Fréttablaðið - 23.11.2006, Page 32
Olíubirgðir í Bandaríkj-
unum jukust talsvert
á milli vikna. Þetta
er langt umfram spár
greiningaraðila, sem
óttustu frekari hækkun
á hráolíuverði. Líkur
eru nú taldar frekari á
lækkunum.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu
hefur sveiflast í kringum 60 dala
markið í vikunni, bæði vegna
óþreyjufullra fjárfesta sem biðu
vikulegrar skýrslu bandaríska
orkumálaráðuneytisins um stöðu
olíubirgða í landinu og vegna
óvissu um hvort aðildarríki Sam-
taka olíuútflutningsríkja, OPEC,
verði samstíga í að draga úr fram-
leiðslu á hráolíu til að koma í veg
fyrir frekari verðlækkun á hráol-
íu.
Þá hafa skærur við ósa Nígerár
í Nígeríu haft sitt að segja um
sveiflur á hráolíuverði upp á síð-
kastið. Sjö starfsmenn olíuvinnslu-
fyrirtækis frá Ítalíu voru teknir í
gíslingu þar í landi á dögunum en
ekki er búist við að það hafi haft
jafn afgerandi áhrif á olíuverð nú
og í sumar.
Í vikulegri skýrslu orkumála-
ráðuneytsins, sem birt er á mið-
vikudögum, kemur fram að olíu-
birgðir vestanhafs hafi aukist um
5,1 milljón tunna á milli vikna og
nema olíubirgðir Bandaríkjanna
341,1 milljón tunna. Þetta er þvert
á spá greiningaraðila sem voru
óvissir um endanlega niðurstöðu.
Bandaríska fréttaveitan Bloomb-
erg sagði greiningaraðila vestra
hafa sett sig í stellingar fyrir 1,1
milljón tunna samdrátt á milli
vikna. Fréttastofa Reuters taldi
hins vegar líkur á aukningu upp á
600 þúsund tunnur á milli vikna.
Heilar sjö vikur eru síðan olíu-
birgðir jukust síðast á milli vikna í
Bandaríkjunum og horfa nokkrir
fram á frekari lækkun á hráolíu-
verði.
Verð á hráolíu, sem afhent
verður í næsta mánuði hækkaði
um 3 sent á markaði í New York í
Bandaríkjunum í gær og fór í
59,85 dali á tunnu. Daginn áður
hafði verðið talsvert meira eða um
1,37 dali og fór tunnan af hráolíu í
60,17 dali eða í rúmar 4.300 krón-
ur.
Í kjölfar skýrslu orkumála-
ráðuneytisins tók verðið hins
vegar snarpa dýfu og fór niður í
um 59 dali á tunnu skömmu eftir
að skýrslan var birt.
OPEC ákvað í síðasta mánuði
að draga olíuframleiðslusaman
um 1,2 milljónir tunna á dag. Ein-
hugur var hins vegar ekki um nið-
urskurðinn og hafa fram til þessa
fáar þjóðir tilkynnt um samdrátt.
Greiningardeild Glitnis segir
talsverðar efasemdir um að aðilda-
ríki OPEC hafi nú þegar minnkað
olíuframleiðslu sína. Um þessar
mundir séu verðráðssamtökin að
velta fyrir sér frekari samdrætti
en óvíst sé hvort það nái fram að
ganga því mjög freistandi sé að
framleiða og selja olíu á núver-
andi verðum.
Þá segir deildin að gera megi
ráð fyrir verulegri aukningu á eft-
irspurn eftir olíu vegna framþró-
unar á Indlandi og í Kína. Evrópu-
sambandið situr nú við
samningaborðið með Rússum þar
sem markmiðið er að gera lang-
tímasamninga um olíu og gas.
Stefni Evrópusambandið að því að
tryggja sér nægar orkubirgðir
næsta áratuginn, samkvæmt
greiningardeild Glitnis.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu
náði sögulegu hámarki um miðjan
júlí í sumar í kjölfar hræringa
fyrir botni Miðjarðarhafs þegar
Ísraelsher réðst gegn Hizbollah-
skæruliðum í Líbanon. Verðið
rauk á nokkrum dögum upp í 78,40
dali á tunnu en hríðlækkaði svo
mánuði síðar í kjölfar vopnahlés á
milli stríðandi aðila. Verðið hefur
lækkað jafnt og þétt síðan þá og
hefur farið niður um tæpa 20 dali
á tunnu frá því það stóð í hámarki
í sumar.
Álrisinn Alcoa, sem auk þess að
hafa starfsemi um heim allan
rekur álver á Reyðarfirði, til-
kynnti í gær að til stæði að leggja
niður 6.700 störf. Nemur það um
fimm prósentum af 129 þúsund
starfsmönnum Alcoa í 44 löndum.
Niðurskurðurinn er hluti af end-
urskipulagningu sem ætlað er að
auka hagnað og skilvirkni, að því
er fram kemur á heimasíðu fyrir-
tækisins.
Fyrirtækið tilkynnti jafnframt
um áætlanir þess efnis að sameina
mjúkmálmvinnsluhluta Alcoa við
þann hluta Sapa Group, sem er
hluti af norsku samstæðunni Orkla
ASA. Verður sameinað fyrirtæki
skráð á markað. Er öllum þessum
aðgerðum ætlað að spara fyrir-
tækinu sem nemur 125 milljónum
bandaríkjadala fyrir skatt á ári
hverju, eða sem nemur tæpum níu
milljörðum íslenskra króna.
Starfsmenn Alcoa hér á landi
koma ekki til með að finna fyrir
niðurskurðinum að sögn Ernu Ind-
riðadóttur, upplýsingafulltrúa
Alcoa Fjarðaráls. „Það er aðallega
verið að hagræða og endurskipu-
leggja í grein sem hefur ekki geng-
ið nógu vel. Þetta hefur engin áhrif
á uppbyggingu álvera enda er mikil
gróska þar og stendur til að reisa
ein átta álver á stærð við Fjarðaál
á næstu árum. Talið er að eftir-
spurn eftir áli muni stóraukast á
næstu árum, meðal annars vegna
þess að Kínverjar og Indverjar eru
að verða stórir notendur.“
Alcoa leggur niður 6.700 störf
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s
hefur hækkað matseinkunn norska
tryggingafélagsins NEMI ASA úr
BBB- í BBB.
Einkunnin var lækkuð í sept-
ember eftir að kaup TM á félaginu
voru fjármögnuð með víkjandi
láni. Matseinkunnin hefur nú verið
tekin af lánshæfislista (e. Credit-
Watch) Standard & Poor‘s. Þá segir
fyrirtækið að horfur matsins séu
stöðugar. Greiningardeild Glitnis
segir frá því að í rökstuðningi
Standard & Poor‘s komi fram að
ástæða hafi þótt til að hækka mats-
einkunina í framhaldi af jákvæðri
niðurstöðu nýafstaðinnar hluta-
fjáraukningar TM og breytinga á
hlutabréfasafni félagsins.
Einkunn NEMI
hækkar í BBB
Bakkavör hefur tekið yfir breska
fyrirtækið Fresh Cook Limited
sem hefur verið samrekstrarfé-
lag í eigu Bakkavarar og Rannoch
Foods síðan í október 2004. Fresh
Cook er 360 manna fyrirtæki sem
sérhæfir sig í framleiðslu á rétt-
um tilbúnum til eldunar. Stærsti
viðskiptavinurinn er verslana-
keðjan Marks & Spencer.
Þetta er önnur fjárfesting
Bakkavarar á skömmum tíma.
Fyrir skemmstu eignast félagið
breska kökuframleiðandann Rye
Valley Patisserie í Birmingham.
Það fyrirtæki framleiðir ostakök-
ur fyrir Sainsbury´s.
„Þetta eru fjárfestingar sem
eru gerðar með það fyrir augum
að styrkja stöðu okkar í einstök-
um vöruflokkum og ná fram sam-
legð og bættri framleiðni,“ segir
Ágúst Guðmundsson, forstjóri
Bakkavarar. „Það eru engin fjár-
hagslega sýnileg merki af þess-
um yfirtökum. Þær eru hins vegar
mikilvægar fyrir okkur til að
styrkja stöðu félagsins í þessum
vöruflokkum.“
Eftir kaupin er markaðsstaða
Bakkavarar um ellefu prósent í
framleiðslu á réttum tilbúnum til
eldunar. Þessi geiri vex hraðar en
markaðurinn með tilbúna rétti í
heild.
Að sögn Ágústar er Tesco enn
þá stærsti viðskiptavinur Bakka-
varar, en aðrar verslanakeðjur
eru einnig í miklum viðskiptum
við félagið.
Bakkavör hefur í hyggju að
loka loka gömlu höfuðstöðvum
Geest í Peterborough. Ágúst segir
að þar sé verið að reka smiðs-
höggið á samþættingu Bakkavar-
ar og Geest og verða aðalskrif-
stofur Bakkavarar í Lundúnum.
Bakkavör fer í önn-
ur taktísk kaup
Gömlu höfuðstöðvar Geest lagðar niður.
Olíubirgðir jukust í Bandaríkj-
unum langt umfram spár
365 fór lægst í 3,65
Sendum
til útlanda!
Áttu ættingja eða vini í útlöndum sem
komast ekki „HEIM“ um jólin sem þig
langar til að gleðja.
Við hjá Nóatúni getum hjálpað þér að færa þeim ekta
íslensk jól hvar sem er í heiminum.
Hjá Nóatúni færðu ekta íslenskar sælkeravörur sem fást
hvergi annars staðar í heiminum en skapa hinn eina og
sanna íslenska jólaanda.
Við sjáum um allan pakkann í samstarfi við DHL
jólamatinn
Hlutabréf í 365, útgefanda Frétta-
blaðsins, lækkuðu þriðja daginn í
röð eftir að Dagsbrún var skipt
upp í tvö félög. Lægst fór gengi
bréfanna í 3,65 krónur á hlut en
tók þá að hækka og endaði í 3,68.
Markaðsverðmæti 365 hefur
lækkað um fimmtung frá upp-
stokkuninni en bréf í Teymi hafa
lækkað mun minna eða um 4,8 pró-
sent.
Dagsbrún var metinn á 27,5
milljarða við skiptinguna en 365
og Teymi eru verðlögð samanlagt
á 24 milljarða króna í dag.