Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 52
JPV útgáfa hélt sína árlegu jólagleði á föstudaginn og fagnaði útgáfu þessarar vertíðar. Fjöldi fólks lét sjá sig í gleðskapnum og sem fyrr fór mikið fyrir rithöfundum, bókarýnum og starfsfólki bókaversl- ana. Jólagleði hjá bókafólki Fegurðardísin og leikkonan Scarl- ett Johansson er byrjuð að reykja sígarettur eins og strompur eftir að hún fékk fregnir af framhjáhaldi kærasta síns Josh Hartnett. Slúður- blöðin vestanhafs hafa verið full af fréttum af sam- bandi Harnett við dularfulla dökk- hærða konu á meðan hann er við tökur í Ástralíu. Nágrannar Johansson hafa kvartað mikið undan reykinga- lykt úr íbúð hennar en hún neitar að hafa opinn gluggann heima hjá sér og hefur svarað gagnrýni nágrannanna þannig: „Lesið þið ekki blöðin? Ég er að ganga í gegn- um erfitt tímabil núna og má því reykja eins og ég vil.“ Byrjuð að reykja Strákahljómsveitin Take That fór beint í efsta sæti breska smáskífu- listans með lag sitt Patience. Þetta er níunda topplag sveitarinnar og sú fyrsta í yfir áratug. Á breska breiðskífulistanum fór önnur strákasveit, hin írska Westlife, á toppinn. Sló hún þar ekki ómerkari keppinautum við en Bítlunum, U2 og Oasis, sem allar voru að gefa út nýjar plötur. Take That í efsta sæti Senegalski rapparinn Akon hefur viðurkennt fjölkvæni og kveðst eiga hvorki meira né minna en þrjár eigin- konur. Rapp- arinn játaði þetta í beinni útsendingu í viðtali á útvarpsstöð í New York en útgáfufyrir- tæki hans hefur meinað honum að segja nokkuð meira um einkalíf sitt. „Ég hef efni á að eiga jafn margar konur og mér sýnist,“ sagði Akon meðal annars. „Pabbi á fjórar konur. Allir gera þetta í Afr- íku,“ sagði Akon og bætti við að samkvæmt reglum Kóransins yrði hann að vera jafn útbær á blíðu sína við þær allar og það gerði hann samviskusamlega. Á þrjár konur Nýjasta viðbótin í skemmtana- flóru landsins var opnuð með pomp og pragt á laugardagskvöld. Það er skemmtistaðurinn Domo sem er í Þingholtsstræti en áður var þar til húsa Sportkaffi. Það eru engir viðvaningar í skemmti- staðabransanum sem eiga staðinn en þeir Arnar og Bjarki Gunn- laugssynir tóku höndum saman með Kormáki Geirharðssyni og Skildi Sigurjónsyni. Kormákur og Skjöldur eiga fyrir Ölstofuna og Arnar og Bjarki eiga Hverfisbar- inn en báðir staðirnir eru búnir að stimpla sig vel inn í skemmtanalíf landans. Domo er glæsilegur staður og var fjölmenni mætt til að berja staðinn augum. Ef marka má mæt- inguna fyrsta kvöldið á Domo á staðnum eflaust eftir að vegna vel í komandi framtíð. Bogomil Font skemmti gestum fyrri part kvölds- ins og svo var það hinn sívinsæli plötusnúður Margeir sem þeytti skífum fram á rauða nótt. Vegleg opnun á Domo Jeppi fótboltamannsins Davids Beckham er loksins kominn í leit- irnar, en honum var stolið í Madríd á haustmánuðum. Bíllinn fannst í Makedóníu og segir lögregla þar í landi að tveir búlgarskir glæpa- menn hafi verið handteknir á bíln- um. Lögreglan tók sér- staklega fram að ef Beckham vitji ekki bílsins muni hann verða seldur á uppboði eftir áramót. Jeppinn fundinn „Við erum bara búnir að vera í híði. 1500 dagar er eiginlega tím- inn sem hefur liðið frá því að síðasta plata kom út,“ sagði Valur Heiðar Sævarsson, en hljómsveit hans, Buttercup, hefur nýverið gefið út plöt- una 1500 dagar. Sveitin er nú söngkonulaus, og sagði Valur það leggjast vel í meðlimi. „Þetta er alveg flækjulaust, konur eru bara vesen,“ sagði Valur um söng- konuleysið og hló við. „Nei, við byrj- uðum svona og vorum svona í þrjú ár svo við kunnum þetta alveg,“ sagði Valur. „Við höfum líka þróast út í svolítið rokkaðra þema, svo þetta hentar mjög vel.“ Rokkaðri hljómur sveit- arinnar er meðal þess sem fékk kumpánana úr útvarpsþættinum Capone til að gefa plötunni fjór- ar stjörnur. „Við höfum nú ekki átt upp á pallborðið hjá þessum köppum,“ sagði Valur, aðspurður hvort dómurinn hefði komið honum á óvart. „Þetta er auðvitað ánægjulegt, þeir drulla að minnsta kosti ekki yfir okkur,“ sagði hann hlæjandi. „En við höfum sjálfir aldrei verið ánægðari með plötu,“ bætti hann við. Buttercup hefur ekki uppi nein áform um að snúa aftur á sveitaballamarkað- inn. „Við fengum bara alveg nóg af því, þetta er ekki mjög heillandi til lengd- ar,“ sagði Valur, en sveit- in stundaði sveitaböllin nánast linnulaust í fimm ár. „Við ætlum frekar að halda tón- leika og svo erum við komnir með hug- mynd að næstu plötu, sem verður vonandi ekki 1500 daga í gerjun,“ sagði Valur. Sælir með söngkonuleysi Látum ekki fylgifiska skammdegisins leggja okkur í rúmið. Styrkjum mótstöðuaflið, höldum heilbrigði og hreysti með varnarefnum náttúrunnar. Láttu sérhæft starfsfólk okkar aðstoða þig við val á vítamínum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.