Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 54
Í Evítu að Starmýri 2 er hægt
að fá jólaklippinguna og -gjaf-
irnar á einum og sama stað.
„Þetta fyrirkomulag, að blanda
saman hárgreiðslustofu og gjafa-
vöruverslun er tiltölulega nýtt
fyrirbrigði hérlendis en þekkist
víða úti í heimi,“ segir Lára Magn-
ea Davíðsdóttir, sem rekur Evítu
ásamt eiginmanni sínum Arinbirni
Sigurgeirssyni.
„Við hjónin vorum búin að reka
hárgreiðslustofu í nokkur ár og
seldum einhverja gjafavöru með-
fram því, en þegar rakari sem var
hjá mér hætti færðum við stofuna
einfaldlega inn fyrir og bjuggum
til gott búðarpláss,“ útskýrir Lára
og bætir við að þetta fyrirkomu-
lag bjóði upp á ýmsa möguleika.
Til dæmis sé hægt að drepa tím-
ann á meðan maður bíður með
strípur eða lit í hárinu og skoða
vöruúrvalið.
Ekki er skortur á vörum í Evítu,
en þær eru danskar og mætti
flokka sem gjafavöru, velflestar í
ódýrari kantinum. Mikið er um
skreytingar, box, lampa, kerti,
kertastjaka, ljósakrónur, og luktir,
sem ættu að koma að góðum notum
í öllu skammdeginu ásamt því að
setja fallegan svip á heimilið.
Lára, sem er hágreiðslumeist-
ari, hleypur sjálf í afgreiðslustörf-
in ásamt starfsfólki sínu en fær til
sín afgreiðslustúlku þegar mest er
að gera, eins og um jólin. Segir
hún þetta skipulag gagnast vel auk
þess sem viðskiptavinirnir fari
heim ánægðir með að hafa fengið
klippingu og gert góð kaup á
einum og sama staðnum.
Aðspurð segir Lára staðsetn-
ingu rekstursins, sem er inni í
miðju íbúðahverfi, ekki draga úr
aðsókninni eins og sumir gætu
talið, meðal annars þar sem löng
hefð sé fyrir verslunarrekstri í
húsnæðinu.
„Hér var verslunin Víðir rekin
á sínum tíma ásamt bakaríi við
hliðina,“ útskýrir Lára. „Nú stend-
ur hárgreiðslustofan ein eftir og
hefur verið rekin samfleytt í 44 ár,
þótt eigenda- og nafnaskipti hafi
verið nokkur á þeim tíma. Sjálf
hef ég verið með hárgreiðslustof-
una Evítu síðastliðin fimmtán ár í
hverfinu en rak hana áður í tíu ár
uppi í Breiðholti. Starfsemin fór
hér rólega af stað, en hefur spurst
út og nú hef ég í nógu að snúast
alla daga.“
Gjafavara og hárgreiðsla
undir sama þaki
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
Á HÆGINDASTÓLUM MEÐ NUDDI
20-65%
AFSLÁTTUR