Fréttablaðið - 23.11.2006, Qupperneq 66
„Ég vil hafa jólalykt og
jólastemningu í mánuð fyrir
jól. Mér finnst það róandi og
þægilegt í skammdeginu.”
Hljómsveitin Á móti sól fagnar tíu ára
starfsafmæli í ár. Í tilefni af því kemur
út ný plata í dag sem inniheldur vin-
sælustu lög sveitarinnar frá upphafi
en þetta er sjöunda plata hljómsveitar-
innar. Útgáfunni fylgir veglegur bækl-
ingur þar sem saga sveitarinnar er
rakin í máli og myndum. Hljómsveitin
fagnar afmælinu og útgáfunni með
sannkölluðum stórdansleik í Sjallanum
á Akureyri á laugardagskvöld.
Segja má að sveitin standi nú á
hátindi ferils síns, enn sem komið er að
minnsta kosti, því eftir frammistöðu
Magna Ásgeirssonar söngvara í þætt-
inum Rockstar: Supernova hefur Á
móti sól notið ómældrar athygli.
„Nei, við áttum ekki von á þessu á
sínum tíma,“ segir Heimir Eyvindar-
son, hljómborðsleikari Á móti sól og
einn stofnenda hennar. „Hugmyndin
var bara að spila á árshátíðum og
öðrum tilfallandi samkomum. En þetta
er löngu farið úr böndunum, sérstak-
lega eftir Ameríkuævintýri Magna,“
bætir hann við og hlær. „En að öllu
gamni slepptu hefur þetta verið síg-
andi lukka hjá okkur. Fyrsta platan
seldist í 500 eintökum, sú næsta í 1.000
og áður en við vissum vorum við komn-
ir upp í gull.“
Nýja platan, sem nefnist Á móti sól í
tíu ár, inniheldur ekki aðeins vinsæl-
ustu lög sveitarinnar heldur einnig
þrjú ný lög, sem er fyrsta frumsamda
efnið sem kemur frá þeim síðan 2004.
„Ég held að við séum orðnir þroskaðri
lagasmiðir og það heyrist á nýju lögun-
um, til dæmis Hvar sem ég fer, sem var
í spilun í sumar. Eftir því sem tíminn
leið höfum við hins vegar viljað gefa
okkur meiri tíma í frumsömdu lögin og
leggja meiri metnað í þær. Krafan í
þessum bransa, sérstaklega sveita-
ballamarkaðinum er hins vegar sú að
vera með nýtt efni á hverju ári og þess
vegna brugðum við á það ráð að gefa út
tvær plötur með þekktum íslenskum
popplögum,“ segir Heimir en bætir við
að plata með nýju frumsömdu efni sé
væntanleg strax á næsta ári.
Heimir segir að þrátt fyrir að hafa
starfað saman í áratug séu strákarnir í
Á móti sól fráleitt komnir með leiða
hver á öðrum. „Þetta er merkilega
góður hópur. Hljómsveitarskipanin
hefur verið sú sama síðan Magni gekk
til liðs við okkur árið 1999 og við náum
ótrúlega vel saman. Við lítum því bara
bjarteygir til næstu tíu ára.“
AFMÆLI
Freddie Mercury staðfesti alnæmissmit
Í Fréttablaðinu á þriðjudag
var greint frá því að Hreiðar
Árni Magnússon væri annar
eigandi hárgreiðslustofunnar
Salon Reykjavík í Glæsibæ.
Hið rétta er að Hreiðar seldi
stofuna í ágúst síðastliðnum
og er hún nú í eigu Arnars
Tómassonar. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Leiðrétting
FÆDDUST ÞENNAN DAG
Eiginmaður minn, sonur okkar og bróðir,
Pétur Magnús
Guðmundsson,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju, föstudaginn
24. nóvember kl. 15.00. Jarðsett verður í
Strandarkirkjugarði í Selvogi laugardaginn 25. nóvem-
ber kl. 14.00. Rúta fer á vegum Kynnisferða frá BSÍ
kl. 12.30.
Sveinn Haraldsson
Guðmundur Pétursson Ásdís Steingrímsdóttir
Bergljót Guðmundsdóttir
Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Heimsberg
Jónasson
(Beggi í Salnum) rakarameistari,
til heimilis að Birkiteig 22, Keflavík,
lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja 19. nóvember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
24. nóvember kl. 14.00.
Sigurður Jóhann Sigurðsson Dröfn Sveinsdóttir
Bergþóra Sigurðardóttir
Stefanía Sigurðardóttir
Ólöf Jóhanna Sigurðardóttir Björgvin Ólafur Gunnarsson
Óli Arelíus Sigurðsson Þorbjörg Þóra Jónsdóttir
Helgi Sigurðsson Carla S. Evans
Guðmundur Heimsberg
Andrea Kristjana Sigurðardóttir Jóhann Guðmundsson
og barnabörn
Okkar elskulega og ástkæra
Ingibjörg Hanna Bergmann
Sveinsdóttir,
Furugrund 79, Kópavogi, áður
Skeljagranda 4, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 16. nóvember, verður jarðsung-
in frá Neskirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.00.
Jóhanna Elín Árnadóttir
Sveinn Bergmann Rúnarsson Halldóra Ólafsdóttir
Bjarni Bergmann Sveinsson Þorbjörg Kristvinsdóttir
Úndína Bergmann Sveinsdóttir Björn Brynjólfsson
Ásmundur Bergmann Sveinsson Hallveig Finnbogadóttir
Árni Bergmann Sveinsson Sigríður Ólafsdóttir
Rúnar Bergmann Sveinsson
Sigrún Friðgeirsdóttir Logi Úlfljótsson
Jón Þór Bergmann Sveinsson Steinhildur Hjaltested
Róslind Bergmann Sveinsdóttir Dag Bordal
Haukur Örn Björnsson Esther Guðmundsdóttir
Sævar Birgisson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir
og mágur,
Pétur Melsteð
hárskerameistari, Rauðarárstíg 3,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur mánudaginn 13. nóvember.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn
24. nóvember kl. 13.00.
Ragnheiður Melsteð Magnús Scheving
Grétar Melsteð Cilje Alexandersen
Jónína Melsteð Gunnar H. Gunnarsson
og barnabörn
Þökkum innilega samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og jarðarför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
Aðalheiðar Unu
Sigurbjörnsdóttur
hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður til
heimilis að Kaplaskjólsvegi 56
Bestu þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli fyrir góða umönnun.
Gyða Theodórsdóttir, Gylfi Theodórsson,
Hulda Theodórsdóttir,
Sigurbjörn Theodórsson, Theodór Theodórsson,
Steinar Engilbert Theodórsson,
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI