Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 22

Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 22
Hafðu það jólalegt 50 02 .V .B s met sy S AE KI re tn I © www.IKEA.is Lengri afgreiðslutími til jóla! Opið frá 10-22 Þorláksmessa 10-23 ISIG þurrkuð blóm H115 cm rautt 595,- ISIG jólasokkur L42 cm 195,- ISIG lugt f/kubbakerti H28 cm 990,- ISIG púði hjarta 40x40 cm ýmsir litir 890,-/stk. GLÄNSA ljósakrans Ø40 cm 1.590,- GLÄNSA innisería 40 perur ýmsir litir 690,- ISIG jólaskraut kúlur 12 stk. Ø6 cm ýmsir litir 390,- ISIG jólaskraut kúlur 6 stk. Ø6 cm 290,- ISIG ljósasería stjörnur 63 perur net 1,2x1,2 m 1.290,- ISIG jólaskraut Ø15 cm 2 stk. 790,- ISIG körfur 3 stk. bananatrefjar 450,- „Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í dag, ég hef varla tölu á útköllunum,“ segir Ólöf Snæ- hólm Baldursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar um gærdaginn. „Fólk úr björgunarsveitum um allt land vann sleitulaust að björgunarstörfum allan gærdag, bæði vegna flóða og veðurs. Svo var vinna við strandið í Hvalsnesfjöru náttúrulega í full- um gangi á sama tíma.“ Hún segist mjög ánægð með viðbrögðin hjá björgunarsveitar- mönnum, ekki hafi verið vanda- mál að kalla út fólk í öll björgunar- störfin. „Fyrir norðan voru um sjötíu manns að vinna við björgunaraðstoð, meðal annars vegna aurskriða og rofinna vega. Þar fyrir utan voru um hundrað og tuttugu að vinna á strand- staðnum fyrir utan alla þá sem komu til hjálpar á Selfossi og annars staðar á Suðurlandi.“ Ólöf segir þessar hamfarir koma á sérstaklega slæmum tíma, en nú er aðalfjármögnunar- aðgerð Landsbjargar, flugelda- sala, að fara í fullan gang. „Auð- vitað er alltaf slæmt þegar svona hlutir gerast en þetta er sérstak- lega slæmur tími því fólkið sem vinnur að flugeldasölunni eru sömu sjálfboðaliðarnir og eru að aðstoða fólk vegna flóðanna.“ Sjálfboðaliðar unnu sleitulaust „Ástæðan fyrir þessum flóðum og vatnavöxtum er í meginatriðum sú að það hlýnar ansi ört og rignir á sama tíma,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands, um veðurfarslega skýringu á flóðum gærdagsins. „Þegar það hlýnar svona ört þá bráðnar snjórinn ofan á rigninguna og skapar svakalega vatnavexti.“ Hann segir niðurföll hönnuð til þess að þola þá úrkomu sem er að öllu jöfnu hérna á landinu en þegar snjórinn bráðni líka sé hætta á að þau hafi ekki við öllu vatninu. En býst hann við að þessi flóð haldi áfram á meðan hlýindin standa yfir? „Nei, ég geri ekki ráð fyrir því. Þegar mesti snjómassinn er farinn af stað þá sjatnar í þessu.“ Hlýnun og rigning orsökin Fjölmargir vegir á landinu lokuð-ust vegna vatnavaxta og aurskriða í gær. Á Vesturlandi var ófært um Ferjukot í Borgarfirði sökum vatnsskemmda, Gjábakkavegur var ófær vegna vatnavaxta, Hvítá flæddi yfir Skeiðarveg við Brúar- hlöð og Auðsholtsvegur var sömu- leiðis ófær vegna vatnselgs. Í Eyjarfirði lokuðu skriður vegum á þremur stöðum. Eyjafjarðarbraut vestri fór í sund- ur í námunda við Skáldstaði, Hörgárdalsvegur lokaðist við bæinn Skriðu og Hólavegur við Grænuhlíð var einnig ófær sökum aurs. Þá var varað við miklu vatns- veðri og grjóthruni í Hvalnes- og Þvottárskriðum austan við Höfn í Hornafirði. Engum vegum hafði verið lokað á Suðurlandi í gær- kvöldi. Skriður lokuðu vegum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.