Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 19
HLUTAFJÁRÚTBOÐ 27. NÓVEMBER– 4. DESEMBER 2006
Fjárhæð útboðs: 4.995.000.000 kr.
Hlutafjárútboð Icelandair Group Holding hf., kt. 591006-2150, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík.
ICELANDAIR GROUP HOLDING HF.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
FJÁRHÆÐ ÚTBOÐS
Á hluthafafundi Icelandair Group Holding hf. þann 15. október sl. var
samþykkt að sækjast eftir skráningu á öllu hlutafé í félaginu, alls að
nafnverði 1.000 milljónir króna, í Kauphöll Íslands. Boðnir verða
185 milljón hlutir í útboði til starfsmanna samstæðunnar, almennings
og fagfjárfesta. Í kjölfarið er stefnt að skráningu á aðallista Kauphallar
Íslands.
Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis banka hf. hefur umsjón með útboðinu og er
Glitnir banki hf. eigandi allra hluta sem boðnir verða í útboðinu. Verð
í útboðinu verður 27 krónur á hlut.
TILGANGUR ÚTBOÐS
Tilgangur útboðsins er meðal annars að uppfylla skilyrði Kauphallar
Íslands um dreifingu á eignaraðild og fjölda hluthafa og auk þess
að gefa starfsmönnum samstæðunnar Icelandair Group Holding hf.
tækifæri til að kaupa hluti í félaginu.
ÚTBOÐSTÍMABIL
Útboð til almennings, til starfsmanna samstæðunnar Icelandair Group
Holding hf. og til fagfjárfesta munu öll standa yfir frá kl. 10.00 þann
27. nóvember 2006 til kl. 19.00 þann 4. desember 2006.
ÚTBOÐ TIL ALMENNINGS
40 milljón hlutir eru til sölu í þessum hluta útboðsins.
Almenningur getur skráð áskrift sína með rafrænum hætti á vefsvæði
Glitnis, www.glitnir.is, frá kl. 10.00 þann 27. nóvember 2006 til
kl. 19.00 þann 4. desember 2006. Áskrift hluta er bindandi fyrir
þann sem skráir sig fyrir hlut. Lágmarksáskrift er 100.008 krónur
eða 3.704 hlutir en hámarksáskrift í útboði til almennings er
50 milljónir króna eða 1.851.852 hlutir.
Rafræn staðfesting um skráða áskrift er forsenda þess að áskriftin sé
tekin gild. Staðfesting birtist að lokinni skráningu og getur áskrifandi
prentað hana út og/eða fengið hana senda með tölvupósti. Þeir
einstaklingar sem ekki hafa aðgang að Internetinu geta hringt í
Þjónustuver Glitnis í síma 440 4000 frá kl. 9.00 til kl. 19.00 virka
daga. Þeir sem hringja inn til að skrá áskrift sína fá senda staðfest-
ingu á áskrift með pósti. Ekki verður tekið við áskriftum með öðrum
hætti en hér hefur verið lýst.
ÚTBOÐ TIL STARFSMANNA
35 milljón hlutir eru til sölu í þessum hluta útboðsins.
Hverjum starfsmanni samstæðunnar Icelandair Group Holding hf.,
sem starfaði hjá samstæðunni þann 15. nóvember 2006 verður gert
kleift að skrá sig fyrir ákveðnum fjölda hluta í útboðinu án þess að
eiga á hættu að sá fjöldi hluta verði skorinn niður ef eftirspurn í
útboðinu verður meiri en framboð. Nýti einhverjir starfsmenn ekki
rétt sinn að fullu mun útistandandi hlutum verða úthlutað í útboði til
fagfjárfesta. Lágmarksáskrift í þessum hluta útboðsins er 100.008
krónur að kaupverði. Óski starfsmaður eftir að skrá sig fyrir fleiri
hlutum en fráteknir eru fyrir hvern þeirra skal það gert á grundvelli
ofangreinds útboðs til almennings.
Áskriftum ber að skila með rafrænum hætti á sérstöku áskriftarformi
á vef Glitnis, www.glitnir.is. Kennitala og lykilorð, sem sent var til
starfsmanna með bréfi dagsettu þann 16. nóvember, eru nauðsyn-
leg til að geta skráð áskrift. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir gildri
áskrift. Staðfesting birtist að lokinni skráningu og getur áskrifandi
prentað hana út og/eða fengið hana senda með tölvupósti. Þeir
starfsmenn sem ekki hafa aðgang að Internetinu geta hringt í
Þjónustuver Glitnis í síma 440 4000 frá kl. 9.00 til kl. 19.00 virka
daga. Þeir sem hringja inn til að skrá áskrift sína fá senda staðfest-
ingu á áskrift með pósti. Ekki verður tekið við áskriftum með öðrum
hætti en hér hefur verið lýst.
ÚTBOÐ TIL FAGFJÁRFESTA
110 milljón hlutir eru til sölu í þessum hluta útboðsins.
Fagfjárfestar geta haft samband við verðbréfamiðlun Glitnis í síma
440 4499 og lagt fram bindandi tilboð. Fagfjárfestar eru þeir aðilar
sem uppfylla skilyrði samkvæmt 7. tl. 2. gr. laga nr. 33/2003 um
verðbréfaviðskipti.
Lágmarksáskrift í fagfjárfestaútboðinu eru 370.370 hlutir eða
10 milljónir króna að markaðsvirði.
Glitnir banki hf. hefur heimild til þess að hafna áskriftum í heild eða
að hluta.
NIÐURSTAÐA ÚTBOÐS
Niðurstaða útboðsins verður birt á fréttasíðu Kauphallarinnar,
news.icex.is, fyrir klukkan 10.00 þann 6. desember 2006. Þátttak-
endum í útboðinu verður sendur greiðsluseðill þar sem fram koma
upplýsingar um úthlutaða hluti og greiðslufyrirkomulag eigi síðar en
6. desember 2006.
GREIÐSLA
Áskrift í útboðinu er bindandi. Gjalddagi greiðsluseðla vegna hluta-
fjárkaupa er mánudagurinn 11. desember 2006. Berist greiðsla ekki
tímanlega má innheimta skuldina á þann veg sem lög heimila. Í stað
þess að grípa til innheimtuaðgerða hefur Glitnir einhliða heimild til að
fella ógreiddar áskriftir niður og ráðstafa þeim til þriðja aðila.
AFHENDING HLUTA
Eigi síðar en 13. desember 2006 verða hlutirnir afhentir til fjárfesta.
LÝSING
Lýsing á ensku var birt á upphafsdegi útboðsins þann 27. nóvember
2006 og hana má nálgast í fréttakerfi Kauphallar Íslands,
news.icex.is, á heimasíðu Icelandair Group Holding hf.,
www.icelandairgroup.is og á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is.
Í tólf mánuði frá útgáfu lýsingar er hægt að óska eftir útprentuðu
eintaki hjá umsjónaraðila: Glitnir banki hf. – Fyrirtækjaráðgjöf,
Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík, icelandairutbod2006@glitnir.is og á
skrifstofu Icelandair Group Holding hf., Reykjavíkurflugvelli,
101 Reykjavík.
Reykjavík, 28. nóvember 2006.