Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 58
Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta etur í dag kappi
við landslið Aserbaídsjans. Leik-
urinn fer fram í Rúmeníu og er
fyrsti leikur liðsins í undankeppni
HM.
Liðið kom til Rúmeníu aðfara-
nótt mánudagsins og það var
þreytt landslið kvenna sem renndi
upp að hótelinu í Valcea. Ferðalag-
ið hófst í Laugardalnum klukkan
hálf sex á sunnudagsmorgun og
kom ekki á hótelið fyrr en klukkan
sex að staðartíma, eða fjögur að
íslenskum tíma.
Fyrst var flogið frá Keflavík til
London þar sem liðið þurfti að bíða
eftir tengiflugi til Búkarest, höf-
uðborgar Rúmeníu. Seinkun var á
fluginu til Búkarest og liðið þurfti
að bíða á Heathrow-flugvelli í
London í átta klukkutíma.
Ýmislegt var gert til að drepa
tímann og m.a. stóðu þær Elísabet
Gunnarsdóttir og Jóna Margrét
Ragnarsdóttir fyrir spurninga-
keppni þar sem Finnbogi Grétar
Sigurbjörnsson, aðstoðarþjálfari
liðsins, fór með sigur af hólmi.
Einnig mátti víða sjá landsliðskon-
ur læra af kappi en margar hverj-
ar eru í námi og prófin taka fljót-
lega við þegar heim er komið.
Vélin komst loks í loftið en
þegar til Búkarest var komið beið
liðsins þriggja tíma rútuferð til
Valcea þar sem hópurinn dvelur.
Þegar þangað var komið var klukk-
an sex að morgni og hvíldin því
kærkomin, enda rúmlega 22
klukkutíma ferðalag að baki.
Dagurinn í gær fór því aðallega
í afslöppun, göngutúra og ein
æfing var seinnipartinn í gær. Það
gefst þó ekki langur tími til að ná
úr sér ferðaþreytunni því í dag
mæta íslensku stelpurnar liði
Aserbaídsjans.
Júlíus Jónasson, þjálfari
íslenska liðsins, og Finnbogi Sigur-
björnsson, aðstoðarmaður hans,
sögðust lítið vita um lið Aserbaíd-
sjans. „Við vitum í rauninni sára-
lítið um liðið sjálft. Ég talaði við
Miglius, þjálfara karlaliðs HK, en
hann þekkir þjálfara Aseranna og
hann vissi af því að Aserbaídsjan
væri búið að gefa rússneskum og
hvít-rússneskum leikmönnum
vegabréf til að spila með landslið-
inu,“ sagði Finnbogi.
„Það hefur ekki verið hlaupið
að því að fá upplýsingar um þetta
lið þannig að við rennum eiginlega
blint í sjóinn. En ég er samt nokk-
uð viss um að það sama sé upp á
teningnum hjá þeim. Við komum
örugglega til með að fara rólega í
leikinn og reyna að lesa leik þeirra.
Það er líka oft þannig í fyrsta leik
á svona móti,“ sagði Júlíus um and-
stæðinga íslenska liðsins í dag.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta kom í gærmorgun til Valcea í Rúmeníu eftir sólarhringslangt ferða-
lag. Í dag hefst þar keppni í riðli Íslands í forkeppni heimsmeistarakeppninnar í handbolta.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
BARÁTTAN UM JÓLIN ER HAFIN
9.
HVER
VINNUR!
Evrópska handknattleikssambandið, EHF,
hefur komið þeim skilaboðum til IHF að HM í hand-
bolta eigi að fara fram á fjögurra ára fresti, ekki
tveggja ára eins og verið hefur. Þetta segir Tor Lian,
forseti EHF.
„Staðreyndin er sú að á fjórum árum eiga sér stað
fimm stórmót í handbolta,“ sagði Lian við þýska
fréttastofu um helgina. Hann sér fyrir sér að hægt
væri að breyta þessu eftir Ólympíuleikana í Lundún-
um árið 2012.
Evrópumeistaramótið yrði áfram á tveggja ára
fresti og þá alltaf á milli heimsmeistaramóts og
ólympíuleika.
Þá er einnig mikið deilt um fyrirkomulagið á
undankeppnum fyrir HM og ólympíuleika. Alþjóða-
sambandið setur reglur um slíkar forkeppnir en Lian
segir að það eigi að vera undir hverju álfusambandi
komið hvernig fyrirkomulaginu skuli vera háttað.
„Þetta er ekkert nema valdarán,“ sagði Norðmað-
urinn Lian. „Og við sættum okkur ekki við það.“
HM á að vera á fjögurra ára fresti
Fyrirliði heimsmeistara
Ítalíu, Fabio Cannavaro, var kjör-
inn besti knattspyrnumaður ársins
af landsliðsþjálfurum heimsins en
France Football stendur fyrir kjör-
inu ár hvert.
Cannavaro fór frá Juventus að
loknu heimsmeistaramótinu í
sumar til Real Madrid en félagið
var dæmt niður í Seríu B vegna
hneykslismálsins sem skók knatt-
spyrnuheiminn á Ítalíu í sumar.
Með Juventus vann hann ítalska
meistaratitilinn í vor annað árið í
röð en titlarnir voru reyndar báðir
dæmdir af félaginu vegna fyrr-
greinds hneykslis.
„Ég fer auðvitað með bikarinn
aftur til Madríd en það væri einnig
gaman að fara með hann til Tórínó,“
sagði Cannavaro. „Ég átti frábært
tímabil með Juventus, spilaði 37
leiki og skoraði fjögur mikilvæg
mörk. Þetta er einnig viðurkenning
fyrir afrekið sem við unnum á
HM.“
Markvörður Ítala og Juventus,
Gianluigi Buffon, varð annar í kjör-
inu og Thierry Henry hjá Arsenal
þriðji. Þeir fengu einir fleiri en
hundrað stig en næstir komu þeir
Ronaldinho og Zinedine Zidane.
Cannavaro sagði einnig að félag-
ar sínir hjá Juventus hefðu átt
ríkan þátt í árangri sínum.
„Það er þeim að þakka að ég hef
náð að kalla fram mitt besta á vell-
inum. Ég vil því þakka félögum
mínum hjá Juventus og öllum sam-
starfsfélögum mínum í ítalska
landsliðinu.“
Cannavaro er sjötti leikmaður
Real Madrid frá upphafi sem hlýt-
ur verðlaunin en hann minntist
einnig á Napólí, borgina þar sem
hann ólst upp og lærði að spila
knattspyrnu.
„Ég væri einnig til í að sýna
íbúum Napólí bikarinn því það er
mjög sérstök borg, það er staður-
inn þar sem ég ólst upp. Ég var
vanur að spila fótbolta á götum
borgarinnar. Mér þætti mjög vænt
um að sýna bikarinn öllum krökk-
unum sem eiga erfitt uppdráttar.“
Hann bætti þó við að hann ætti
enn langt í land með að ná Argent-
ínumanninum Diego Maradona í
vinsældum þar.
„Diego er mjög sérstök persóna
í Napólí. Ég er mjög stoltur fyrir
hönd borgarinnar að hafa unnið
þessi verðlaun en get þó varla sagt
að ég sé nálægt Maradona í metum
borgarbúa.“
Cannavaro bestur árið 2006
Knattspyrnumaðurinn
Helgi Valur Daníelsson var í gær
orðaður við norska úrvalsdeildar-
liðið Viking sem Birkir Bjarnason
leikur með. Liðið slapp naumlega
frá falli í haust en hið sama er
ekki hægt að segja um Öster, lið
Helga Vals í Svíþjóð. Hann hefur
áður sagt að hann hafi takmark-
aðan áhuga á að leika með
félaginu í sænsku 1. deildinni en
hann er samningsbundinn Öster
til ársins 2008. Hann er sömuleið-
is sagður hafa vakið áhuga
tveggja annarra norskra félaga.
Helgi Valur kom til Öster frá
Fylki fyrir ári síðan.
Orðaður við
Viking í Noregi
The Guardian segir frá
því að Eggert Magnússon,
verðandi stjórnarformaður West
Ham, muni í næstu viku hitta
Tessu Jowell, menningarmálaráð-
herra Breta, sem og Richard
Caborn íþróttamálaráðherra að
máli vegna Ólympíuleikvangsins
sem verið er að byggja fyrir
leikana í Lundúnum árið 2012.
Eggert segir að félagið vilji
flytja heimavöll sinn á leikvang-
inn að leikunum loknum og vilji
ræða leiðir þannig að slíkt
fyrirkomulag muni hagnast
báðum aðilum.
Hittir ráðherra
í næstu viku
Sir Alex Ferguson
knattspyrnusjtóri Manchester
United hefur lagt það í hendur
Louis Saha og Cristiano Ronaldo
að útkljá sín á milli hver á að vera
vítaskytta liðsins.
Saha misnotaði víti gegn Celtic
í Meistaradeildinni sem kostaði
liðið dýrmæt stig í keppnini.
„Þetta er undir þeim sjálfum
komið,“ sagði Ferguson. „Stund-
um leikur annar þeirra betur en
hinn og þá er það ef til vill
skynsamlegt að sá sem á betri
dag taki vítið. Ég sagði reyndar
við Louis að ef honum vantar upp
á eitt mark í þrennu í einum leik
skuli hann taka vítið.“
Saha og Ron-
aldo ráða sjálfir