Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 12
 George W. Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í viðtali við Washington Post á þriðjudag að Bandaríkin væru ekki að vinna Íraksstríðið. „Við erum ekki að vinna, við erum ekki að tapa,“ hefur blaðið eftir Bush, en þetta var í fyrsta sinn sem forsetinn viðurkennir að landar hans séu ekki að sigra í Írak. Á árlegum blaðamannafundi sínum í gær, sem haldinn er í lok hvers árs, dró hann þó orð þessi til baka. „Ég trúi því að við munum vinna, ég trúi því. Ummæli mín [á þriðjudag] endurspegluðu að árangurinn kemur ekki nærri eins fljótt fram og ég vildi,“ sagði Bush og bætti við að uppreisnarmenn í Írak hindruðu í ár tilraunir Banda- ríkjahers til að koma á öryggi og stöðugleika í Írak. Gert er ráð fyrir að Bush leggi fram nýja stefnu stjórnar sinnar varðandi Írak í næsta mánuði, en í gær sagði Bush að Bandaríkja- stjórn myndi fara fram á frekari framlög frá þeim þjóðum sem stutt hafa þau í Írak á næsta ári. Eins kom fram að Robert Gates, nýr varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, íhugi nú áform um að efla bæði landherinn og banda- ríska landgönguliðið til að berjast gegn hryðjuverkum í heiminum, en Bush sagði blaðamanni Wash- ington Post að slíkt væri í bígerð. Nú er rúm hálf milljón manna í bandaríska hernum. Bush svaraði þó ekki spurningu um hvort fjölgað yrði snarlega í bandaríska hernum í Írak, líkt og ráðgjafar hafa lagt til. Fram hefur komið að yfirmenn í bandaríska hernum þar vilji síst af öllu fá fleiri hermenn til landsins og hafa hvatt til þess að aðrar lausnir séu ræddar, svo sem frekari aðstoð við stjórn- og hagkerfi landsins. Nálega 3.000 bandarískir her- menn hafa farist í Írak síðan Bandaríkin gerðu innrás í landið árið 2003 og nýverið kom fram í fréttum breska ríkisútvarpsins að á þessum sama tíma hefðu tæp- lega 50.000 óbreyttir borgarar far- ist í Írak vegna átakanna. Aðrir fréttaskýrendur segja þá tölu allt of lága og segja rúm 600.000 manns vera nær lagi. Margir stjórnmálaskýrendur telja landið verr sett nú en það var fyrir innrásina; ofbeldið sé slíkt að landið sé á barmi borgarastyrj- aldar. Bush fjölgar í herliði sínu Bandaríkjaforseti dró til baka í gær orð sín um að bandaríski herinn væri ekki að vinna stríðið í Írak. Hann ætlar að fjölga herliði lands síns og íhugar að senda fleiri hermenn til Íraks. Talsmenn hersins þar telja það þó enga lausn. Starfshópur um öruggt varasamband fjarskipta við umheiminn leggur til að nýr sæstrengur verði lagður frá Íslandi til Skotlands eða Írlands fyrir árið 2008 og gæti það kostað á bilinu 3 til 4 milljarða króna. Tillögur starfshópsins, sem var skipaður af Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra í sumar, voru kynntar í fyrradag. Nú fer öll net- og talsímaum- ferð um tvo sæstrengi, Cantat 3 og Farice. Cantat 3 er 12 ára gamall og verður flutningsgeta hans sennilega fullnýtt eftir ár. Hann er heldur ekki talinn geta tekið við umferð Farice strengs- ins, komi til bilunar í honum. Flestir háskólar og sjúkrahús landsins hafa þurft að glíma við stopult netsamband síðustu daga vegna bilunar í Cantat 3. Nýr sæstrengur tilbúinn 2008 x6 12/230 volt. AUX-inngangur. Hátalara- og bassa- útgangur. Heyrnatólatengi. Frábær jólagjöf fyrir útilegufólkið. Fullt ver›: 15.900 kr. Safnkortshafar borga a›eins: 9.900 kr. auk 1000 punkta TANGENT UNO BLACK ÚTVARP Ákveðið hefur verið að koma á fót heimili fyrir tíu heimilislausa karlmenn í Reykja- vík. Það voru Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem skrifuðu undir samning þess efnis í gær. Samkvæmt skýrslu samráðs- hóps um heimilislausa eru um 45- 50 karlmenn heimilislausir í Reykjavík á hverjum tíma. Félag- málaráðherra segir þennan hóp glíma við ýmsa erfiðleika svo sem áfengisneyslu, heilsuleysi og geð- sjúkdóma. Þá séu margir þeirra einstæðingar og öryrkjar. „Með stofnun heimilisins er ekki búið að bæta úr húsnæðisvanda þessa hóps í eitt skipti fyrir öll en þetta er mikilvægt skref í rétta átt.“ Á heimilinu verður heimilis- mönnum boðið upp á almenna og sérhæfða heilbrigðis- og hjúkrun- arþjónustu, heildstæða félagslega ráðgjöf og stuðning til þess að ná tökum á lífi sínu til dæmis með því að sækja áfengis- og fíkniefna- meðferð. Dvöl á heimilinu verður ekki háð því að viðkomandi sé hættur neyslu. Heimilið er tilraunaverkefni til þriggja ára og á samningstíman- um munu félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg verja 150-160 milljónum króna til stofnunar og reksturs heimilisins en að því loknu tekur Reykjavíkurborg við rekstrinum. Verið er að leita að húsnæði undir starfsemina. Heimili fyrir tíu heimilislausa Maglite vasaljós Verð frá kr. 990.- Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 110 Reykjavík - Sími 590 2000 - Fax 590 2099 - Opið þorláksmessu frá kl. 10.00-16.00 DÓTABÚÐ BÍLAÁHUGAMANNSINS Mikið úrval af dráttarspilum Verð frá kr. 29.490.- Höfuðljós Verð frá kr. 1.995.- Crosshjálmar Verð frá kr. 9.900.- Loftdælur mikið úrval Verð frá kr. 4.990.- www.benni.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.