Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2006, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 23.11.2006, Qupperneq 36
Eru foreldrar alvondir?” spyr Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður Leikskólaráðs Reykja- víkurborgar, í fyrirsögn greinar sinnar í Fréttablaðinu 18. nóvem- ber sl. Til að sýna fram á að svo sé ekki bendir hún á tölur. En að mínu mati snýst umræðuefnið ekki fyrst og fremst um tölur, heldur viðhorf. Til að skilja betur hvað ég á við má skoða tiltölu- lega nýliðin viðhorf til aðbúnað- ar barna. Ekki eru margir áratugir síðan foreldrum var bannað að heimsækja börn sín á meðan þau dvöldu á sjúkrahúsi. Heimsóknir foreldra voru taldar hafa mjög truflandi áhrif á börnin. Þau söknuðu foreldra sinna sárt og létu það óspart í ljós. Börnin urðu þar af leiðandi ómöguleg að eiga við fyrir heilbrigðisstarfsfólkið. Foreldrum þótti þetta vitaskuld flestum óþægilegt, en létu þetta yfir sig ganga, frekar en að skor- ast á hólm við kerfið. Þá voru einnig starfræktar vöggustofur fyrir börn, sem ein- hverra hluta vegna gátu ekki notið uppeldis foreldra sinna. Margar einstæðar mæður neydd- ust til að nýta þessa þjónustu, til að geta unnið sína vinnu og dreg- ið fram lífið. Þá var því trúað að ungabörn þyrftu fyrst og fremst að vera södd og hrein og þurr á bossanum til að líða vel. Foreldr- um var eingöngu boðið upp á að sjá börnin sín í gegnum gler, m.a. til að komast hjá því að börnin smituðust af umgangspestum. Áhrif þessarar meðferðar rann- sakaði Sigurjón Björnsson, einn best menntaði barnasálfræðing- ur landsins á þeim tíma. Hann komst að því að börn sem ekki nutu ástúðlegrar örvunar og umhyggju eins og foreldrar veita, mynduðu ekki eðlileg til- finningatengsl síðar á lífsleið- inni. Á hverjum tíma eru ríkjandi skoðanir um hvað sé börnum fyrir bestu. Það er ekki rétt að foreldrar séu vondir – og þaðan af síður alvondir – þó að þeir fljóti með straumnum og rísi ekki gegn ríkjandi skipulagi. Foreldrar reyna flestir að vera góðir og margir eru frábærir. En þeir geta á öllum tímum verið illa uppfræddir og andvaralaus- ir. Foreldrar fá góða fræðslu á meðgöngutímabilinu. Fræðsla í tengslum við ungbarnaeftirlit er með ágætum. En þegar kemur að þroskasálfræði barnanna, er engri fræðslu haldið að foreldr- um. Hugsanlega trúa því einhverj- ir enn þann dag í dag að uppeldi barna sé best komið hjá fagfólki, en ekki hjá misvitrum foreldr- um. En þeir fjölmörgu sem efast um það, ættu að geta valið aðra leið fyrir sig og sína. Margir for- eldrar vita reyndar ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga þegar kemur að þessum málum. Flestir borga rúmlega 8 tíma á dag fyrir leikskólaplássið – og þá er ein- faldlega miðað við það sem eðli- legt fyrirkomulag. Hér þyrfti að fræða foreldra betur. Það sem hentar 5 ára barni hentar ekki endilega 2ja ára barni. Og enn yngri börn þurfa meira á óskiptri athygli fullorðinna að halda. Við hjónin höfum verið þeirr- ar gæfu aðnjótandi að hafa börn- in okkar í frábærum leikskóla reknum af Reykjavíkurborg. Við erum engir sérfræðingar í barna- sálfræði eða uppeldisfræði og hikum því ekki við að leita til fagfólks um ráð varðandi vistun- arúrræði og uppeldi. Eftir að nýjasta barnið bættist við fjöl- skylduna fórum við að huga að dagvistun eftir að fæðingaror- lofi lyki. Við ráðfærðum okkur við nokkra leikskólakennara sem höfðu reynst okkur vel. Við spurðum hvort að við ættum að setja telp- una á ung- barnadeild um eins árs aldurinn – eða á almenna leikskóla- deild þegar hún næði 2ja ára aldri. Okkur var hiklaust ráðlagt að bíða með vist- un þar til barnið yrði 2ja ára, ef við hefðum þess nokkurn kost. Við ákváðum að endurskoða áætlanir okkar – því skilaboðin voru skýr, frá öllum sem við leit- uðum til. Auðvitað hafa ekki allir mögu- leika á að bregðast við svona ráð- leggingum, vinnan kallar og eng- inn lifir á loftinu. En þarna þurfa opinberir aðilar, með fulltingi atvinnulífsins, að gefa fólki betri valkosti, til dæmis möguleika á lengra fæðingarorlofi, fyrir bæði kynin. Í sömu aðgerð væri skyn- samlegt að hvetja fólk til að nota fæðingarorlofið í þágu barnanna. Því miður eru til dæmi um for- eldra sem misnota fæðingaror- lofið og t.d. vinna ,,svart“, eða reyna að lækka forgjöf sína í golfi. Dæmi um aðra aðgerð sem gæti komið til móts við börn, væri ef vinnustaðir hjá hinu opinbera gengju á undan með góðu fordæmi og gæfu foreldr- um ungra barna kost á styttri vinnutíma. Fæstir vilja afturför í jafn- réttismálum, en öll getum við sameinast um framför í umönn- un ungra barna. Starf leikskól- anna hefur stórbatnað á undan- förnum árum. Nú orðið er auðveldara að fá þar inni, sem er mjög gott. Leikskólar kenna börnum ákveðna félagsfærni, sem börnin læra síður heima hjá sér. En innan fjölskyldunnar lær- ist líka ýmislegt, sem ekki verð- ur kennt á stofnun. Það þarf að hvetja foreldra til að vera sér meðvitaðir um mikilvægi þess sem lærist innan fjölskyldunnar. Því foreldrar eru bestir – fyrir börnin. Höfundur er móðir og dagskrárgerðarmaður. Foreldrar eru bestir Samkeppni er af hinu góða, í flestum tilfellum tryggir hún viðskiptavinum betra verð og aukin gæði þar sem hún, eðli máls- ins samkvæmt, leiðir til frekari árangurs í harðri baráttu fyrir- tækja við að laða til sín viðskipti. Til þess að afrakstur samkeppn- innar virki sem skyldi verður að gæta þess að jafnræði ríki á mark- aðinum og allir aðilar hafi jöfn tækifæri. Menntun er einn af hornsteinum samfélagsins, það er því hagur allra að virk samkeppni sé til staðar í menntakerfinu til þess að hámarka gæði náms. Í dag eru háskólar á Íslandi reknir bæði af ríki og einkaaðil- um. Töluverð mismunun á sér stað þegar kemur að rekstri þessara stofnana. Ríkisreknu háskólarnir fá endurgreiddan virðisaukaskatt af framkvæmdum meðan þeir einkareknu fá það ekki. Gefur það auga leið að þetta skekkir samkeppnisstöðuna svo um munar. Ríkisreknu háskólarnir geta m.a. komið sér upp aðstöðu fyrir mun minni kostnað heldur en einkaaðilar. Til eru fordæmi um að einkarekin hjúkrunarheimili fái endur- greiddan virðisauka- skatt af fram- kvæmdum og því fátt til fyrir- stöðu að það for- dæmi verði nýtt til að jafna samkeppnis- stöðuna í menntamálum sem, eins og hjúkrunarheimilin, teljast til ,,hálf opinberra fyrirtækja“. Það er hagur okkar allra að gæði menntunar sé eins góð og völ er á hverju sinni, enda er menntun undirstaða hagvaxtar og aukinna lífskjara í þjóðfélaginu. Því ætti að vera kappsmál fyrir stjórnvöld hverju sinni að sjá til þess að sam- keppni í menntamálum sé heil- brigð, gætt sé jafnræðis og að allar menntastofnanir sitji við sama borð. Ætli ríkið sér að vera í samkeppni við einkaaðila, ber því að sjá til þess að sú samkeppni sé byggð á jafnréttisgrundvelli, enda er annað tímaskekkja og til þess fallið að draga almennt úr sam- keppni og gæði náms. Því hvet ég eindregið þingmenn okkar sjálfstæðismanna til þess að taka þetta mál upp á Alþingi og standa undir nafni sem sannir boð- berar frelsis og sjálfstæðisstefn- unnar í heild sinni. Höfundur er formaður Miðgarðs, félags sjálfstæðismanna á Bifröst. Jöfnum stöðu íslenskra háskóla En þarna þurfa opinberir aðil- ar, með fulltingi atvinnulífsins, að gefa fólki betri valkosti, til dæmis möguleika á lengra fæðingarorlofi, fyrir bæði kynin. Í sömu aðgerð væri skynsamlegt að hvetja fólk til að nota fæðingarorlofið í þágu barnanna. Ég er á fullu í próf-kjöri. Tel það skyldu mína auk þess sem það er bráðskemmtilegt. Það virðist þó vera hálf- gert „tabú“ að hafa gaman af þessu standi og helst á baráttan að byggjast á þurrpumpu- legum upptalningum á afreksverkum og göfugum fyrir- ætlunum. Ég er auðvitað ekkert betri en aðrir en ég hef þó tak- markað mig við það að ég ætla að sinna „hörðu“ málunum. Úrlausn- um mála er knýja áfram þjóðfé- lagið og bera uppi „mjúku“ málin. Hinir sextíu og tveir geta þá sinnt „mjúku“ málunum af fullum þunga. „Hörðu“ málin eru þau mál er snúa að erfiðum ákvörðunum, snúa að samgöngum, stóriðju, stórvirkjunum. Snúa að aðgengi fólks að sínu eigin landi, að umhverfi og skipulagi. Sjálfsagt tryllast þeir sem alltaf hafa gert út á það „að gera allt fyrir alla“ og verið jafnframt á móti öllu, vegna þessara ummæla minna. Þá er þó til einhvers af stað farið. Einhver prófkjörshúmoristi kom með það innlegg að eðlilegt og sjálfsagt væri að selja nýkeypta Landsvirkjun. Það er firra. Það fyrirtæki er nú loks laust úr her- kví óeðlilegrar eignaraðildar og kemur auðvitað ekki til mála að selja það. Nú loks getur fyrirtæk- ið tekið sjálfstæðar ákvarðanir, starfað eðlilega, aukið verðmæti. Það má reyndar skoða sölu á Landsvirkjun þegar prófkjörhúm- öristinn getur alls stað- ar náð í mig í farsíma á ferð minni um kjör- dæmi mitt. Það getur hann ekki nú. Sala Sím- ans hefur einmitt leitt til ömurlegrar þjónustu við viðskiptavini þess fyrirtækis og verum minnug þess að einokun er ekkert betri þó hún sé einkarekin fremur en ríkisrekin. Mikið er rætt um kynjaskiptingu á listum stjórn- málaflokka og er nú svo komið að ég hef æft mig í því að pissa sitj- andi þar sem það ætti að vera lík- legt til lukku í prófkjörum. Og ég get vottað að þetta er miklu snið- ugri aðferð, snyrtilegri en þó ekki eins umhverfisvæn og vissulega seinlegri. Stjórnmál ættu í eðli sínu að vera kynlaus og er miður að fólki sé mismunað vegna kyn- ferðis. Ég get því með góðri sam- visku hvatt konur til að styðja mig. Ég hef upplifað þennan reynsluheim. Að lokum, prófkjör Sjálfstæð- isflokksins í Norðausturkjördæmi fer fram laugardaginn 25. nóvem- ber. Ég sækist eftir þingsæti. Höfundur er er tannlæknir á Húsavík og tekur þátt í prófkjöri. Um málin mjúk og hörð í prófkjöri Ríkisreknu háskólarnir fá endurgreiddan virðisaukaskatt af framkvæmdum meðan þeir einkareknu fá það ekki. Sala Símans hefur einmitt leitt til ömurlegrar þjónustu við viðskiptavini þess fyrirtækis og verum minnug þess að einokun er ekkert betri þó hún sé einka- rekin fremur en ríkisrekin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.