Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 33
Ástralski fjárfestingabankinn Macquarie og bandaríska fjárfest- ingafélagið Texas Pacific hafa gert yfirtökutilboð í ástralska flugfélagið Qantas, eitt stærsta flugfélag landsins. Ekki liggur fyrir hversu hátt tilboðið er en talið er að það hljóði upp á allt að 10,3 milljarða ástralskra dala eða 563,7 milljarða íslenskra króna. Tilboðið hefur fengið mikla umfjöllun í Ástralíu en lög þar í landi kveða á um að erlendir fjár- festar megi ekki eignast meira en 49 prósent í félagi á borð við Qantas. Sameiginlegt tilboð fjár- festa jafnt í Ástralíu og utan land- steinanna þykja því setja nokkra pressu á stjórnvöld heimafyrir. Þá hafa verkalýðsfélög í Ástralíu sömuleiðis áhyggjur af málinu og hefur Doug Cameron, formaður eins stærsta verkalýðs- félags Ástralíu, biðlað til John Howards, forsætisráðherra Ástral- íu, að hann beiti sér í málinu. Ótt- ast er að fjölda manns verði sagt upp og að eignir flugfélagsins verði seldar. Fari svo muni Ástralir sniðganga flugfélagið, að sögn Camerons. Ástralski fjárfestingabankinn Macquarie hefur verið orðaður við nokkrar yfirtökur en gerði meðal annars árangurslaust yfir- tökutilboð í Kauphöll Lundúna í Bretlandi fyrr á þessu ári. Ástralir óttast yfir- töku á flugfélagi Franski símtækjaframleiðandinn Alcatel hefur höfðað mál gegn bandaríska hugbúnaðarrisanum Microsoft fyrir brot á rétthafalög- um. Ekki liggur fyrir hvaða brot Alcatel telur að Microsoft hafi framið að öðru leyti en því að þau tengjast stafrænum myndaskrám og netsamskiptakerfum. Microsoft segir málið tengjast samrunaferli Alcatel við banda- ríska símtækjaframleiðandann Lucent Technologies sem stefnt er að gangi í gegn fyrir árslok. Þegar það verður að veruleika verður til annar stærsti símtækjaframleið- andi í heimi. Símtækjafyrirtæki stefnir Microsoft Gengi bréfa í banda- ríska netfyrirtækinu Google er komið yfir 500 dali eða rúmar 35.000 krónur á hlut en gengið hefur aldrei verið hærra. Gengi bréfanna fór hæst í 510 dali á hlut í viðskiptum á Nasdaq-markaðnum vestanhafs í fyrra- dag en lokaði í 509,65 dölum. Að sögn breska ríkisútvarpsins er ástæðan fyrir hækkuninni góðar væntingar fjárfesta um aukinn vöxt hjá Google og meiri tekjur af aug- lýsingum í kassann. Þá hefur fyrir- tækið, sem keypti netveituna YouTube fyrir nokkru, sömu- leiðis hagnast á sam- drætti hjá samkeppnis- aðilanum Yahoo, sem hefur horft upp á 38 prósenta sam- drátt í auglýsingatekjum. Metgengi á Google Breska kapalsjónvarpsstöðin NTL gerði yfirtökutilboð í sjónvarps- stöðina ITV, eitt stærsta einka- rekna sjónvarpsfélag í Bretlandi um síðustu helgi. Tilboðið hljóðaði upp á 4,7 milljarða punda eða 646,5 milljarða krónur. Stjórn ITV hafnaði hins vegar tilboðinu á mánudagskvöld enda taldi hún það alltof lágt og raunar svo fjarstæðukennt að ekki þótti taka því að boða stjórn NTL til við- ræðna um tilboðið. Einn af stærstu eigendum NTL er breska félagið Virgin Group, sem er í eigu breska auðkýfings- ins Richard Bransons. Þykir til- boðið bera merki um reiði Bran- sons vegna kaupa bresku gervihnattastöðvarinnar British Sky Broacasting (BSkyB), sem meðal annars rekur samnefnda sjónvarpsfréttastofu og fjölda sjónvarpsstöðva í Bretlandi, á 17,9 prósenta hlut í ITV á föstudag í síðustu viku. Eftir kaupin ræður BSkyB 19,9 prósentum hlutafjár í ITV. Fari hluturinn yfir 20 prósent verður félagið yfirtökuskylt. Eigandi BSkyB er fjölmiðla- kóngurinn Rupert Murdoch, sem einnig á stóran hlut í NTL ásamt Branson. Breska dagblaðið Times hefur eftir heimildamanni sínum að stór eignahlutur BSkyB í ITV hafi ekk- ert haft að segja um ákvörðun stjórnarinnar að taka ekki tilboði NTL í félagið. ITV felldi tilboð NTL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.