Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 71
Í síðustu viku tilkynnti sendiráð
Íslands í Kaupmannahöfn að á tólf
mánaða tímabili fram til 16. nóv-
ember árið 2007, þegar 200 ár
verða liðin frá fæðingu Jónasar
Hallgrímssonar, verði ráðist í átak
til að kynna Jónas Hallgrímsson í
dönsku samfélagi. Er þessi tilraun
fyrsta skipulega átakið til að koma
á framfæri þekkingu á lífsstarfi
Jónasar sem var að mörgu leyti
unnið á danskri grund og gegnsýrt
dönskum áhrifum, bæði í skáld-
skap, stjórnmálum og náttúruvís-
indum.
Örlög Jónasar hafa verið keim-
lík örlögum margra þegna frá
nýlendum Dana sem bjuggu og
störfuðu í Höfn: orðspor þeirra
hefur ýmist horfið alveg eða þeir
hafa verið teknir með húð og hári
inn í menningarsögu Dana og orðið
danskir. Má í því sambandi minn-
ast bæði Holbergs og Wessels sem
voru Norðmenn. Hópur íslenskra
skálda skóp verk sín jöfnum hönd-
um á dönsku og íslensku. Fennt
hefur í spor þeirra í Danmörku og
verk þeirra dönsk gleymd, spor
þeirra útmáð. Raunar gætir þess
víða að Danir eiga erfitt með að
horfa raunsönnum augum á sögu
sína sem nýlenduherrar.
Stofnað er til Jónasarársins af
sendiráðinu í Höfn. Samstarfsaðil-
ar eru Hús Jóns Sigurðssonar,
bókmenntaklúbburinn Thor,
Íslenski kvennakórinn í Kaup-
mannahöfn og kórinn Staka og
Dansk-Islandsk Samfund, auk fyr-
irtækjanna Phil og søn undir for-
ystu Sørens Langvad og Kaup-
þings undir forystu Sigurðar
Einarssonar. Phil og søn og Kaup-
þing styrkja þau viðfangsefni sem
bíða eftir því sem hátíðaárinu
vindur fram. Er ætlunin að minn-
ast Jónasar Hallgrímssonar á
margan hátt á þessu tímabili og
efna til menningarviðburða af
ýmsu tagi. Afmælisdagskráin
hefst strax á þessu ári með bók-
menntadagskrá í Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn á fimmtudag kl. 19.30.
Þar verður lesið úr verkum Jónas-
ar og sungin lög við ljóð hans.
Umsjón með dagskránni hefur
Böðvar Guðmundsson skáld.
Á vordögum 2007, verður efnt
til hópferðar undir leiðsögn farar-
stjóra til Sorø þar sem Jónas bjó
um tíma. Einnig verður farið með
fararstjóra í gönguferð um Kaup-
mannahöfn á þær slóðir sem tengj-
ast dvöl Jónasar þar. Hinn 19. maí
mun núverandi garðprófastur á
Regensen, stúdentagarðinum þar
sem Jónas bjó á námsárum sínum
ásamt fjölda annarra íslenskra
Hafnarstúdenta, Erik Skyum-Niel-
sen, ganga með gestum um stað-
inn og segja sögu hans. Haustið
2007 verður haldin ráðstefna um
Jónas Hallgrímsson og verk hans,
og Jónasarári lýkur svo á svipað-
an hátt og það hófst, með bók-
mennta- og tónlistardagskrá í
Jónshúsi 16. nóvember. Þar verð-
ur m.a. kynnt ný bók sem nú er í
smíðum, með úrvali úr ljóðum
Jónasar Hallgrímssonar á dönsku.
Það er danska ljóðskáldið Søren
Sørensen sem þýðir ljóðin en inn-
gang bókarinnar skrifar Matthías
Johannessen.
Afmælisárs Jónasar minnst í Danmörku
AMPOP
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
SKÍTA-
MÓRALL
SÍÐASTI DANSLEIKUR*
* Í BILI!
HÚSIÐ OPNAR KL. 24.00
MIÐAVERÐ 1500 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
HÚSIÐ OPNAR KL. 22.00
MIÐAVERÐ 1500 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
25
24
„SAIL TO THE MOON“