Fréttablaðið - 23.11.2006, Síða 68
Ég hef aldrei
litið á mig sem
sérlega vana-
fasta mann-
eskju. Þvert á
móti hef ég
talað fjálg-
lega og af
mikilli sann-
færingu um
andúð mína á rút-
ínum, þar sem
hversdagurinn er svo niðurnjörv-
aður að það þarf að gera stunda-
skrá yfir allt sem koma á í verk,
og verið óopinberlega stolt af
skyndiákvörðunum mínum. Ég
hreyki mér af því, að minnsta
kosti þegar ég er ein, að hafa
ákveðið að flytjast til Dublin í
þrjá mánuði með nokkurra daga
fyrirvara og skrá mig í háskóla-
nám eftir örstuttan umhugsunar-
frest.
Ekki hætti ég heldur að rægja
rútínuna eftir að ég hóf sambúð
með manneskju af hinu kyninu.
Það eintak mannskepnunnar vill
(næstum því ýkjulaust) helst
gera ítarlega stundaskrá yfir
heimilisverk, innkaupaferðir og
því sem næst sturtuferðir. Ég hef
iðkað töluverðar hausahristingar
yfir þessari sérvisku, og legg mig
í staðinn fram um að þrífa helst
ekki nema eftir miðnætti um
helgar.
Sjálfsmynd mín sem forvarð-
ar óskipulags og sjarmerandi
skyndihugdettna hefur hins
vegar sætt hörðum árásum und-
anfarið. Ákvörðun okkar sambýl-
inga um að verja jólunum ein
saman heima við hefur haft
afdrifaríkar afleiðingar í formi
eldheitra samningaviðræðna og
málamiðlana. Það rann upp fyrir
mér í vikunni, þegar ég horfðist í
augu við þá skelfilegu staðreynd
að sambýlingur minn fer ekki
ofan af því að hafa gervijólatré,
að ég er fáránlega vanaföst. Ég
berst með kjafti og klóm fyrir
alvöru jólatrénu, þrátt fyrir að
ýmislegt mæli með hinu.
Ég er hins vegar ekki enn til-
búin að gefast upp og neyðist því
til að gangast við vanafestunni.
Nema ég sé bara frek. Það gæti
svo sem líka verið.
Aaaaaa!
Gerða?!
Slappaðu af
ég kom bara
til að ná í leigu
mánaðarins.
Það má greiða
leiguna í
peningum,
ég hef annan
beinharðan
gjaldmiðil í huga!
Ef þú skilur
hvað ég er
að fara!
Já! Ég þarf að flytja
aftur ég braut regluna
aftur.
Hvenær
gerðist
það?
Ég er ekki alveg viss með það
hvort við eigum að þora að
skilja Palla
eftir einan. Drengurinn er
15 ára! Hann
bjargar sér.
Skerðu á naflastrenginn, þú
mátt ekki halda að greyið
strákurinn sé ekki ábyrgari en
svo að hann geti ekki verið án
móður sinnar eina helgi
Hæ
Pabbi
Ég gleymdi
að skrúfa fyrir
baðkarið í morgun
Ertu til í að
gera það fyrir
mig?
Ok, bæ
Við hringjum á 10
mínútna fresti!
FËLAGAR!
Þetta er hann Jói, hann er
lesblindur!
Jæja Mjási nú þýðir
þetta ekki lengur,
nú förum við
framúr! Jamm!
Rófan þín liggur á
mínu svæði!
Andfýlan úr þér
flýtur óhindrað
hingað til mín!
Jæja krakkar
þetta var bjallan
okkar, takk fyrir
í dag!
Er þetta allt?
Þetta var
nú ekki svo
slæmt! Mér
fannst fyrsti
bekkur bara
skemmtilegur
satt að segja!
Það gleður mig
að heyra Solla
mín, við sjáumst á
morgun!
Er meira?
Þurfum við að
koma aftur?