Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 13
Gjöf til framtí›ar
Legg›u gó›an grunn a› framtí› barnsins
me› Framtí›arbók KB banka.
Me› 5.000 kr. gjafabréfi fær n‡r Framtí›arbókareigandi
2.500 kr. mótframlag frá bankanum.
A› auki fylgir glæsilegt flísteppi öllum 5.000 kr. gjafabréfum
til n‡rra jafnt sem eldri Framtí›arbókareigenda.
fiú getur gengi› frá kaupum á Framtí›arbók í síma 444 7000
e›a í næsta útibúi KB banka.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
8
0
6
Kvörtunum og kærum
almennings vegna heilbrigðisþjónustu fjölgaði
um sextán prósent milli áranna 2004 og 2005,
úr 244 í 290 skráð mál. Mál eru einnig orðin
flóknari og kröfur um rökstuðning og
greinargerðir umfangsmeiri. Þetta kemur
fram í nýrri greinargerð um eftirlit landlæknis-
embættisins með heilbrigðisstofnunum og
starfi heilbrigðisstétta.
Flestar kvartanir voru vegna Landspítalans
sem fækkaði þó hlutfallslega frá árinu á
undan. Næstmest var kvartað undan einka-
stofum, sérfræðilæknum, heimilislæknum,
tannlæknum, sálfræðingum og sjúkraþjálfur-
um. Kvörtunum fjölgaði vegna dvalar- og
hjúkrunarheimila. Landlæknisembættið lagði
tvisvar til við ráðherra að heilbrigðisstarfs-
maður yrði sviptur starfsleyfi árið 2005.
Þrisvar sinnum var heilbrigðisstarfsmanni
veitt lögformleg áminning í framhaldi
kvörtunarmáls og afrit sent til ráðherra.
Árið 2005 bárust í auknum mæli kvartanir
frá sjúklingum til landlæknisembættisins
vegna þess að erfitt var að fá afgreidd algeng
lyf þar sem þau voru ekki til á lager. Átti það
jafnvel við um lyf við alvarlegum sjúkdómum.
Stundum þurfti fólk að borga meira fyrir þau
lyf sem til voru þegar samsvarandi ódýrari
lyf vantaði. Haldnir voru fundir með Lyfja-
stofnun og þeim fyrirtækjum sem hlut áttu að
máli og hafa mál heldur þróast til réttrar áttar
að því er segir í greinargerðinni.
Kvörtunum og kærum fjölgar milli ára
Í fjárhagsáætlun
Akureyrarbæjar fyrir árið 2007
er gert ráð fyrir að 1.200 milljón-
um verði varið í framkvæmdir
vegna menningar-, íþrótta- og
æskulýðsmála.
Heildartekjur Akureyrarbæjar
verða tæpir 12,2 milljarðar króna
á næsta ári en heildargjöld
tæplega 11,9 milljarðar sam-
kvæmt samstæðureikningi.
Á næsta ári verður 175
milljónum varið í fræðslu- og
uppeldismál og 690 milljónir í
menningarmál og munar þar
mest um menningarhús en áætlað
er að nota 680 milljónir vegna
þess.
1.200 milljónir í
aukna þjónustu
Nýting jarðhita í og á
jörðum þjóðgarða og friðlanda
með sérstakri áherslu á umhverfis-
sjónarmið var eitt aðalumræðu-
efni námskeiðs sem Jarðhitaskóli
Háskóla Sameinuðu þjóðanna hélt
nýlega þar sem fyrirlesarar voru
meðal annars frá Íslandi.
Námskeiðið sóttu yfirmenn
orku- og umhverfisráðuneyta,
stjórnendur raforkufyrirtækja og
rannsóknarstofnana og helstu
jarðhitasérfræðingar El Salvador,
Níkaragva, Kosta Ríka og
Gvatemala.
Námskeiðið er hið fyrsta í röð
námskeiða sem haldin verða í
Mið-Ameríku á næstu árum á
vegum Jarðhitaskólans.
Nýting jarðhita
í þjóðgörðum
Nokkrir tugir sjálfboða-
liða munu starfa á Hjálparsíma
Rauða krossins yfir hátíðarnar. Í
fyrra bárust tæplega 200 símtöl á
þessum árstíma og voru flest
þeirra vegna einmanaleika, erfiðra
samskipta innan fjölskyldna og
neyslu áfengis og vímuefna.
Elfa Dögg Leifsdóttir, verkefna-
stjóri Hjálparsímans, segir að því
miður geti ekki allir notið jóla-
hátíðarinnar og að margir eigi um
sárt að binda vegna veikinda,
fátæktar, sorgar, skilnaðar og
fleira. Hjálparsíminn er opinn
allan sólarhringinn og er ókeypis
að hringja í 1717 úr öllum símum.
200 hringingar
um síðustu jól