Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 22
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Karlarnir veiða rjúpuna grimmt Jólaþorpið í Hafnarfirði verður starfrækt á Thorsplani fjórða árið í röð nú fyrir jólin. Tuttugu lítil jólahús eru risin og á morgun er von á um átta hundr- uð leikskólabörnum sem ætla að skreyta jólatrén sem umlykja þorpið með jólaskrauti sem þau hafa verið að búa til undanfarnar vikur. Í litlu jólahúsunum verður ýmislegt í boði, handverk og hönn- un, heimabakaðar kökur, heilsuna- mmi, belgískt konfekt, sultur og annað góðgæti, aðventukransar, handmáluð kerti og jólakúlur, dúkkuföt, boðið upp á ísaum í handklæði og húfur, listaverk unnin úr jólatrjábolum, myndlist, leirlist og margt fleira. Jólaþorpið verður einungis opið um helgar og í boði er fjölbreytt skemmtun alla dagana kl. 14. Meðal þeirra sem boðað hafa komu sína eru ýmsir hafnfirskir kórar og Gunni og Felix, sem sjá um alvöru jólaböll á sunnudögum. Þá verða Grýla, Leppalúði og jóla- sveinarnir að sjálfsögðu á þeytingi um planið. Opnunardagur jólaþorpsins er nú á laugardaginn. Herlegheitin byrja klukkan 12 og er opið til kl. 18. Átta hundruð börn skreyta Margir eiga sér draum um skútusiglingu á suðrænum slóðum og það er ljóst að slíkar draumfarir gerast ágengari um þessar mundir. Kári Jón Halldórsson og Áslaug Ösp Aðalsteinsdóttir létu drauminn rætast. Þau hafa siglt um Karíbahafið og undan strönd Ameríku á skútunni Lady Ann ásamt tíkinni Kötu. Nýverið voru þau í fréttunum eftir að þrír vopnaðir sjóræningjar stálu af þeim öllu steini léttara. „Það er ósköp lítið að ske og við erum eiginlega farin að missa trúna á að eitthvað gerist,“ segir Kári þar sem hann er staddur á eyjunni Margarita við Venesúela. Þar fyrir utan réðust ræningjarn- ir á þau 10. nóvember. „Við erum búin að gefa þrjár skýrslur á þremur stöðum og vorum að gefa sömu skýrsluna einu sinni enn á fyrsta staðnum aftur. Þetta vesen er að verða jafn dýrt og það sem var rænt af okkur, enda dýrt að fara á leigubílum eyjuna á enda og það kostar sitt að hafa túlk. Kerfið er ótrúlega svifaseint hérna. Það var til dæmis bara tölva á einum staðnum sem við gáfum skýrslu. Á hinum var allt handskrifað. En fólkið er allt mjög almennilegt.“ Lady Ann var dregin í land og Kári segir að skútan sé í ágætu ástandi að utan þótt allt sé í ólestri að innan. „Annað bátafólk hefur verið mjög hjálpsamt. Það er til dæmis búið að lána okkur gamla tölvu og fleira dót. Það er í raun búið að gefa okkur þetta þótt það sé kallað lán. Það er mikil og góð samstaða innan bátasamfélags- ins.“ Engan sakaði í ráninu og meira að segja bátstíkin Kata skrapp með skrekkinn. „Hún var nú bara í búrinu sínu og hafði vit á því að þegja. Ef hún hefði farið í að gelta hefðu ræningjarnir eflaust hent henni fyrir borð. Hún er nú bara þrjú kíló svo það hefði ekki verið mikið gagn í henni gegn ræn- ingjunum hvort eð er. En þetta er þægileg stærð á hundi fyrir svona ferðalag.“ Kári og Áslaug hafa ekki alveg ákveðið með framhaldið. „Það er vissulega skrekkur í manni, en okkur líður vel og við sjáum enga ástæðu til að hætta við ferðina. Við höfum reyndar ekki ennþá sett niður akkeri þar sem við erum ein svo maður veit ekki hvernig kjarkurinn verður þá. En ég held að það verði ekki vandamál. Við erum að spá í að halda til eyjarinn- ar Saint Martin þar sem allt er tollfrjálst og endurnýja þar það sem var rænt.“ Kári segir ferðina hafa verið gamlan draum. „Ég hef alltaf haft áhuga á svona og dró konuna í þetta. Við vorum búin að undirbúa okkur í mörg ár, safna peningum og æfa okkur, sigldum meðal ann- ars í kringum Ísland. Svo skelltum við okkur í þetta þegar krakkarnir voru farnir að heiman. Við byrjuð- um ekki fyrir minna en tvö ár sem nú fara að verða komin. Ég held samt að við höldum áfram eins lengi og heilsa og fjármagn leyfir. Kannski stoppar maður í ár ein- hvers staðar og fer að vinna. Helst á stað þar sem maður getur lært spænsku í leiðinni. Þetta er ótrú- lega stresslaust líf. Ef maður gerir ekki eitthvað í dag þá gerir maður það bara á morgun. Ef okkur líkar einhver staður stoppum við þar kannski í tvo mánuði, en erum farin daginn eftir annars. Við stefnum að því að þaulkanna þenn- an heimshluta áður en við förum í gegnum Panamaskurðinn út á Kyrrahafið.“ Og áhöfnin á Lady Ann saknar hvorki veðursins né hraðans á Íslandi. „Ég held að það verði skrítið að koma aftur í stressið, svo ekki sé nú talað um veðrið,“ segir Kári. „Maður er fljótur að venjast hitanum hérna. Þegar við komum út klukkan sjö í morgun fannst okkur frekar svalt svo við gáðum á hitamælinn. Það var 27 stiga hiti.“ Enn að ná sér eftir sjóránið Lítt nýtt nöfn auðga málið Ekkert djók Aparnir vitrari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.