Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 64
Áfyrstu búskaparárunum hafði ég sterkar skoðanir á öllu
sem leit að húshaldi. Með arf kyn-
slóðanna eins og blýlóð á bakinu
fannst mér skylda að elda frá
grunni næringarríkar máltíðir
daglega. Ég straujaði vitaskuld
sængurfötin svo og alla aðra
vefnaðarvöru, tók slátur og gerði
ærlegar hreingerningar minnst
vikulega. Heimilið hefði fengið
ágætiseinkunn í heimilisfræði-
prófi á sjötta áratugnum. Eigin-
mannsefni mitt hringlaði þarna
samt dálítið hissa, verandi alinn
upp af bóhemískum foreldrum
sem gerðu ekki veður út af smá-
munum.
fyrstu jólin nálguðust
hrúguðust upp verkefnin. Tók ég
mið af húsfreyjum sem ráku stór
heimili og setti markið á minnst
átta smákökusortir. Vegna mik-
illa anna við gluggaþvotta og silf-
urfægingu urðu þær hinsvegar
ekki fleiri en þrjár, sem var dálít-
ið leiðinlegt. Verra var að verk-
efnalistinn ætlaði aldrei að stytt-
ast, sífellt bættust við nýjar
skyldur: Handgerð jólakort,
flóknar jólaskreytingar og ýmis
námskeið í borðskreytingum og
konfektgerð.
í framvindu þessarar
sjálfskúgunar urðu á Þorláks-
messu þegar ég brast í grát á öxl
eldri systur minnar yfir öllu því
sem mér tækist auðsjáanlega
ekki að inna af hendi fyrir jól. Af
undarlegum ástæðum fannst
henni örvænting mín bara krútt-
leg. Hún tók hinn óralanga verk-
efnalista, reif hann snyrtilega og
setti í ruslið. Þá var það afgreitt.
síðar er þessi reynsla
enn kennslustund í kæruleysi.
Þegar umhverfið byrjar að kalla
á allt sem þarf fyrir jólin. Endi-
lega að ganga frá nýju innrétting-
unum fyrir hátíðarnar, skreppa á
jólahlaðborð, tónleika, skipta um
bíl og hárgreiðslu. Einmitt núna
þegar framkvæmdir við nýtt hús-
næði fjölskyldunnar standa sem
hæst gæti ég alveg farið á taug-
um yfir því að hafa hvorki baðkar
né sturtu í bili.
lærum við hina bráðskemmti-
legu útsjónarsemi að skreppa í
sturtu hvar og hvenær sem færi
gefst. Tólf smákökusortir eru eig-
inlega ekki eins mikilvægar og
áður, þaðan af síður borðskreyt-
ingar fyrir lengra komna. Nú
spekúlerum við í hvort við eigum
að fara öll í sömu heimsóknina til
að baða okkur á aðfangadag eða
skipta liði. Ætli Vesturbæjarlaug-
in hafi opið yfir hátíðarnar?
Jólin koma
HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
1
3
2
Volkswagen Passat Comfortline er glæsilegur bíll sem uppfyllir kröfur vandlátustu ökumanna um
þægindi, öryggi og aksturseiginleika. Búnaðurinn talar sínu máli: Sex þrepa Tiptronic sjálfskipting,
ESP stöðugleikastýring, þokuljós í framstuðara, rafrænn stöðuhemill, aksturstölva, Climatic
loftfrískunarbúnaður/kæling (A/C), fjarstýrð opnun á farangursgeymslu, krómpakki, rafstýrður
mjóhryggsstuðningur í bílstjórasæti, hiti í framsætum, hraðastillir (cruise control), armpúði á milli
fram- og aftursæta, langtímaþjónusta (Extra long life service), 8 hátalarar (að framan og aftan)
og margt fleira. Komdu og kynnstu honum af eigin raun.
Verð 2.850.000 kr. Passat Comfortline, 2,0 FSI® 150 hestöfl, sjálfskiptur.
3,8% vextir
Afborgun 31.690
kr. á mánuði*
Passat – eins og hugur þinn
*Miðað við 20% útborgun og gengistryggðan bílasamning hjá SP-Fjármögnun. Gildir til 31. desember.
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006