Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 42
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
Nautakjöt er eina kjötið sem þú getur
grillað án þess að nágranni þinn fatti
það. […] Ef þér tekst að kveikja í
nautakjöti þá ertu snillingur.
Samtökin Sinn Féin stofnuð í Dublin
Svafa Grönfeldt, aðstoðarforstjóri
Actavis, tekur við af Guðfinnu S.
Bjarnadóttur sem rektor Háskólans í
Reykjavík hinn 1. febrúar næstkom-
andi. „Þetta er svolítið eins og ég sé að
koma heim. Ég hef verið með annan
fótinn í kennslu í tíu ár, og það er það
sem mér hefur þótt langskemmtileg-
ast,“ sagði Svafa. Starf sitt hjá Actavis
segir hún hafa verið mjög lærdóms-
ríkt.
„Ég hef ferðast út um allan heim,
komið á staði sem ég hefði annars
aldrei séð og þurft að eiga við menn-
ingarheima sem ég hefði annars aldrei
kynnst. Þetta hefur gefið mér meiri
víðsýni, umburðarlyndi og úthald en
ég hafði áður og ég verð ævarandi
þakklát fyrir það,“ sagði Svafa. Ef hún
hefði mátt ráða hefði hún ekki kosið
þessa tímasetningu til þess að skipta
um starf. „Ég hefði viljað vera miklu
lengur hjá Actavis, en staða eins og
þessi mun ekki bjóðast næstu árin.
Annaðhvort hefði ég tekið þessu eða
sleppt því, og þá aldrei snúið aftur inn
í þennan heim. Ég hugsaði þetta út frá
framtíð minni og fjölskyldunni og
íhugaði hvers konar verkefnum ég vil
vinna að til framtíðar. Þetta var bara
að hrökkva eða stökkva,“ sagði Svafa.
Hvað varðar verkefni framtíðar-
innar segir Svafa þrennt standa upp úr
að svo stöddu. Fyrir utan að þétta það
nám sem fyrir er vill hún styrkja rann-
sóknarstarf skólans enn frekar. „Svo
verður gríðarlega gaman að fá að taka
þátt í byggingu nýja hússins sem mun
verða kennileiti í Reykjavík,“ sagði
Svafa. Alþjóðatenging skólans er henni
einnig hugfólgin. „HR vill bera sig
saman við bestu skóla erlendis. Ég vil
tengja hann erlendum háskólum enn
frekar,“ sagði Svafa, en hún segir
atvinnulífið ekki síst hagnast á slíkum
alþjóðasamskiptum. „Íslenskir stjórn-
endur og sérfræðingar þurfa að skilja
að grasið er ekki grænna hinum megin.
Íslensk fyrirtæki í útrás, þar á meðal
Actavis, hafa sýnt það á undanförnum
árum að íslenskt hugvit og stjórnunar-
þekking nýtist alls staðar í heimin-
um.“
Aðspurð kveðst Svafa ekki hafa
velt því mikið fyrir sér hvort hún muni
setja kvennamálin á oddinn. „Ég hef
ekki tekið mikinn þátt í orðræðunni
um stöðu kvenna í stjórnunarstörfum.
Ég vil hins vegar trúa því að ég sé rétt-
sýn og hafi jafnrétti í hávegum. Ég
reyni að stuðla að jafnrétti með verk-
um mínum,“ sagði hún.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu vegna
andláts og útfarar bróður okkar, mágs
og frænda,
Friðriks Sigtryggssonar
Kríuhólum 2, Reykjavík
Valgerður
Þorbjörg
Helga
Kolbeinn
tengdafólk og systkinabörn.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Þorsteinn Lárus Pétursson
vélstjóri, Laufrima 34, Reykjavík
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudag-
inn 19. nóvember sl. Hann verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 29. nóvember kl.
13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Unnur Guðmundsdóttir
Rut Þorsteinsdóttir Olgeir Kristjónsson
Hörður Þorsteinsson Kristín Gunnarsdóttir
Hafdís Þorsteinsdóttir
afabörn og langafabörn.
Hjartans þakkir til allra er veittu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
Brynleifs Sigmars
Tobíassonar
Úthlíð, Varmahlíð, Skagafirði
Jóna Guðrún Gísladóttir
Edda Brynleifsdóttir Þorsteinn Hafþórsson
Tobías Þórður Brynleifsson.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Ástkæri eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurbjörn Þorleifsson
Maríubaugi 123, Reykjavík,
varð bráðkvaddur föstudaginn 17. nóvember.
Útför hans fer fram í Bústaðakirkju í dag kl. 15.00.
Hulda Fríða Ingadóttir
Þorleifur Sigurbjörnsson Catherine Elisabet Batt
Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Ármann Fr. Ármannsson
Ingi Guðmundsson Hildur Pálsdóttir
Jón Ó. Guðmundsson Erla Guðný Gylfadóttir
Andri Ingason Birta Ingadóttir
Sara Huld Ármannsdóttir Thelma Huld Ármannsdóttir
Alexander Batt Þorleifsson Guðný Dís Jónsdóttir.