Fréttablaðið - 28.11.2006, Blaðsíða 25
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Ásgeir Helgi Magnússon æfir dans af
krafti við Listaháskóla Íslands.
„Ég var sumpart rekinn áfram af hegóma-
girnd í upphafi, vildi bara komast í form til
að líta vel út á skólaböllum,“ segir Ásgeir
hlæjandi. „Dansáhuginn var auðvitað líka
fyrir hendi og kviknaði um átján ára aldur
en þá fór ég að sækja Jassballettskóla Báru,
þar sem ég vann mig upp úr byrjenda-
flokki.“
Ásgeir segir dansinn lengi vel hafa verið
áhugamál. Eftir að hann lauk stúdentsprófi
ákvað hann að sækja um inngöngu í Ball-
ettakademíuna í Stokkhólmi, en var viðbú-
inn því að innrita sig í nám við Háskóla
Íslands fengi hann synjun.
„Það kom mér eiginlega í opna skjöldu að
fá inngöngu,“ segir Ásgeir og bætir við að
dansinn hafi í kjölfarið breyst úr áhugamáli
í alvöru. „Ég átti ævintýranlegan tíma úti,
þau tvö ár sem ég var við skólann og lærði
heilmikið. Þarna gerði ég mér fyrst grein
fyrir að dans er ekki aðeins atvinna heldur
lífsstíll.“
Ásgeir segir gífurlega þjálfun liggja að
baki dansinum. Hann æfir nánast sleitu-
laust fimm daga vikunnar og eitthvað um
helgar. Að eigin sögn borðar hann eins og
hestur þar sem brennslan sem fylgir er
gríðarleg. „Ég borða að meðaltali fimm
sinnum á dag,“ segir Ásgeir og telur það í
raun of lítið með hliðsjón af öllum æfingun-
um. „Það er ekki ofsögum sagt að maður
leggi blóð, svita og tár í dansinn, skal ég
segja þér.“
Dans er ekki bara
starf heldur lífsstíll