Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 8
Jólin koma. Ættingjar og vinir hittast og gleðjast saman
yfir margskonar jólagóðgæti. Hellmann's® majónes er
eitt af því sem fullkomnar jólamatreiðsluna og gerir
árangurinn ómótstæðilegan. Flauelsmjúk áferð, besta
hráefni og ósvikin bragðgæði. Gleðileg jól.
Hellmann’s gerir bragðið betra
Ef þú átt afgang af kalkúna um
jólin geturðu gert þetta góða salat.
Kalkúna-waldorf-salat
½ bolli Hellmanns's® Mayonnaise
1 msk sítrónusafi
½ tsk salt
2 bollar af elduðum kalkúna eða
kjúklingi í teningum
1 stórt epli, afhýtt
og kjarnahreinsað
½ bolli sellerí, sneitt
1/3 bolli rúsínur eða þurrkuð
trönuber
¼ bolli laukur, fínt sneiddur
(má sleppa)
Ristaðar valhnetur, saxaðar
(má sleppa)
Hrærið majónes, sítrónusafa og
salt í skál. Blandið öllu öðru en
hnetum vel saman við. Stráið
hnetum yfir salatið. Kælið ef vill.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
3
8
0
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
11
/0
6Barts
í jólapakkann
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Liðlega tvítugt par var í
gær dæmt í 18 mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir til-
raun til smygls á miklu magni af
kókaíni til landsins. Refsingin er
óskilorðsbundin.
Maðurinn, sem var 21 árs þegar
brotið var framið, og stúlkan, sem
var 19 ára, voru ákærð af ríkissak-
sóknara fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir að reyna að smygla
tæplega kílói af kókaíni til lands-
ins í skóm sínum. Fólkið er jafn-
framt ákært fyrir að hafa rúmlega
1,3 kíló af hassi í vörslu sinni, en
efnið fannst á heimili konunnar
við húsleit lögreglu.
Tollverðir fundu kókaínið í
skóm parsins þegar það var að
koma frá Frankfurt í Þýskalandi í
júlí. Höfðu skötuhjúin skipt efn-
inu nokkuð jafnt í skó sína. Konan
hafði í sömu ferð falið 0,26 grömm
af kókaíni í líkama sínum.
Með kókaín í skóm
Bæði norsk og dönsk
stjórnvöld eru mjög opin fyrir því
að skoða alla möguleika á efldu
samstarfi við Íslendinga um
öryggi og eftirlit á hafsvæðinu og
í lofthelginni í kringum Ísland, að
sögn Valgerðar Sverrisdóttur
utanríkisráðherra eftir að háttsett
embættismannanefnd átti í við-
ræðum við fulltrúa Dana og Norð-
manna um þessi mál í vikunni.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Valgerður að fundirnir hafi verið
á mjög jákvæðum nótum og allir
hlutaðeigandi hafi verið sammála
um gagnsemi þess að halda við-
ræðunum áfram á nýju ári. Næstu
fundir með Dönum og Norðmönn-
um verða í febrúar. Viðræðurnar
við frændþjóðirnar eru liður í víð-
tækara samráði sem Íslendingar
hafa leitað eftir við næstu granna
sína í NATO í kjölfar brottfarar
bandaríska varnarliðsins. Hlið-
stæður fundur með fulltrúum
breskra stjórnvalda er fyrirhug-
aður um miðjan janúar og með
Kanadamönnum fljótlega eftir
það, að sögn Valgerðar.
Viðræðurnar við Dani hófust í
Kaupmannahöfn á mánudag, en
sendinefnd háttsettra manna úr
norska stjórnkerfinu og hernum
átti á þriðjudag viðræður í Reykja-
vík við íslensku samninganefnd-
ina, sem er skipuð háttsettum
embættismönnum úr þremur
ráðuneytum.
Kåre Aas, skrifstofustjóri í
norska utanríkisráðuneytinu og
formaður norsku sendinefndar-
innar, segir í samtali við Frétta-
blaðið að viðræðurnar hafi verið
mjög jákvæðar. „Þetta var óform-
legur fundur þar sem við skipt-
umst á sjónarmiðum; við kynnt-
umst sýn Íslendinga á málið og
þeir okkar,“ segir Aas. Norska
sendinefndin skoðaði einnig
aðstöðu fyrir hernaðarumsvif á
fyrirhuguðu öryggissvæði á
Keflavíkurflugvelli. Aas segir
heimsóknina hafa verið fróðlega
og gagnlega fyrir framhaldið.
Að sögn Valgerðar var í við-
ræðunum fjallað um núverandi
samstarf á þessu sviði og hugsan-
legar leiðir til að auka það, bæði
við Norðmenn og Dani. Af hálfu
allra aðila hafi komið fram mjög
svipað mat á þróun öryggismála á
Norður-Atlantshafi og ákveðið að
ýmsir hagnýtir valkostir varðandi
aukið samstarf yrðu skoðaðir,
„þannig að það auki öryggi á
svæðinu öllum þjóðunum í hag“.
Aðspurður sagði Aas að ekki
hefði komið til tals á fundinum
hvernig málið yrði rætt á vett-
vangi NATO, en áður en viðræð-
urnar hófust lögðu norski varnar-
málaráðherrann Anne-Grete
Strøm-Erichsen og fleiri fulltrúar
norskra stjórnvalda áherslu á að
hugsanleg aukin aðkoma Norð-
manna að því að tryggja öryggi og
varnir í lögsögu Íslands yrði að
gerast innan ramma NATO-sam-
starfsins. Spurð um þetta segir
Valgerður að ekki sé búið að
ákveða hvort efni þessara tvíhliða
viðræðna eigi erindi inn á vett-
vang NATO: „Málið er bara ekki
komið það langt að tímabært sé að
ræða það,“ segir hún.
Ánægja með
varnarsamráð
Fulltrúar Íslands, Noregs og Danmerkur eru ánægðir
með viðræður sem fram fóru í vikunni um aukið sam-
starf um öryggismál og ætla að halda þeim áfram á
nýju ári. Þá verður líka rætt við Breta og Kanadamenn.