Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 42
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysin- gar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Nautakjöt er eina kjötið sem þú getur grillað án þess að nágranni þinn fatti það. […] Ef þér tekst að kveikja í nautakjöti þá ertu snillingur. Samtökin Sinn Féin stofnuð í Dublin Svafa Grönfeldt, aðstoðarforstjóri Actavis, tekur við af Guðfinnu S. Bjarnadóttur sem rektor Háskólans í Reykjavík hinn 1. febrúar næstkom- andi. „Þetta er svolítið eins og ég sé að koma heim. Ég hef verið með annan fótinn í kennslu í tíu ár, og það er það sem mér hefur þótt langskemmtileg- ast,“ sagði Svafa. Starf sitt hjá Actavis segir hún hafa verið mjög lærdóms- ríkt. „Ég hef ferðast út um allan heim, komið á staði sem ég hefði annars aldrei séð og þurft að eiga við menn- ingarheima sem ég hefði annars aldrei kynnst. Þetta hefur gefið mér meiri víðsýni, umburðarlyndi og úthald en ég hafði áður og ég verð ævarandi þakklát fyrir það,“ sagði Svafa. Ef hún hefði mátt ráða hefði hún ekki kosið þessa tímasetningu til þess að skipta um starf. „Ég hefði viljað vera miklu lengur hjá Actavis, en staða eins og þessi mun ekki bjóðast næstu árin. Annaðhvort hefði ég tekið þessu eða sleppt því, og þá aldrei snúið aftur inn í þennan heim. Ég hugsaði þetta út frá framtíð minni og fjölskyldunni og íhugaði hvers konar verkefnum ég vil vinna að til framtíðar. Þetta var bara að hrökkva eða stökkva,“ sagði Svafa. Hvað varðar verkefni framtíðar- innar segir Svafa þrennt standa upp úr að svo stöddu. Fyrir utan að þétta það nám sem fyrir er vill hún styrkja rann- sóknarstarf skólans enn frekar. „Svo verður gríðarlega gaman að fá að taka þátt í byggingu nýja hússins sem mun verða kennileiti í Reykjavík,“ sagði Svafa. Alþjóðatenging skólans er henni einnig hugfólgin. „HR vill bera sig saman við bestu skóla erlendis. Ég vil tengja hann erlendum háskólum enn frekar,“ sagði Svafa, en hún segir atvinnulífið ekki síst hagnast á slíkum alþjóðasamskiptum. „Íslenskir stjórn- endur og sérfræðingar þurfa að skilja að grasið er ekki grænna hinum megin. Íslensk fyrirtæki í útrás, þar á meðal Actavis, hafa sýnt það á undanförnum árum að íslenskt hugvit og stjórnunar- þekking nýtist alls staðar í heimin- um.“ Aðspurð kveðst Svafa ekki hafa velt því mikið fyrir sér hvort hún muni setja kvennamálin á oddinn. „Ég hef ekki tekið mikinn þátt í orðræðunni um stöðu kvenna í stjórnunarstörfum. Ég vil hins vegar trúa því að ég sé rétt- sýn og hafi jafnrétti í hávegum. Ég reyni að stuðla að jafnrétti með verk- um mínum,“ sagði hún. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar bróður okkar, mágs og frænda, Friðriks Sigtryggssonar Kríuhólum 2, Reykjavík Valgerður Þorbjörg Helga Kolbeinn tengdafólk og systkinabörn. Legsteinar Kynningarafsláttur af völdum tegundum Fjölbreytt úrval Hagstæð verð Stuttur afgreiðslufrestur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Þorsteinn Lárus Pétursson vélstjóri, Laufrima 34, Reykjavík lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudag- inn 19. nóvember sl. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 29. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Unnur Guðmundsdóttir Rut Þorsteinsdóttir Olgeir Kristjónsson Hörður Þorsteinsson Kristín Gunnarsdóttir Hafdís Þorsteinsdóttir afabörn og langafabörn. Hjartans þakkir til allra er veittu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Brynleifs Sigmars Tobíassonar Úthlíð, Varmahlíð, Skagafirði Jóna Guðrún Gísladóttir Edda Brynleifsdóttir Þorsteinn Hafþórsson Tobías Þórður Brynleifsson. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Sigurbjörn Þorleifsson Maríubaugi 123, Reykjavík, varð bráðkvaddur föstudaginn 17. nóvember. Útför hans fer fram í Bústaðakirkju í dag kl. 15.00. Hulda Fríða Ingadóttir Þorleifur Sigurbjörnsson Catherine Elisabet Batt Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Ármann Fr. Ármannsson Ingi Guðmundsson Hildur Pálsdóttir Jón Ó. Guðmundsson Erla Guðný Gylfadóttir Andri Ingason Birta Ingadóttir Sara Huld Ármannsdóttir Thelma Huld Ármannsdóttir Alexander Batt Þorleifsson Guðný Dís Jónsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.