Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 80
„Ég myndi frekar láta höggva af mér hinn fótinn heldur en að ganga í gegnum svonalagað aftur,“ sagði Heather Mills í bandaríska spjall- þættinum Extra sem nú sýnir hluta úr viðtalinu á hverju kvöldi í þessari viku. Mills hefur átt undir högg að sækja í breskum fjölmiðlum en þeir hafa verið duglegir við að mála hana sem skrattann á vegg- inn í hjónabandi hennar og Pauls McCartney. Mills vísaði öllum ásökunum á bug um að hún væri eingöngu á eftir peningum bítils- ins fyrrverandi og sagðist hafa verið gerð að þorpara fyrir það eitt að falla fyrir átrúnaðargoði bresku þjóðarinnar. „Ég gerði ekk- ert rangt af mér annað en að verða ástfangin,“ sagði Mills í tilfinn- ingaþrungnu viðtali. Fyrirsætan fyrrverandi lýsti því yfir að skilnaðurinn og fjöl- miðlasirkusinn hefði verið það skaðlegur fyrir sig að hún ætlaði aldrei aftur að gifta sig. „Ég myndi frekar vilja missa annan útlim en að ganga í gegnum þetta. Stað- reyndin er sú að þegar þú missir til dæmis fótinn þá færðu annan í staðinn og það er ljós í myrkrinu,“ sagði Mills. Heather vildi ekki tjá sig um þær ásakanir að hún hefði verið vændiskona á sínum yngri árum. Svaraði því til að það sem hefði komið fyrir í hennar lífi væri hennar mál. „Og hverjir eru þeir sem kasta steinum úr glerhúsi?“ sagði Heather. Mills segir skilnaðinn hafa verið helvíti Hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur hefur skipað sér fast- an sess í félagslífi grunnskóla- nema undanfarin ár en þetta er í sautjánda sinn sem keppnin er haldin. Á þriðjudaginn var úrslita- kvöld keppninnar og voru það Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Hagaskóli, Hvassaleitisskóli, Langholtsskóli og Seljaskóli sem kepptu til úrslita. Keppnin var haldin í Borgarleikhúsinu og er óhætt að segja að það hafi verið fullt út úr dyrum. Það var Langholtsskóli sem bar sigur úr býtum en þetta er í fyrsta sinn sem skólinn vinnur. Í atriði þeirra var mörgum ólíkum dans- stílum blandað saman við frum- lega búninga. Hagaskóli lenti í öðru sæti og Álftamýrarskóli í því þriðja. Hljómsveitin Á móti sól skemmti áhorfendum milli atriða en þeir eiga einmitt heiðurinn að Skrekkslaginu sem þeir sungu við gífurlegan fögnuð viðstaddra. Langholtsskóli sigraði Kevin Federline gefur ekkert eftir í skilnaðarmáli sínu og Britney Spears en hann hyggst beita öllum brögðum til að fá forræði yfir strákunum þeirra tveimur. The Sun greinir frá því að Fed- erline muni upplýsa að Britney Spears sé tvíkynhneigð og hafi oftar en ekki grátbeðið hann um að fá stúlku til að slást í hópinn með þeim í kynlífinu. Federline mun jafnframt greina frá því að Spears hafi margoft trúað honum fyrir því að hún þráði konur engu síðri en karla. Fjölmiðlasérfræðingar segja þetta vera lymskufullt bragð hjá rapparanum til að koma höggi á fyrrverandi eiginkonu sína og tryggja sér smá forskot í þeim ljóta skilnaði sem virðist vera í uppsiglingu. Fjölmiðlar bíða spenntir eftir útspili frá herbúðum Spears en hún hefur verið þögul sem gröfin og virðist njóta þess að vera laus við eiginmann sinn. Náinn fjölskyldumeðlimur Fed- erline lét hafa eftir sér í samtali við The Sun að rapparinn og dans- arinn væri tilbúinn til að láta allt flakka í dómsölum um samband sitt og Britney. Þá er orðrómur um að Federline sé að skrifa bók um sambandið og þar verði síst dregið undan lýsingum á vanhæfni Spears sem móður. Federline er sagður ætla að gera miklar kröfur um framfærslueyri vegna skilnaðar- ins en K-Fed, eins og hann er jafn- an kallaður, frétti af honum í gegn- um sms-skeyti sem Britney sendi honum fyrir tveimur vikum. The Sun greinir jafnframt frá því að þrátt fyrir þessar yfirlýs- ingar muni hjónakornin fyrrver- andi berjast hart gegn þeim orð- rómi að þau hafi gert kynlífsmyndband en það gengur nú kaupum og sölum á netinu. Ljótur skilnaður í vændum Bandarísku tónlistarverð- launin voru veitt á þriðju- daginn var í Los Angeles. Að venju fjölmenntu helstu stjörnur tónlistarbransans og víðar á hátíðina og skört- uðu sínu fegursta. Stjörnur kvöldsins voru tvímæla- laust hljómsveitin Black Eyed Peas sem sópaði til sín þremur verðlaun- um, fyrir bestu rapp- og hiphop- plötuna, sem besta rapp og hiphop- hljómsveitin og besta sálarhljómsveitin. Hún vann til flestra verðlauna af öllum öðrum á hátíðinni en Red Hot Chili Pepp- ers, Mary J. Blige og Kelly Clark- son fylgdu fast á hæla þeirra með tvenn verðlaun hver. Leikarinn Jamie Foxx var val- inn besti sálartónlistarmaðurinn en hann er betur þekktur fyrir leik- hæfileika sína. Beyonce, Gwen Stefani og Nelly Furtado tróðu upp við mikinn fögnuð áhorfenda. Glæsilegt tónlistar- kvöld í Los Angeles Söngkonan Madonna sem hefur verið mikið í fjölmiðlum vegna ættleiðingar sinnar á afríska drengnum David er þegar búin að undirbúa ættleiðingu númer tvö. Söngkonan heimsfræga hafði heillast af telpunni Jessicu sem er frá Malaví en foreldrar stúlkunn- ar höfðu ákveðið að leyfa trúboða í Ástralíu að ættleiða hana. „Við vissum af áhuga Madonnu á Jess- icu en ferlið tekur svo langan tíma að við völdum hina fjölskylduna í staðinn,“ sögðu foreldrarnir við fjölmiðla. Madonna hefur þó sagt að hún sé ekki hætt við að bæta börnum í fjölskyldu sína en hún á þrjú börn með manni sínum Guy Richie. Völdu ekki Madonnu Franski rafdúettinn Air gefur út næstu plötu sína, Pocket Symphony, 6. mars á næsta ári. Auk meðlima Air, þeirra J. B. Dunckel og Nicolas Godin, syngja á plötunni þeir Jarvis Cock- er úr Pulp og Neil Hannon úr Divine Comedy. Upp- tökustjóri var Nigel Godrich, sem m.a. stjórnaði upptökum á OK Computer með Radiohead. Asísk hljóðfæri koma mikið við sögu á plötunni og játar Duncel að Air hafi breytt svolítið um stefnu en hinn sérstæði hljómur sveitar- innar sé þó enn til staðar. Asísk áhrif
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.