Fréttablaðið - 21.12.2006, Síða 92

Fréttablaðið - 21.12.2006, Síða 92
Glæpasagan hefur skákað ævi- sögunni sem vinsælasta samtíma- ritlist Íslendinga og nú keppast allir við að skrifa glæpasögur, unnendum þeirra til mikillar gleði. Barnabókahöfundar láta ekki sitt eftir liggja og ráðgátur og leyndardómar eru viðfangs- efni þeirra tveggja bóka sem hér eru til umfjöllunar. Ráðgátur eru þó ekki nýjar af nálinni i í barna- bókum og ekki ómerkari höfund- ar en Astrid Lindgren, Enid Blyton og Guðrún Helgadóttir hafa léð þessari bókmenntagrein penna sína. Og nú Sigrún Eldjárn og Björk Bjarkadóttir sem einnig eiga það sameiginlegt að vera bæði rithöfundar og myndlistar- menn og eiga því heiðurinn af bæði myndskreytingum og sögu- þræði í bókum sínum. Amma fer í sumarfrí eftir Björk Bjarkadóttur segir frá Óla og ömmu hans, en um þau hafa áður komið út tvær bækur. Í þessari bók þarf amma að komast í frí, enda búin að klófesta alla bófana í heima- bæ sínum, og fer með barnabarnið sitt á sólarströnd þar sem hún getur auðvitað ekki stillt sig um ná í skott- ið á nokkrum glæpamönnum. Að þessu sinni hefur hún þó samúð með hinum brotlegu og leysir vanda margra í einu á milli þess sem hún sólar sig og fer á markaði eins og aðrar ömmur gera. Þetta er skemmtileg saga sem er ekkert of flókin og ýtir undir að lítil lestrar- folöld geti sjálf spreytt sig á text- anum með því að hafa sum orðin í stóru og aðgengilegu letri. Mynd- irnar eru afar skemmtilegar og Björk er vel að íslensku myndskreytiverðlaununum Dimmalimm komin. Gula sendibréfið eftir Sigrúnu Eldjárn er eins og aðrar bækur höfundarins gneistandi af sköpunargáfu og hugmyndaflugi. Ráðgátan snýst um sendibréf sem aðalpersónan, Logi, finnur á leið sinni um vægast sagt ævintýra- legt landslag með ósýnilegum vini sínum. Þegar hann kemur til sýnilegu vinanna sinna þá eru þau önnum kafin við að baka kökur með tannkremi en taka þátt í að leita lausna á leyndardómnum um bréfið gula sem leiðir þau á vit enn fleiri ævintýra. Sagan er spennandi og lausnin óvænt og ævintýraleg með óskasteinum og bleikum kanínum en ekki verður nánar farið út í það hér. Eitt af því sem vekur athygli er að í heimi sögunnar skiptir það nákvæmlega engu máli þó Sigga líti út fyrir að vera kínversk og Nói sé í hjóla- stól. Það er alltaf skemmtilegt þegar þeir sem eru aðeins öðru- vísi fá svona sjálfsagðan stað í bókum. Sagan er mjög fyndin, bæði fyrir börn og fullorðna, og myndirnar skemmtilegar og fjöl- breyttar eins og myndir Sigrúnar eiga vanda til. Þessar sögur ættu að vekja upp Kalla Blómkvist í mörgum börn- um og búa þau undir að leysa flóknari ráðgátur í framtíðinni. Stóra sviðið kl. 20:00 Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 6/1, lau. 13/1 lau. 20/1, lau. 27/1. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus. BAKKYNJUR eftir Evripídes Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1. LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson Fös. 22/12 kl. 13:00 uppselt, lau. 23/12 kl. 13:00 uppselt. Leikhúsloftið SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. Kúlan Smíðaverkstæðið kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1 Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is. Bakkynjur, frumsýning 26. desember. Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósa- tónleika á síðustu dögunum fyrir jól og nú verða þrennir tónleikar víðs vegar á höfuðborgarsvæð- inu. Mozart-tónleikar Camerarc- tica hafa verið fastur liður í aðventuhátíðinni í yfir áratug og þykir mörgum ómissandi að fá að setjast inn í kyrrðina á þess- um annasama tíma. Í tilefni af 250 ára afmæli tón- skáldsins leikur hópurinn nú á upprunaleg hljóðfæri eins og þau sem tíðkuðust á klassíska tíman- um, hljóðfæri sem bera með sér andblæ liðinna alda, þegar lífið var rólegra og hljóðlátara. Á efnisskránni er eitt fræg- asta kammerverk Mozarts, Kvartett fyrir flautu og strengi í D-dúr, Adagio fyrir klarinett og strengi og Tríó fyrir strengi, einnig eftir Mozart. Einnig verð- ur leikinn Kvartett fyrir klarinett og strengi eftir samtímamann Mozarts, Karl Stamitz. Fyrstu tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld og hefjast kl. 21 en annað kvöld leikur hópurinn í Kópavogskirkju og loks í Dómkirkjunni við Austur- völl. Camerarctica skipa þau Hall- fríður Ólafsdóttir, flautuleikari, Ármann Helgason, klarinettu- leikari, Hildigunnur Halldórs- dóttir, fiðluleikari, Svava Bern- harðsdóttir, lágfiðluleikari og Sigurður Halldórsson, sellóleik- ari. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn, nemendur og eldri borgarar fá afslátt og ókeypis er fyrir börn. Kyrrð, kertaljós og Mozart Leynilöggusögur fyrir lítil lestrarfolöld
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.