þingsæta. Hins vegar stefndi í að flokkur forsætisráð- herrans Jans Peters Balkende, Kristilegir demókratar, fengi flest þingsæti og þar með umboð til að leiða stjórnarmyndunarviðræður. Balkende hefur leitt minni- hlutastjórn ásamt Frjálslynda flokknum frá því miðflokkurinn D66 yfirgaf stjórnarsamtarf hægri manna í sumar. Flokkarnir í fylkingu vinstri manna eru Verkamannaflokkur- inn, Sósílastaflokkurinn og Græningjar. Aðrir flokkar standa utan fylkinga. Hvorug fylking- in í meirihluta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.