Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 8
ÉG VANN FERÐ FYRIR TVO Á ENSKA BOLTANN! Nöfn heppinna Safnkortshafa eru dregin út vikulega í ferð fyrir tvo á Enska boltann. Síðasti útdráttur 25. nóvember. Það borgar sig að nota Safnkortið! www.safnkort.is – OG ÞAÐ EINA SEM ÉG GERÐI VAR AÐ NOTA SAFNKORTIÐ HJÁ ESSO F í t o n / S Í A Sigríður Ingþórsdóttir Safnkortsvinningshafi: fylgir hverri OROBLU vöru Kaupauki LIDO sokkabuxur PEARL hlýrabolur á n‡ju vetrarvörunum frá OROBLU í Lyfju KYNNINGAR Föstudag, kl. 14-18 í Lágmúla og Smáralind Laugardag, kl. 12-16 á Laugavegi Fimmtudag, kl. 14-18 á Selfossi Fimmtudag, kl. 13-17 á Smáratorgi Gísli Marteinn Bald- ursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir að ekki sé ljóst nákvæmlega hvaða kostnaðarliðum við framkvæmd Sundabrautar sé frestað með því að leggja aðeins hundrað milljónir í verkefnið á næsta ári. Gísli Marteinn segir að fjárhæðin dugi ágætlega í undirbúningsvinnu og hönnun. Í nýlegu frumvarpi fjármála- ráðherra um ráðstöfun hluta sölu- andvirðis Landssímans er lagt til að hundrað milljónum verði varið til Sundabrautar í stað þeirra 1.500 milljóna sem fyrirhugað var á næsta ári. Á móti kemur að fram- lögin árið 2009 nema 3.900 millj- ónum, í stað 2.500 áður. Gísli Marteinn segir að borgar- stjórnarmeirihluti Sjálfstæðis- flokksins standi við loforð sitt um að taka ákvörðun um legu Sunda- brautar fyrir árslok og þá verði hægt að hefjast handa. „Þegar ákvörðunin hefur verið tekin tekur við hönnunarferli. Það er ekki hægt að hanna fyrr en vitað er hvort Sundabraut verður grafin ofan í jörðina eða fer upp á fimm- tíu metra háa brú,“ segir hann. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra segir að undirbúningur við Sundabraut hafi aldrei komist á það stig að framkvæmdinni væri stillt upp í verkáfanga og því sé ekki hægt að segja hverju hafi verið frestað. Ekki stillt upp í verkáfanga Samkvæmt grófri áætlun er gert ráð fyrir 450 til 500 sjálfssköðum fullorðins fólks á ári hverju undanfarin ár, segir Sig- urður Páll Pálsson, geðlæknir á geðsviði Landspítala-háskóla- sjúkrahúss, spurður um sjálfs- vígshættu hjá fullorðnum. Sigurður segir að um sé að ræða lágmarkstölur fyrir árin 2003 og 2004 en þá hafi mátt gera ráð fyrir 450 til 500 sjálfssköðum að lágmarki á hvoru ári fyrir sig. Kynjaskiptingin sé 38 prósent karlar og 62 prósent konur. Um 20 prósent af þessum hóp komi mar- goft af þessum sökum. Meðalald- ur heildarfjöldans sé tiltölulega lágur, langt undir fertugu. Kon- urnar hafi alltaf verið mun yngri en karlarnir. „Þetta er ekki gamalt fólk,“ segir Sigurður Páll. „Sjálfsvígstil- raunir hjá gömlu fólki eru alltaf alvarlegri heldur en hjá þeim yngri. Þær takast yfirleitt, bæði vegna alvarleika ákvörðunar og hins, að líkaminn er viðkvæmari og þolir minna.“ Sigurður Páll bendir á að sjálfs- skaði sé víðara hugtak heldur en sjálfsvígstilraun, enda sé í mörg- um tilvikum erfitt að skilja þar á milli. Hann segir að verið sé að vinna að flokkun sjálfsskaða í beinar sjálfsvígstilraunir og aðra sjálfsskaðandi hegðun. Kominn sé vísir að flokkun og sískráningu á slysa- og bráðadeild LSH og lyfja- deild spítalans, en þangað komi fólk sem hefur skaðað sig yfirleitt fyrst. Aðeins brot af því fari inn á geðdeild. Svo sé hópurinn sem skaði sig en leiti sér ekki aðstoðar. Það sé því ýmsum erfiðleikum háð að fá heildaryfirsýn yfir fjölda sjálfsvíga og einstaklinga sem skaða sig. Á árunum 1990 til 2005 sviptu 518 Íslendingar sig lífi, að því er fram kom í svari Sivjar Friðleifs- dóttur heilbrigðisráðherra á Alþingi nýverið. Rúmlega fjögur hundruð karlar sviptu sig lífi á tímabilinu og rúmlega hundrað konur. Á tímabilinu tóku 180 manns undir þrítugu líf sitt, 165 karlar og 15 konur. Samkvæmt skráningu Hagstof- unnar urðu alls 33 sjálfsvíg á Íslandi á síðastliðnu ári. Af þeim sem ákváðu að taka sitt eigið líf voru 24 karlar og níu konur. Tveir einstaklingar voru undir 20 ára aldri en alls voru sex einstakling- ar sem sviptu sig lífi á aldrinum 16-30 ára, allt karlmenn. Konurn- ar sem fyrirfóru sér voru á flestar á aldrinum 41-60 ára, eða sjö tals- ins. Átján karlmenn á aldrinum 31-60 ára frömdu sjálfsvíg. Konur skaða sig frekar en karlmenn Áætlað er að 450 til 500 fullorðnir einstaklingar skaði sig með einhverjum hætti á ári hverju, sumir vegna tilraunar til sjálfsvígs en aðrir af öðrum orsökum. Konur skaða sig um það bil tvöfalt oftar en karlar. Haraldi Hannesi Guðmundssyni, 36 ára ljósmynd- ara, er enn haldið sofandi á sjúkrahúsi í Lundúnum. Læknar telja hann í lífshættu og hefur svo verið síðan á sunnudagsmorgun þegar þrír hettuklæddir menn réðust að honum skammt frá heimili hans. Haraldur er með alvarlega höfuðáverka. Sr. Sigurður Arnarson, sendiráðsprestur í Lundúnum, segir að árásin hafi verið fólskuleg og að því er virðist tilefnislaus, en Haraldur var að hjóla í hverfinu þegar ráðist var á hann. Stofnaður hefur verið reikn- ingur fyrir Harald hjá SPRON, nr. 1150-26-2600, kt. 070970-4229 Haldið sofandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.