Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 41
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Svört föt, skærir litir, hönnunarvörur og flíkur með
áprentuðum myndum höfða til Estherar.
Esther Ýr Steinarsdóttir er ein fárra Íslendinga sem starfa
við tískuljósmyndun. Vikulega birtast tískuþættir hennar á
síðum Orðlauss, en hún segist alltaf hafa haft mjög gaman
af tísku og því sem henni við kemur. Hún segist líka snemma
hafa byrjað að sýna þessu áhuga en aðeins fjögurra ára
gömul neitaði hún að fara út úr húsi án þess að vera í sokk-
um og peysu í stíl. Í dag er Esther aldrei í vafa um hvað
höfðar til hennar og hvað ekki þegar kemur að fatavali. „Ég
held að maður taki það sem hentar manni úr öllum áttum.
Til dæmis get ég ekki nefnt neitt eitt tímabil sem höfðar
mest til mín. Öll tímabilin hafa eitthvað skemmtilegt fram
að færa, en ég viðurkenni samt að ég er mikið í svörtum
fötum, skærum litum og fötum sem hafa einhvers konar
áprentaðar myndir,“ segir Esther og rifjar um leið upp
peysu sem hún tók ástfóstri við þegar hún var sex ára.
„Þetta var alveg skærbleik bómullarpeysa með stórri
áprentaðri mynd af Wham-drengjunum. Ég var hreinlega
alltaf í þessari peysu. Fannst hún alveg geðveik,“ segir Est-
her og hlær. Esther segist kaupa fötin sín víða, en yfirleitt
hefur hún gaman af því að fjárfesta í vönduðum flíkum og
kaupir gjarna föt eftir íslenska hönnuði.
Kápan sem hún klæðist á myndinni er úr versluninni
Birnu á Skólavörðustíg en Birna er íslenskur fatahönnuður
sem opnaði sína fyrstu verslun í Reykjavík fyrir skömmu.
„Þessi kápa kostaði eitthvað um tuttugu þúsund og það
finnst mér í raun ekki mikið miðað við hvað ég er að fá. Þó
að maður borgi stundum aðeins meira fyrir svona fatnað,
þá er það kannski ekki svo dýrt þegar upp er staðið, því
vandaðan fatnað notar maður alltaf meira og svo endist
hann jú líka lengur.“
Myndar tísku
Brautryðjandi og
læknir af Guðs náð
Minningabrot Hjalta Þórarinssonar læknis
Athyglisverðar
frásagnir
af einstökum
læknisverkum
Spaugsemi
og leiftrandi
hagmælska
Dreifing:
Sími 663 1224