Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 39
Í París eru nokkur hverfi sem skera sig frá öðrum þegar tískan er
annars vegar. Með tímanum breytist þó borgin og heitustu hverfin
sömuleiðis. Auðvitað standa Avenue Montaigne sem er dýrasta gata
Parísar og Rue Faubourg Saint Honoré alltaf fyrir sínu og þangað
fara allir sem hafa þörf á að losa sig við seðlabúnt í tískuhúsunum. En
fleiri má nefna. Hinum megin við Faubourg St. Honoré er Rue Saint
Honoré sem löngum hefur verið þekkt fyrir „straumabúðina“ Chez
Colette þar sem meira að segja hafa verið seldar íslenskar silkislæður.
Einnig liggur hún gegnum þekktar götur eins og Rue Cambon þar
sem finna má fyrsta og stærsta tískuhús Chanel í Evrópu og Place
Vendôme en á því torgi eru frægustu skartgripabúðir Parísar ásamt
Ritz hótelinu. Verslanirnar hafa þó almennt ekki þótt áhugaverðar í
götunni sjálfri. Þetta er þó að breytast og í haust hafa nokkrar tísku-
verslanir komið sér fyrir við Rue Saint Honoré. Engin þeirra er þó
frönsk heldur er þar um bandarískar og nokkrar ítalskar búðir að
ræða.
Ekki er svo langt síðan Hugo Boss opnaði stóra verslun á Champs-
Elysée-breiðgötunni eins konar „megastore“ sem hefur fengið mjög
góðar viðtökur síðan hún var opnuð fyrir tveimur árum. Nú heldur
Hugo Boss áfram útþenslu sinni í París og opnaði í októberlok á Rue
St. Honoré nýja og glæsilega verslun þar sem tafl innst í búðinni á
heilum vegg er sérstaklega eftirtektarvert. Annar hönnuður kemur
sömuleiðis frá Bandaríkjunum en það er Tommy Hilfiger sem hefur
verið í mikilli markaðssókn hérna megin við Atlandshafið og blandar
sér nú í samkeppnina hér í París en Tommy Hilfiger þykir einn sá
sterkasti í hópi bandarískra hönnuða.
Brooks Brothers er einnig bandarískt fyrirtæki þar sem seldur er
fallegur fatnaður sem er fyrir herra það sem Prada er fyrir konur.
Brooks Brothers er tveggja alda gamalt fyrirtæki en stofnandinn,
Henry Sands Brooks, kom fyrir um tvö hundruð árum til Frakklands
að kaupa efni til fataframleiðslu. Þó er það ekki fyrr en nú, 2006, að
fyrsta búðin opnar hér í landi. Hún er reyndar nákvæm eftirlíking af
musteri klassísismans, tískuhúsi Brooks Brothers á hinu fræga
Madison Avenue í New York.
Ekki má heldur gleyma ítölsku tískuhúsunum en Miu Miu opnaði í
september í St. Honoré. Það er ódýrari lína Prada og dregur nafn sitt
af gælunafni Miuccia Prada. Ermenegildo Zegna opnaði fyrir nokkr-
um vikum svo eitthvað sé nefnt.
Það er því þess virði að ganga upp frá Palais Royal-Louvre hverf-
inu, upp alla Rue St. Honoré og halda svo áfram upp Faubourg St.
Honoré allt út að Hótel Bristol. Endalaus tískuganga í paradís kaup-
fíkla með öllu milli himins og jarðar. Í það minnsta tveggja daga
vinna.
Franskt tískufyrirtæki sneiddi fram hjá ungum og grönnum fyrir-
sætum með því að fá mæðgur til að kynna fatalínuna.
Þeir sem fletta erlendum tískublöðum hafa eflaust rekist á nýjustu
auglýsingaherferð Comptoir des cotonniers, þar sem mæðgur eru í
aðalhlutverki.
Fyrirtækið, sem er með tískuverslanir í París, ákvað að notast venju-
legar mæðgur til að kynna haust- og vetrarlínu sína.
Á vefsíðu Comptoir des cotonniers var hægt að leggja inn umsókn og
bárust þeim fjölmargar. Mægðurnar sem voru valdar voru á öllum aldri
og af ólíkum kynþáttum. Bæði sýndu þær fötin á tískupöllunum auk
þess sem teknar voru af þeim ljósmyndir en hér má sjá nokkrar þeirra.
Móðir og dóttir VE
TU
R
0 6 | 07
M C P L A N E T
A U S T U R H R A U N I 3
2 1 0 G A R ‹ A B Æ
S Í M I 5 3 3 3 8 0 5
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI