Fréttablaðið - 21.12.2006, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FLÓÐ „Eiginmaður minn og sonur
eru einhvers staðar að bjarga
skepnum því við eigum svo mikið
af hrossum og kvígum úti,“ sagði
Sigríður Pétursdóttir, bóndi á
Ólafsvöllum á Skeiðum í gær. Þar
var vatn úr Hvítá farið að flæða
nálægt bæjardyrunum.
Mikið tjón varð vegna flóða og
vatnavaxta í ám víðs vegar um
landið í gær. Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins var í viðbragðsstöðu
á Selfossi ef Ölfusá tæki að flæða
yfir bakka sína og inn í hús bæjar-
ins. Á Akureyri flæddi inn í hús,
vegir rofnuðu og aurskriður féllu
á hús og vegi.
Yfir hundrað björgunarsveitar-
menn úr ýmsum björgunarsveit-
um unnu í allan gærdag við að
aðstoða menn og málleysingja sem
urðu fyrir barðinu á vatnselgnum.
Hvítá á Suðurlandi flæddi yfir
bakka sína í gærmorgun og var
vegum og brúm við ána lokað upp
úr hádegi í gær. Almannavarnir
ríkisins gáfu stuttu seinna út við-
vörun þar sem kom fram að flóðið
í Hvítá ætti að ná til Selfoss um
klukkan fimm.
Fjórtán slökkviliðsmenn af
höfuðborgarsvæðinu voru sendir
til Selfoss með dælur og dælubíla
ásamt öllu tiltæku björgunarsveit-
arliði. Upp úr klukkan átta var
farið að vaxa mikið í Ölfusá en ekki
hafði flætt inn í nein hús að ráði.
Um morguninn féllu þrjár skriður
við bæinn Grænuhlíð, þar af ein
sem lenti á bænum. Íbúarnir, hjón
með eitt barn, sluppu ómeidd en
um 20 kálfar drápust.
Bíll lenti í Djúpadalsá í Eyja-
fjarðarsveit þegar vegur við brúna
fór í sundur. Einn var í bílnum og
sakaði ekki. Efri stíflan í Djúpa-
dalsvirkjun brast eftir hádegi í
gær með þeim afleiðingum að vatn
flæddi yfir virkjunina og olli
miklu tjóni. Á Akureyri flæddi
vatn yfir flugvöllinn seinnipart
gærdagsins og var öllu innan-
landsflugi aflýst. Einnig varð tjón
vegna flóðs á Vesturlandi, en vegir
rofnuðu við Borgarnes þegar
Hvítá flæddi yfir bakka við Brúar-
hlöð. - sþs /- þsj /sjá síður 16, 18 og 22
62%
32%35%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Fimmtudagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
70
80
Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
21. desember 2006 — 342. tölublað — 6. árgangur
Smáauglý i
Svört föt, skærir litir, hönnunarvörur og flíkur með
áprentuðum myndum höfða til Estherar. Esther Ýr Steinarsdóttir er ein fárra Íslendinga sem starfa
við tískuljósmyndun. Vikulega birtast tískuþættir hennar á
síðum Orðlauss, en hún segist alltaf hafa haft mjög gaman
af tísku og því sem henni við kemur. Hún segist líka snemma
hafa byrjað að sýna þessu áhuga en aðeins fjögurra ára
gömul neitaði hún að fara út úr húsi án þess að vera í sokk-
um og peysu í stíl. Í dag er Esther aldrei í vafa um hvað
höfðar til hennar og hvað ekki þegar kemur að fatavali. „Ég
held að maður taki það sem hentar manni úr öllum áttum.
Til dæmis get ég ekki nefnt neitt eitt tímabil sem höfðar
mest til mín. Öll tímabilin hafa eitthvað skemmtilegt fram
að færa, en ég viðurkenni samt að ég er mikið í svörtum
fötum, skærum litum og fötum sem hafa einhvers konar
áprentaðar myndir,“ segir Esther og rifjar um leið upp
peysu sem hún tók ástfóstri við þegar hún var sex ára.
„Þetta var alveg skærbleik bómullarpeysa með stórri
áprentaðri mynd af Wham-drengjunum. Ég var hreinlega
alltaf í þessari peysu. Fannst hún alveg geðveik,“ segir Est-
her og hlær. Esther segist kaupa fötin sín víða, en yfirleitt
hefur hún gaman af því að fjárfesta í vönduðum flíkum og
kaupir gjarna föt eftir íslenska hönnuði.
Kápan sem hún klæðist á myndinni er úr versluninni
Birnu á Skólavörðustíg en Birna er íslenskur fatahönnuður
sem opnaði sína fyrstu verslun í Reykjavík fyrir skömmu.
„Þessi kápa kostaði eitthvað um tuttugu þúsund og það
finnst mér í raun ekki mikið miðað við hvað ég er að fá. Þó
að maður borgi stundum aðeins meira fyrir svona fatnað,
þá er það kannski ekki svo dýrt þegar upp er staðið, því
vandaðan fatnað notar maður alltaf meira og svo endist
hann jú líka lengur.“
Myndar tísku
Brautryðjandi og læknir af Guðs náð
Minningabrot Hjalta Þórarinssonar læknis
Athyglisverðar
frásagnir
af einstökum
lækni k
Sammál og sérmál
Evrópusamstarfið hvílir á þeirri
lykilhugsun, að sum
verkefni sérhvers sam-
félags séu þannig vax-
in, að þau krefjist
sameiginlegra
lausna, segir
Þorvaldur
Gylfason.
Í DAG 36
ESTHER ÝR STEINARSDÓTTIR
Starfar við tísku-
ljósmyndun
Tíska Heimili Heilsa Jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
JONAS MOODY
Íslenskur jólaundirbúningur
ólíkur þeim bandaríska
Sérblað um íslensk jól
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
JÓLAÁRDEGISVERÐURSólveig Jónsdóttir gefur góðar uppskriftir að léttum mat um jólin SJÁ BLS. 2
HEIMUR JÓLATRJÁNNANú er kominn tími til að skreyta hús með greinum grænum SJÁ BLS. 8
EFNISYFIRLIT
PLÖTUSALAN
Góð sala
á íslenskri
tónlist
BLS. 2
BÍÓMYNDAJÓL
Jonas Moody furðar sig á íslenskum jólahlaðborðum
BLS. 4
KAFFITÁR Í JÓLAÖSINNIJólakaffið veitir orku BLS. 4
Íslensk jól
[ SÉRBLAÐ UM JÓLAHALD – FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 ]
Konur sem
þagað er um
Viðtal við Sigríði
Dúnu Kristmunds-
dóttur.
MENNING 48
Líkt við Pavarotti
Garðar Thor Cortez
söng fyrir föður sinn á
Englandi.
FÓLK 78
GUNNAR ÓLASON
Boðar þögul mótmæli
á Flags of Our Fathers
Aukaleikurum ekki boðið á viðhafnarsýningu
FÓLK 78
Hópurinn valinn
Alfreð Gíslason, lands-
liðsþjálfari í handknatt-
leik, hefur valið 19
manna æfingahóp fyrir
HM í Þýskalandi.
ÍÞRÓTTIR 70
VEÐRIÐ Í DAG
SKÚRAVEÐUR Í dag verður hvöss
suðaustanátt sunnan og vestan til,
annars hægari. Víða skúrir en hætt
er við slydduéljum á Vestfjörðum
og norðan til. Hiti 1-8 stig, mildast
sunnan og suðaustan til.
2 2
2
65
Fólk og ferfætlingar í hættu
Vatnavextir ollu stórtjóni víða í gær. Slökkvilið var í viðbragðsstöðu á Selfossi ef Ölfusá tæki að flæða yfir
bakka sína og inn í hús. Aurskriður féllu á hús og vegi á Norðurlandi og stífla brast við Djúpadalsá.
Þrír hestar drukknuðu í flóðinu
Björgunarsveitarmenn í Hruna-
mannahreppi og á Laugarvatni
börðust við að bjarga yfir hundr-
að hestum sem komist höfðu
í sjálfheldu vegna flóðanna í
Hvítá og Stóru-Laxá í gærdag.
Félagar í björgunarfélaginu
Eyvindi á Flúðum voru kallaðir
út um ellefu leytið í gærmorgun
til þess að bjarga hestunum og
komu kollegar þeirra úr björg-
unarsveitinni Ingunni á Laugar-
vatni þeim til aðstoðar nokkrum
klukkustundum seinna.
Um tólf manns voru við
björgunarstörf þegar mest var
og lauk störfum klukkan fimm
síðdegis.
Vel gekk að koma hestunum
á þurrt, en þó drukknuðu að
minnsta kosti þrír þeirra í vatns-
elgnum. LJÓSMYND/STEFÁN
BARIST TIL LANDS Fólk og skepnur öttu kappi við náttúruöflin þegar yfir hundrað hrossum var bjargað úr sjálfheldu í Hrunamannahreppi í gær. Litla-Laxá og Hvítá flæddu yfir
bakka sína með þeim afleiðingum að hestarnir urðu innlyksa og þurftu björgunarsveitarmenn úr nærsveitum að nota gúmmíbáta til að reka þá á þurrt. LJÓSMYND/STEFÁN
3
dagar til jóla!
Opið til
22
Gjafabréf - harður pakki en samt mjúkur