Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 58

Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 58
„Jólaundirbúningurinn er frekar ólíkur í Bandaríkjunum því þar eru svo margar hátíðir á undan jólun- um og það er ekki hægt að byrja á jólaundirbúningnum fyrr en þakk- argjörðarhátíðin er búin í lok nóv- ember,“ segir Jonas Moody, þýðandi hjá KB banka. „Á Íslandi byrjar allt strax í október, þegar hrekkjavakan er haldin í Bandaríkjunum, og búð- irnar setja þá fram jóladót og byrja að auglýsa. Þetta yrði ekki liðið úti, fólki myndi ekki finnast vera kom- inn tími fyrir jólin.“ Íslendingar hafa flestir ákveðna mynd í huga þegar kemur að banda- rískum jólum, mynd af stórbrotnum útiskreytingum og sönghópum sem ganga hús úr húsi og syngja jólalög. „Þetta er svolítið eins og í bíómynd og fólk leggur mikið upp úr því að skreyta húsin að utan. Það er alveg samkeppni og fólk gerir mikið af því að keyra eða ganga um hverfið og skoða hvað aðrir að gera,“ segir Jonas. „Skrautið er aðallega úti í Bandaríkjunum en á Íslandi skreytir fólk miklu meira inni. Húsin hér eru kannski frekar illa skreytt að utan en það er allt önnur saga þegar maður kemur inn. Ég held að það sé af því að Íslendingar eru miklu meira inni yfir jólin, út af veðrinu og svoleiðis. Hér skiptir samver- an með fjölskyldunni miklu máli. Fólk drekkur saman kaffi, spilar og þess háttar. Mamma mín býr í Texas núna og þar er frekar heitt þannig að fólk hittist mikið úti. Það snjóaði í Montana um daginn en þar er sama viðhorf og hér, frábært að hafa snjó fyrsta daginn en ekki mikið lengur en það.“ Jonasi finnst íslenskur jólamatur mjög góður en frekar þungmelt- ur. Honum finnst þó að öllu megi ofgera og að jólamatur í heilan mánuð sé full mikið af því góða. „Ég er búinn að fara á fimm jóla- hlaðborð! Fólk borðar í Bandaríkj- unum líka en það er einn dagur, hérna fara allir á næstum þúsund jólahlaðborð vikurnar fyrir jólin og síðan í ræktina til að geta borðað eitthvað á jólunum sjálfum.“ Það er þó fleira sem er öðruvísi hérna á Íslandi, til dæmis eru önnur trúarbrögð en kristni mun útbreidd- ari og því miklu fjölbreyttari hátíða- höld um jólin. „Fólk er yfirleitt hætt að segja „gleðileg jól“ og segir frek- ar „gleðilega hátíð,“ eða eitthvað slíkt til að segja ekkert rangt við þá sem halda ekki jól,“ segir Jonas og bætir við að honum finnist gott að njóta jólanna hér með jólalögum og jólasveinum. „Ég skil samt ekki alveg hvernig þetta virkar með jóla- sveinana á Íslandi ennþá.“ - hhh Jól úr bandarískri bíómynd Jonas Moody er alinn upp í Montana-ríki í Bandaríkjunum og hefur búið á Íslandi í fjögur ár. Hann segir jólahlaðborð Íslendinga fullmikið af því góða. Á komandi dögum eiga allflestir höfuðborgarbúar eftir að leggja leið sína í miðborgina til að kaupa jóla- gjafir. Flakk á milli búða og vanga- veltur um hvað vinir og ættingjar óska sér, krefst töluverðrar orku, bæði andlegrar og líkamlegrar. Því er gott að geta brugðið sér á kaffi- hús til að endurnýja sig og hvíla hugann um stund. Sum kaffihúsin eru með jóla- matseðil og önnur bjóða upp á jóla- kaffi sem er sérstaklega lagað til að auðga andann í jólaösinni. Hvert sem þú ákveður að fara, þá er um að gera að muna að hvíla sig á milli tarna, því annars gæti farið svo að fólk eyði um efni fram og fari offari í innkaupunum. Jólakaffi með gjafainnkaupum Kaffi og kaka hafa löngum gagnast landsmönnum vel við endurnýjun orkunnar. { íslensk jól } Gjafavörur hringar – úr þjóðbúningasilfur Nonni GULL Strandgötu 37 • sími 565 4040 Handverk í sérflokki Desemberafsláttur á trúlofunarhringum Ferskvatnsperlur í metratali! www.lovedsign.is • www.nonnigull.is Fj ar ða rp ós tu rin n 06 12 – © H ön nu na rh ús ið eh f.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.