Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 10
 Ehud Olmert, for- sætisráðherra Ísraels, bauð Pal- estínumönnum í stefnuræðu sinni í gær víðtækar friðarviðræður, hverfi þeir frá ofbeldi. Jafnframt sagði hann að slíkar viðræður við Ísraela myndu gera Palestínu- mönnum kleift að mynda sjálf- stætt ríki á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu. Olmert talaði beint til Palest- ínumanna og lofaði að fækka eftir- litsstöðvum, greiða skatta Palest- ínumanna sem Ísrael hefur haldið síðan leiðtogar Hamas-hreyfing- arinnar voru kosnir til valda í þingkosningum Palestínumanna í janúar, og að leysa fanga úr haldi, komi til alvarlegra friðarvið- ræðna. Jafnframt myndu Ísraelar þá yfirgefa Vesturbakkann og her- numin svæði. „Ég rétti palestínskum nágrönn- um okkar hönd mína í friði og vona að ég komi ekki tómhentur til baka,“ sagði Olmert. „Við getum ekki breytt fortíðinni og við munum ekki geta endurheimt fórnarlömbin beggja vegna landa- mæranna. Allt sem við getum gert í dag er að koma í veg fyrir frek- ari harmleiki.“ Þó verða Palestínumenn að velja sér nýja hófsama ríkisstjórn sem væri tilbúin til að fylgja frið- aráætlun sem Bandaríkjamenn styðja, sem og að leysa ísraelskan hermann úr haldi, en gíslataka hans var uppspretta átakanna í sumar. Fyrr kemur Olmert ekki til þessara „alvöru, opnu, heiðarlegu, einlægu viðræðna“, sagði hann. Friðarumleitanir Ísraela og Palestínumanna hafa legið niðri mánuðum saman, eða frá umrædd- um kosningum. Þótt leiðtogar Hamas-samtakanna hafi verið lýð- ræðislega kosnir á þing hafa Ísra- elar neitað að eiga samskipti við þá, enda er eitt af takmörkum samtakanna að eyða Ísrael. Tilboð Olmerts um að hefja aftur friðarumleitanir kom degi eftir að vopnahlé milli Hamas-liða og Ísraela hófst á Gaza-svæðinu, sem ætlað er að binda enda á fimm mánaða átök. Yfir 300 Palestínu- menn hafa látist í átökunum sein- ustu mánuði, þar af fjölmargir óbreyttir borgarar. Einnig hafa fimm Ísraelar farist. Talsmaður palestínska ráðu- neytisins sagði þingmenn taka til- boði Olmerts með fyrirvara. „Þetta er samsæri. Þetta er nýtt herbragð. Olmert talar um palest- ínska ríkið án þess að gefa upplýs- ingar um landamærin,“ sagði Ghazi Hamad, talsmaður stjórnar- innar. Ehud Olmert hvetur til friðar Forsætisráðherra Ísraels lýsti því yfir í gær að Palest- ínumenn gætu myndað sjálfstætt ríki, komi þeir að samningaborðinu með Ísrael. Palestínumenn segja að um innantóm loforð sé að ræða. Lögreglan í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar handtók 90 mótmælendur á unglingsaldri við samkomuhús trúfélagsins Faderhuset á sunnudag. Vildu ungmennin mótmæla fyrirhuguðum flutningi æskulýðsstarfs trúfélagsins í byggingu sem nú hýsir Ungdoms- huset, samkomustað ungs fólks á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Faderhuset keypti húsið fyrir skömmu og hefur sótt um leyfi til að rífa það og reisa nýtt. Borgaryf- irvöld í Kaupmannahöfn hafa reynt að koma að lausn málsins en án árangurs. Nýir eigendur eiga að fá húsið afhent 14. desember. 90 handteknir vegna mótmæla PANTAÐU Í SÍMA WWW.JUMBO.IS 554 6999 SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Suður- lands í tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir kynferðis- brot gegn ungri stúlku. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða henni 300 þúsund krónur með vöxtum í miskabætur og 200 þús- und króna sekt til ríkissjóðs. Loks var honum gert að greiða nær 300 þúsund krónur í sakarkostnað. Maðurinn sýndi stúlkunni tvær klámmyndir í tölvu sinni í júlí 2005. Þar á meðal var mynd sem sýndi barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Í tölvu manns- ins fann lögreglan síðan fimm ljósmyndir og 21 hreyfimynd sem sýndu börn einnig á klámfenginn hátt. Loks fundust 35 ljósmyndir á hörðum diski í tölvu hans, en hann hafði afmáð myndirnar af diskinum er lögregla lagði hald á tölvuna. Þessar myndir sýndu einnig börn með sama hætti og að ofan er getið. Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa haft myndirnar í tölvunni, en neitaði að það hefði verið af ásetningi. Þær hefðu hal- ast niður á tölvu hans þegar hann ætlaði að ná sér í löglegt klám- efni, sér og konu sinni til skemmt- unar. Hann neitaði hins vegar að hafa sýnt stúlkunni klámmynd- irnar en dómurinn mat hana stað- fasta í framburði sínum þrátt fyrir að hún hafi verið látin end- urtaka frásögn sína. Dæmdur fyrir kyn- ferðisbrot og klám Lögreglan í Kópa- vogi handtók tæplega tvítugan mann aðfaranótt föstudags. Við leit á manninum fundust fíkniefni í söluumbúðum. Í kjölfarið var gerð húsleit á heimili mannsins og fannst töluvert magn fíkniefna til viðbótar. Við yfirheyrslur viður- kenndi maðurinn að hafa ætlað að selja efnin. Honum var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Efnin sem tekin voru af manninum eru hass, maríjúana, amfetamín og ofskynjunarefni. Rannsókn málsins er ekki lokið. Fundu fíkniefni í söluumbúðum Stjórnvöld eru að færa ríkisstofnunum verkefni á silfur- fati að sögn Guðmundar Arasonar, framkvæmdastjóra Securitas, sem hefur, ásamt Öryggismiðstöðinni, annast öryggisleit á Keflavíkur- flugvelli í samstarfi við Flugmála- stjórn. Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að Flugmálastjórn geri þjónustusamning við sýslumanns- embættið á Keflavíkurflugvelli fyrir árið 2007 um framkvæmd þess hluta öryggisleitar sem Secur- itas og Öryggismiðstöðin hafa sinnt. Guðmundur segist hafa upplýs- ingar um að þeirra þjónusta sé ódýrari en þjónusta sýslumanns- embættisins og þetta gangi gegn útvistunarstefnu stjórnvalda sem snýst um að þar sem einkageirinn geti framkvæmt hluti hagkvæmar en hið opinbera sé forstöðumönn- um skylt að bjóða verkefnið út. „Flugvallarstjórinn á Keflavíkur- flugvelli hefur tekið þessa stefnu upp og beitt í sínum ákvörðunum en er núna rekinn öfugur til baka. Þetta er slæmt merki til annarra ríkisstofnana,“ segir Guðmundur. Gert er ráð fyrir 160 milljónum króna í samninginn við sýslumanns- embættið að sögn aðstoðarmanns utanríkisráðherra. Á meðan verður gerð úttekt á mögulegum útfærsl- um á rekstri vopna- og öryggisleit- ar og ákvörðun um framtíðarút- færslu tekin í kjölfarið. Ekki náðist í utanríkisráðherra. Öryggiseftirlit til sýslumanns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.