Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 18
Þrjár máltíðir = 1075,- Veitingastaður IKEA Opnum kl. 9:00 mánudaga - laugardaga 195,- 2 rúnstykki, 1 egg, skinkusneið, ostsneið, smjör, sulta og heitur drykkur 290,- Grænmetisbuff m/kúskús, grænmeti og graslaukssósu 590,- Hangikjöt með kartöflum, uppstúf, rauðkáli og grænum baunum Þú átt allt gott skilið! kl. 9:00 - 11:00 Morgunverður Hádegisverður framreiddur allan daginn Kvöldverður framreiddur allan daginn fram að jólum Mikill vatnselgur vegna rigninga- veðurs olli töluverðu tjóni á Akur- eyri og víðar í Eyjarfirði í fyrri- nótt og gærdag. Vatn flæddi inn í hús á Akureyri, vegir fóru í sund- ur, aurskriður féllu á bæ í sveit- inni og stífla í Djúpadalsá brast. Ofsaveðrið hófst á þriðjudags- kvöld og olli miklum leysingum. Slökkvilið Akureyrar hóf sam- stundis aðgerðir vegna flóðanna og björgunarsveitin Súlur var kölluð út stuttu síðar til aðstoðar. Að sögn Rúnars Jónssonar hjá Súlum fór mestur tími þeirra í verðmætabjörgun, dælingar úr húsum og áveituframkvæmdir. Vatn flæddi inn í kjallara við Grenilund og olli miklu tjóni á nokkrum húsum í götunni. Þá grófst Hlíðarbraut í sundur við Glerárbrú en bráðarbirgðavið- gerðum á veginum lauk þó í gær. Vatnselgurinn fór að sjatna undir morguninn og hættu menn þá störfum á Akureyri. Stuttu síðar féllu svo aurskrið- ur á útihús og íbúðarhús á bænum Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit. Þar drápust á annan tug kálfa þegar annað útihúsið féll saman. Björg- unarsveitin Dalbjörg var þar að störfum fram eftir degi í gær ásamt bændum í sveitinni. Að sögn Ragnars Jónssonar hjá Dalbjörgu voru á bilinu 20 til 25 menn frá björgunarsveitinni send- ir í Grænuhlíð til að aðstoða við að bjarga því sem bjargað varð. „Við erum búnir að vera með dráttar- vélar og það kom verktaki með traktorsgröfu og vörubíl. Svo mætti jarðýta og hjólaskófla síð- degis til að ná aurnum frá húsinu og veita honum eitthvað annað. Það er búið að hreinsa innan úr húsinu og bjarga því sem bjargað verður. Við ákváðum að hætta undir kvöld þar sem það var komið myrkur og það sást ekkert upp í hlíðina.“ Ragnar segir að fólk hafi komið víðs vegar að úr sveitinni til þess að hjálpa til í Grænuhlíð. „Þessu var bara skipt á vaktir. Konurnar komu með fiskisúpu handa mann- skapnum og þetta leystist með því að allir hjálpuðust að.“ Undir hádegisbilið í gær brast síðan efri stíflan í Djúpadalsá og tók Eyjarfjarðarbraut vestri í sundur. Búist er við því að við- gerðir taki nokkra daga. Verulegt tjón varð á virkjuninni. Einn bíll varð þar innlyksa og var einn maður í honum ásamt hundi. Honum tókst að bjarga sér og hundinum með undraverðrum hætti úr ólgandi fljótinu og slapp í land ómeiddur. Aurskriður og flóð í Eyjafjarðarsveit Gífurlegur vatnselgur olli miklu tjóni á Akureyri og víðar í Eyjarfjarðarsveit í fyrrinótt og fram eftir gærdeginum. Vatn flæddi inn í íbúðarhús, vegir fóru í sundur, aurskriður féllu á sveitarbæ og stífla í Djúpadalsá brast. „Það fóru hérna tvö útihús og 15 til 16 kálfar eru dauðir. Eldra húsið hrundi ofan á kálfana og suma þeirra þurfti maður bara að skjóta þar sem hausarnir stóðu einir undan þakinu. Það var ekk- ert annað hægt að gera en að lóga þeim,“ segir Óskar Kristjánsson bóndi í Grænuhlíð. Hann slapp ómeiddur ásamt konu sinni og barni með því að keyra á dráttarvél yfir aurskrið- una og komast í öruggt skjól á bænum Hrísum. Óskar segir skriðuna hafi valdið honum gíf- urlegu tjóni. „Það er ægilegt verk sem er hérna fyrir höndum. Þetta er mikið áfall.“ Hátt á fjórða tug manna frá nærliggjandi bæjum og björgunarsveitinni Dalbjörgu komu Óskari til hjálpar í gær við að moka frá bænum og hreinsa íbúðarhúsið. Meðal annars var farið með haugsugu inn í húsið til að ná mesta aurnum af gólfinu. Síðan lögðust allir á eitt við að skafa af gólfinu með gúmmísköf- um. Að endingu voru settir blás- arar inn í húsið til að reyna að þurrka það. Aðspurður segist Óskar alveg eins búast við fleiri skriðum þegar líður á vikuna, en aftaka- veðri er spáð á laugardag. „Það má auðvtiað guð einn vita. Ef hann kemur með aðra svona rign- ingu þá náttúrulega veit maður aldrei hvað getur skeð.“ Fjölskyldan slapp á dráttarvél Ey ja fja rð ar áAkureyri Grænahlíð Möðruvellir Hrafnagil Djúpadals- vikjun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.