Fréttablaðið - 21.12.2006, Síða 26
fréttir og fróðleikur
Fjölþjóðlegur
ljósleiðari
Flest vinnuslys í mannvirkjagerð
Líknarfélagið Byrgið hefur
verið á fjárlögum íslenska
ríkisins frá árinu 1999 og
hefur fengið síhækkandi
fjárveitingar þrátt fyrir
fjármálaóreiðu sem athygli
var vakin á árið 2002. Í
úttekt sem utanríkisráðu-
neytið lét gera á rekstri
Byrgisins það ár kom fram
að fjármál stofnunarinnar
væru í molum. Núna er í
gangi úttekt Ríkisendur-
skoðunar á rekstri Byrgis-
ins að beiðni félagsmála-
ráðuneytisins. Byrgið hefur
ekki skilað ársreikningum
síðan árið 2003.
Byrgið, kristilegt líknarfélag, sem
var stofnað af Guðmundi Jónssyni
og hóf starfsemi sína í Hafnarfirði
árið 1996, er athvarf fyrir heimil-
islausa vímuefnaneytendur og
veitir þeim meðferð.
Í mars árið 1999 var gerður samn-
ingur milli utanríksráðuneytisins
og Byrgisins þar sem ráðuneytið
heimilaði Byrginu afnot af mann-
virkjum á Rockville-svæðinu. Sá
samningur var síðan framlengdur
og endurnýjaður áfram þrátt fyrir
að Byrgið uppfyllti ekki ýmis
ákvæði á borð við að afla vátrygg-
inga samkvæmt úttekt sem Aðal-
steinn Sigfússon sálfræðingur
vann fyrir varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins árið 2002.
Spurning um framtíð Byrgisins á
þessum stað var meginástæða
úttektarinnar að sögn Aðalsteins.
„Þetta var tímabundinn samning-
ur og spurning um hvað skyldi
gera í framhaldi af því.“
Í skýrslunni kemur fram að
fjármálastjórn Byrgisins sé aug-
ljóslega í molum, skammtíma-
skuldir séu miklar og upplýsingar
um fjárhagsleg málefni á veikum
grunni. Aðalsteinn mælti með að
Byrginu yrðu gefnir átta mánuðir
til að bæta úr annmörkum og að
forsenda þess að ríkið styrkti
Byrgið væri að uppgjörum yrði
skilað inn á hálfs árs fresti, árituð-
um af endurskoðanda.
Í kjölfarið var stofnaður vinnu-
hópur aðstoðarmanna þriggja ráð-
herra heilbrigðis-, utanríkis- og
félagsmálaráðuneyta. Vinnuhóp-
urinn lagði til að Byrgið færi í
hentugra húsnæði og að gerður
yrði samningur við Byrgið sem
væri háður þeim fyrirvara að
rekstrinum yrði komið í eðlilegt
horf. Sumarið árið 2003 fór Byrgið
úr Rockville og með því lauk
afskiptum utanríkisráðuneytisins
af Byrginu og það fór undir
umsjón félagsmálaráðuneytisins.
Þá var gerð yfirlýsing um styrk til
Byrgisins sem gildir út árið 2007.
Byrgið hefur verið á fjárlögum
íslenska ríkisins frá árinu 1999 og
fengið tæpar 230 milljónir alls
með fjárveitingu næsta árs með-
talinni sem er upp á 29,5 milljón-
ir.
Byrgið er skráð sem sjálfseign-
arstofnun í atvinnurekstri og er
samkvæmt lögum skylt að skila
inn ársreikningum. Engir árs-
reikningar hafa borist fyrir árin
2004 og 2005 þrátt fyrir að ítrekað
hafi verið rekið á eftir skilum að
sögn Guðmundar Guðbjarnarson-
ar, starfsmanns hjá ríkisskatt-
stjóra. Guðmundur segir ekki
algengt að fyrirtæki og stofnanir
skili ekki inn ársreikningum. „En
þau félög sem skila ekki ársreikn-
ingum, eru félög sem eru meira og
minna ekki með bókhaldið í lagi og
þar af leiðandi ekki ársreikning-
inn.“
Fyrir rúmum mánuði óskaði
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra eftir því að Ríkisendur-
skoðun tæki út rekstur Byrgisins.
Magnús segir meginástæðu þess
að forstöðumaður Byrgisins hafi
viljað fá nýjan þjónustusamning
þar sem núgildandi yfirlýsing um
styrk til Byrgisins rennur út í lok
ársins 2007 en einnig hafi hann
fengið gögn í hendurnar um svip-
að leyti sem hafi hvatt hann til að
óska úttektarinnar.
Samkvæmt lögum um Ríkisendur-
skoðun skal hún meðal annars
annast endurskoðun reikninga
stofnana þar sem kostnaður eða
reikningslegt tap er greitt af ríkis-
sjóði samkvæmt fjárlögum og á
þetta við um Byrgið, að sögn Sig-
urðar Þórðarsonar ríkisendur-
skoðanda.
Aðspurður um hver beri ábyrgð
á því að ákvæði samnings Byrgis-
ins og ríkisins hafi ekki verið upp-
fyllt segir Sigurður hægt að draga
ráðuneyti, Ríkisendurskoðun eða
ársreikningaskrána fram í þeim
efnum. „Það fer ekki á milli mála
að við viljum komast yfir allt það
sem við eigum að endurskoða.
Þetta er auðvitað spurning um
hvort við höfum getuna og við
verðum að velja og hafna. Við
höfum auðvitað lagt mikla áherslu
á að skoða fyrst og fremst ríkisað-
ila. En það liggur alveg ljóst fyrir
að við þurfum að fara að sinna
hinu miklu meira en hefur verið
gert fram að þessu.“
Styrkt þrátt fyrir fjármálaóreiðu