Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 84
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í
GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF
GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
70 þúsund gestir
MEÐ ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI I
"BESTA BOND
MYNDIN Í ÁRARAÐIR"
- V.J.V. TOPP5.IS
M.M.J. kvikmyndir.com
"...LOKSINS FUNDINN
LEIKARI SEM FYLLIR SKARÐ
CONNERYS. HANN HEFUR
MÝKT OG HÖRKU,
DROTTNANDI ÚTGEISLUN
OG ER ÁMÓTA
KARLMANNLEGUR Á VELLI
OG SKOTINN."
S.V. MBL
" EIN BESTA MYNDIN FRÁ
UPPHAFI...BOND ER KOMINN
AFTUR Í FJÓRAR OG FEITAR
STJÖRNUR, ÞAÐ ER EKKI
HÆGT AÐ ÓSKA SÉR BETRI
AFÞREYINGAR Í
SPENNUMYNDAGEIRANUM."
MBL
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
CASINO ROYALE kl. 5.30, 8.30 og 11.20 B.I. 14 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
BORAT kl. 6 og 8.30
FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 11
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 4
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 4, 6, 8 og 10
BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
BORAT kl. 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA
besta mynd, besti leikari, besti
leikstjórinn, besti aukaleikarinn
og besta tónlistin (Mugison)
5 edduverðlaun
Árið 2004 endurgerði japanski
leikstjórinn Takashi Shimizu hryll-
ingsmynd sína, The Grudge, með
Sarah Michelle Gellar í aðalhlut-
verkinu. Þótt bandarískir leikarar
væru í mörgum aðalhlutverkum
endurgerðarinnar hélt Shimizu sig
við Tókýó sem sögusvið og þar
lenti Gellar í mögnuðum hremm-
ingum þegar hún tók að sér heima-
hjúkrun í húsi þar sem illur andi í
hefndarhug fór mikinn.
Framhald myndarinnar, The
Grudge 2, ratar í kvikmyndahús á
Íslandi á morgun en nú hefur bölv-
unin heldur betur sótt í sig veðrið,
er sloppin út úr húsinu fordæmda
og leggst á nokkurn fjölda fólks
bæði í Japan og Bandaríkjunum.
Persóna Gellar liggur þungt
haldin á sjúkrahúsi í Tókýó eftir
að bölvunin helltist yfir hana í
fyrri myndinni og nú kemur það í
hlut yngri systur hennar að fljúga
yfir hafið og flytja stóru systur
sína heim.
Hún sleppur vitaskuld ekki við
bölvunina og eftir því sem staða
hennar verður tvísýnni leggur hún
sig harðar fram um að rekja upp-
runa bölvunarinnar í veikri von
um að geta í það minnsta aflétt
óværunni af sjálfri sér.
Bölvunin breiðist út
„Kaupum ekkert“-dagur-
inn er á laugardaginn og
í tilefni af því ætlar hin
franska Aude Busson að
opna ókeypis búð í kjallar-
anum á kaffi Hljómalind
að Laugavegi 21. Tilgang-
ur búðarinnar er að vekja
athygli á kaupæðinu sem
grípur landann sérstaklega
á þessum tíma árs þegar
jólavertíðin nálgast.
„Ég sá svona búð í Belgíu og heill-
aðist af hugmyndafræðinni á bak
við þetta,“ segir Aude en hún
hefur búið hérlendis í tvö ár og er
að læra íslensku ásamt því að
vinna á Gráa kettinum. Í búðinni
getur viðskiptavinurinn tekið það
sem hann vill án þess að borga eða
komið með eitthvað frá sér og
skipt fyrir eitthvað annað. Úrvalið
verður ekki mikið til að byrja með
en Aude er búin að safna dóti frá
sjálfri sér og vinum til að hafa
fyrst um sinn í búðinni þangað til
fólk fer að skipta sínu dóti.
Aðspurð hvort henni finnist
Íslendingar vera með meira kaup-
æði en Frakkar svarar hún tví-
mælalaust játandi. „Íslendingar
kaupa mjög mikið enda er fjár-
hagurinn hér betri en gengur og
gerist annars staðar í heiminum.
Það er svo sorglegt að sjá að sumir
eru hættir að njóta þess að kaupa
sér eitthvað og verðið er ekki farið
að skipta máli lengur. Hlutir bara
hækka og hækka í verði án þess að
nokkur segi neitt heldur borga
bara allir þegjandi og hljóðalaust.“
Aude segir að hún sé að vekja
athygli á að því meira sem fólk á,
því meira kaupir það. Að kaupa
hluti er ákveðið form af græðgi.
„Það hafa allir gott af því að hugsa
aðeins nánar um þetta fyrir
jólin.“
Aude segir að fólk fari hins
vegar að hugsa þegar það kemur
inn í búð þar sem allt er ókeypis.
„Þá hugsar fólk um hvort þeir virki-
lega þurfi á hlutnum að halda eða
hvort einhver annar þurfi kannski
meira á honum að halda,“ segir
Aude og bætir því við að Ókeypis
búð sé góð leið fyrir alla til að losna
við slæmar kaupvenjur.
Búðin, sem heitir Ókeypis
búðin, verður opnuð eins og fyrr
segir á laugardag klukkan fjögur
og verður opin alla daga til jóla.
„Ég efast ekki um að Íslendingar
eigi eftir að taka vel í þessa búð,
ég vona að hún eigi eftir að efla
samfélagsandann hérna,“ segir
Aude.
Kveður niður kaupæðið
Þýska rokksveitin Rammstein
hefur gefið út DVD-mynddiskinn
Völkerball. Hefur hann að geyma
DVD-mynddiska með upptökum
frá tónleikaferð sveitarinnar frá
nóvember 2004 til júlí 2005. Þá
ferðaðist Rammstein með 140 tonn
af tækjum og tólum í farteskinu á
milli 21 lands og spilaði fyrir sam-
tals eina milljón aðdáendur.
Diskurinn, sem er í vönduðum
umbúðum, kemur bæði út í hefð-
bundinni útgáfu og í viðhafnarút-
gáfu. Í hinni hefðbundnu eru 140
mínútna upptökur frá tónleikum
sveitarinnar auk 75 mínútna
geisladisks, einnig með tónleika-
upptökum. Í viðhafnarútgáfunni
er einnig 90 mínútna löng heimild-
armynd. Á meðal laga á útgáfunni
eru Links 2 3 4, Du Hast, Sonne og
Stripped.
Völkerball á DVD
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
11.
HVERVINNUR!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA OSF Á 1900OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA