Fréttablaðið - 21.12.2006, Side 28

Fréttablaðið - 21.12.2006, Side 28
Náttúrufræðistofnun Ís- lands og Náttúrugripasafn Íslands hefur verið mikið í fréttum að undanförnu vegna húsnæðisvanda. Þús- undir safngripa töpuðust þegar frystigeymsla stofn- unarinnar varð rafmagns- laus og litlu mátti muna að dýrmætustu gripirnir töp- uðust þegar heitt vatn flóði um sýningarsali safnsins að Hlemmi. Þessir atburðir hafa kastað ljósi á áratuga sögu safns á vergangi sem nú er hýst í lyftulausu skrif- stofu- og iðnaðarhúsnæði. Náttúrugripasafnið er eitt af elstu söfnum landsins og var Björn Bjarnarson, síðar sýslumaður Dala- manna, fyrstur til að koma með til- lögu um stofnun slíks safns árið 1884. Árið 1889 var Hið íslenska náttúrufræðifélag stofnað í Reykja- vík. Í lögum þess segir að aðaltil- gangur félagsins sé „sá að koma upp sem fullkomnustu náttúru- gripasafni á Íslandi sem sé eign landsins og geymt í Reykjavík”. 117 árum seinna hefur þessi draumur ekki enn ræst. Um tvær og hálf milljón gripa í vísindasöfnum stofnunarinnar er geymd í óhentugum geymslum víða um land og alls mun þjóðin eiga um fimm milljónir náttúru- gripa sem þarf að koma í viðunandi geymslu- og sýningaraðstöðu. Ekki er liðinn nema rúmur mánuður síðan NÍ varð fyrir óbætanlegu tjóni vegna þess að eigendur frystileigu ákváðu að farga öllu innihaldi klefa sem stofnunin hafði á leigu, að henni forspurðri. Þar fóru forgörðum sex arnarhamir og fimmtíu fálkahamir ásamt um tvö þúsund öðrum sýnum stofnunar- innar. Af þeim má nefna safn sjald- gæfra flækingsfugla. Tjónið vegna þessarar uppákomu er talið geta numið hundruðum milljóna króna. Geirfuglinn, einstakur og ómetan- legur safngripur í eigu þjóðarinn- ar, hefði síðan auðveldlega getað eyðilagst nokkrum vikum seinna vegna hitavatnsleka í sýningarsöl- um við Hlemm. Hundruð lítra af heitu vatni flæddi þá inn í sýning- arsal á 4. hæð þar sem geirfuglinn var meðal annars hafður til sýnis og niður á milli hæða inn í sýning- arskápa á 3. hæð. Litlu mátti muna því hefði lekinn komið upp í safn- inu mannlausu hefði geirfuglinn og aðrir safngripir væntanlega eyði- lagst. Engir vatns- eða raka- skynjarar voru í húsnæði safnsins en viðkvæma náttúrugripi verður að varðveita við sérstök skilyrði eigi þeir að halda gildi sínu. Fugl- inn var fjarlægður úr sýningar- skáp vegna rakans, á meðan unnið var að því að þurrka upp vatnið, og síðar fluttur í geymslur Þjóðminja- safnsins í Kópavogi. Þar verður hann geymdur á meðan lagfæring- ar verða gerðar á húsnæðinu við Hlemm. Geymslur NÍ eru tvær í Reykjavík, tvær á Akureyri auk þess sem í Sandgerði er geymt töluvert magn gripa. Engin af þess- um fimm geymslum hentar til geymslu viðkvæmra náttúrugripa. Sautján nefndir hafa fjallað um málefni Náttúrufræðistofnunar Íslands og Náttúrugripasafns Íslands á undanförnum árum og ítarlegar upplýsingar um rýmis- þörf og sýningarstefnu liggja fyrir. Gerð var áætlun um að byggja 6.800 fermetra náttúruhús í samstarfi ríkisins, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands árið 1991, og átti húsið að vera fullklárað árið 1998. Áætlaður kostnaður var tæpir 1,5 milljarðar króna að núvirði. Til samanburðar er núverandi húsnæði Náttúrufræðistofnunar ásamt sýn- ingarsölum náttúrugripa að Hlemmi 1.520 fermetrar að stærð. Þar af er sýningarrýmið um 200 fermetrar. Nýtt Náttúruhús átti að rísa í Vatns- mýrinni austan Norræna hússins og átti hlutur náttúrusafns að vera 3.800 fermetrar og 3.000 fermetrar áttu að fara undir skrif- og rann- sóknarstofur auk annarrar aðstöðu vísindamanna NÍ. Lóðaúthlutun hússins er enn í gildi og myndi það standa við hlið Öskju, kennsluhús- næðis í náttúrufræðum við HÍ, ef sú lóð yrði nýtt. Það myndi tengja NÍ við þá sem eru að kynna sér, eða þekkja til alls þess nýjasta í nátt- úrufræðum í víðasta skilningi. Hlýtur þessari staðsetning Náttúruhúss að vera haldið til streitu, ætli íslensk þjóð sér að fylgja fordæmi annarra þjóða við að fanga stórkostlega náttúru landsins sem aðdráttarafl; hvort sem litið er til þeirra sem hér búa eða þeirra sem okkur heimsækja. Baráttan fyrir upp- byggingu náttúru- húss, náttúruminja- safns, snýst ekki um það sem í hugum margra er klassískt gamaldags safn með skúffum og skápum sem fyllt er af náttúru- gripum án skýringa. Til stendur að hér rísi nútíma- legt náttúru- og vísindasafn sem sýnt getur almenningi, jafnt fræðimönnum, ferðamönnum og for- vitnum krökkum, safn sem hefur fræðilegan bakhjarl og beitir nýjustu sýningar- tækni við kynningu á niðurstöðum rannsókna á náttúru Íslands og miðlar mikilsverðum erlendum fróðleik og náttúru- og vísindasýn- ingum. Metnaðurinn stendur til þess að koma upp veglegu náttúru- húsi þar sem litið er heildstætt á náttúruna, þar sem gestir geta kynnst og skoðað hvernig landið okkar og náttúra þess hefur mótast og ekki síður hvaða áhrif náttúran hefur á okkur mennina og við á hana. Ekki má gleyma að gott nátt- úruhús með metnaðarfullu safni, sem jafnframt er vísindastofnun, mun styrkja kennslu í raunvísind- um á öllum skólastigum og auka þekkingu almennings á náttúru landsins; málefnis sem brennur á öllum sem láta sig framtíð þessarar þjóðar einhverju varða. Þetta er sýn Hins íslenska náttúru- fræðifélags og flestra sem koma að safnamálum náttúrufræða á Íslandi. Sérfræðingar á NÍ hafa ekki síst verið óþreytandi að halda þessu sjónarmiði á lofti, enda stendur málið þeim nærri. Jónína Bjart- marz umhverfisráðherra tók upp málefni NÍ og Náttúrugripasafns- ins á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag, og hafði áður fundað tvisvar með Jóni Gunnari Ottóssyni, forstjóra NÍ, til að ræða húsnæðisvanda stofnunarinnar. Jón Gunnar sagði fundinn hafa verið góðan og var bjartsýnn á að nú kæmist loksins hreyfing á málefni NÍ eftir áratuga baráttu. Niðurstaða ríkisstjórnarfundarins er óljós. Helst virðist þó ljóst að NÍ og safnið verði staðsett í Reykjavík, í nánu samstarfi og undir sama þaki. Sveitarfélagið Borgar- byggð bauð nýlega NÍ allt að 100 milljóna króna stuðning til að hjálpa til við að leysa húsnæðisvanda stofnunar- innar og Náttúrugripasafns- ins. Einnig hefur þeirri hug- mynd verið varpað fram að nýta húsakostinn sem skilinn var eftir við brotthvarf Banda- ríkjahers á Miðnesheiði. Hvort það hefði verið ráð- legt er kannski rétt að skoða í ljósi þess að mikið tjón varð þar nýlega vegna vatnsleka. Náttúrufræðistofnun var leyst undan þeirri skyldu að reka sýn- ingarsafn með lögum árið 1992. Gert er ráð fyrir því að sýningarsafnið sé í sameign og í sameiginlegum rekstri ríkisins, Reykjavíkur- borgar og HÍ. Ekkert hefur þó þokast í átt til slíks samstarfs þau fjórtán ár sem liðin eru. Staðan er sú að í lagalegum skilningi er ekkert náttúrufræðasafn eða nátt- úrugripasafn til. Náttúrugripasafn- ið hokir engu að síður „undir súð“ á Hlemmi og bíður örlaga sinna. Þar er í herbergiskytru sama sýning og undanfarna áratugi. Góð sýning sem landsmenn eru orðnir leiðir á, ferðamenn tíma ekki að borga sig inn á, og fatlaðir eiga ekki kost á að sjá. Erlendis eru náttúrugripasöfn einn vinsælasti viðkomustaður erlendra gesta. Árið 2005 komu tæplega 3.000 manns að skoða sýningu á náttúrugripum á Hlemmi. Sextán prósent af þeim voru ferðamenn. Á sama tíma er talið að allt að 200.000 gestir myndu sækja nýtt Náttúru- hús á Íslandi, þar sem glæsilegum sýningum yrði gert hátt undir höfði. Þar fengi þjóðin að kynnast sínu eigin landi, fræðast um hvað er hér að finna, hvernig það varð til og hvernig dýr, bæði stór sem smá, hegða sér í samhengi við búsetu- kosti. Þjóðin bíður spennt, eins og síðastliðin 117 ár. Þjóðararfurinn á vergangi JÓLAGLEÐI Í HÚSGAGNAHÖLLINNI OPIÐ TIL Kl.22 Þorláksmessa opið til kl. 23Komdu og fáðu frí a mynd m eð jólas veininu m
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.