Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 18
[Hlutabréf]
Eigendur eignarhaldsfélagsins
Hesteyrar vinna að því að skipta
félaginu upp í þrjú eignarhalds-
félög og hefur skiptingaráætlun
verið lögð á borð yfirvalda. Mið-
ast skiptingin við 1. september
síðastliðinn.
Hesteyri er í jafnri eigu
eignarhaldsfélagsins Samvinnu-
trygginga og útgerðarfyrirtækj-
anna FISK Seafood á Sauðárkróki
og Skinneyjar-Þinganess á Höfn,
Hornafirði. Félögin þrjú, sem
taka við eignum og skuldum
Hesteyrar, eru B-EST ehf., C-
S&Þ ehf. og D-félagið ehf.
Liður í uppstokkuninni var
sala á tæplega tveggja prósenta
hlut í Exista í gær. Hesteyri fékk
tæpa 4,8 milljarða króna fyrir
sinn snúð en heldur eftir 3,82
prósentum í Exista auk hluta-
bréfa í Skinney-Þinganesi.
Hesteyri kom fram á sjónar-
sviðið sumarið 2002 þegar fyrir-
tækið eignaðist fjórðungshlut í
Keri, eiganda Olíufélagsins.
Þessum bréfum var skipt fyrir
bréf í VÍS síðar sama ár. Mikill
hagnaður féll í skaut Hesteyrar
þegar Exista keypti VÍS eignar-
haldsfélag í maí á þessu ári og
greiddi kaupverðið með eigin
bréfum. Ætla má að Hesteyri
hafi grætt um níu milljarða við
söluna.
Hesteyri leyst upp til eigenda
Félagið hagnðaðist gríðarlega á árinu þegar Exista keypti VÍS eignarhaldsfélag.
Með kaupunum á
franska fyrirtækinu
Gibaud Group kemst
Össur í hóp tíu stærstu
fyrirtækja heims á mark-
aði með stuðningstæki.
Félagið hefur yfir tuttugu
prósenta markaðshlut-
deild í Frakklandi.
Össur hefur keypt franska fyrir-
tækið Gibaud Group fyrir 132
milljónir Bandaríkjadala, sem
nemur um 9,3 milljörðum íslenskra
króna. Félagið verður áfram rekið
undir eigin nafni, enda hefur vöru-
merkið mjög styrka stöðu í Frakk-
landi að sögn Jóns Sigurðssonar,
forstjóra Össurar. Þetta eru önnur
stærstu fyrirtækjakaup Össurar
frá upphafi, á eftir bandaríska
stuðningstækjafyrirtækinu Royce
sem var tekið yfir árið 2004. Frá
árinu 2000 hefur Össur tekið tólf
fyrirtæki yfir víðs vegar um
heim.
Gibaud Group er leiðandi á
sviði þróunar og framleiðslu á
stuðningstækjum með sérstaka
áherslu á spelkur og vörur til
notkunar við blóðrásarmeðferðir.
Félagið er næststærst á franska
stuðningstækjamarkaðnum með
yfir tuttugu prósenta markaðs-
hlutdeild. Með kaupunum á félag-
inu kemst Össur í hóp tíu stærstu
fyrirtækja á stuðningstækja-
markaðnum. Össur hefur mark-
visst verið að styrkja sig á þessum
markaði frá því árið 2003, þegar
Generation II Group var keypt.
Jón segir markaði með
stuðningstæki og stoðtæki, þar
sem Össur hefur mjög sterka stöðu
á heimsvísu, fara vel saman. „Við
getum notaða svipaða tækni á
stuðningstækjamarkaðnum og í
stoðtækjunum. Í báðum tilfellum
er grunnhugmyndin sú að verið er
að hjálpa fólki að hreyfa sig. Þar
að auki eru sölu- og dreifileiðirnar
líka svipaðar.“
Gibaud Group hefur jafnframt
yfir tíu prósenta markaðshlutdeild
á markaði með vörur til notkunar
við blóðrásarmeðferð. Þetta er
fyrsta skref Össurar í þessa átt.
„Við förum inn á þennan markað
vegna þess að það eru ákveðin
samlegðaráhrif milli markaða með
stuðningstæki og blóðrásar-
meðferðir í Evrópu. Stuðnings-
tæki eru seld í gegnum sérhæfðar
heilsubúðir í Evrópu og þar eru
þessar vörur líka til sölu.“
Hjá Gibaud Group starfa 361
starfsmaður. Það rekur tvær
starfsstöðvar, aðra í Saint-Etienne
og hina í Trevoux fyrir norðan
Lyon en þar eru framleiddar vörur
til notkunar við blóðrásarmeðferðir.
TM Software og hugbúnaðar-
fyrirtækið AKVA Group ASA hafa
skrifað undir viljayfirlýsingu um
kaup þess síðarnefnda á öllum
hlutabréfum í Maritech Inter-
national AS, dótturfyrirtæki TM
Software. Þar með talin eru öll
hlutabréf í Maritech sem er með
starfsstöðvar í Noregi, Chile,
Bretlandi og Bandaríkjunum auk
eigna tengdum sjávarútvegi sem
heyra undir Maritech hf. á Íslandi
og Maritech Software Inc. í
Kanada.
Heildarsöluverð Maritech-
fyrirtækjasamstæðunnar er 80
milljónir norskra króna eða sem
samsvarar um 903 milljónum
íslenskra króna. Innifalin er yfir-
taka á skuldum félagsins. Kaup-
verðið verður greitt með pening-
um við fullnustu samningsins.
Áætluð velta Maritech og tengdra
fyrirtækja 2006, sem AKVA kaupir
samkvæmt samningnum, er um
1,5 milljarður íslenskra króna.
Haft er eftir Ágústi Einarssyni,
nýráðnum forstjóra TM Software,
í fréttatilkynningu að með sölunni
sé TM gert kleift að leggja meiri
kraft í þróun og útrás fyrirtækis-
ins í lausnum fyrir heilbrigðis-
geirann. Þar séu möguleikar á
áframhaldandi vexti miklir.
Samningurinn gerir ráð fyrir
að TM Software afhendi AKVA
Group öll kerfi sem fyrirtækið
hefur þróað og tengist sjávar-
útvegi. Gert er ráð fyrir að söl-
unni verði að fullu lokið í febrúar
2007 eftir að áreiðanleikakönnun
og frágangur endanlegs samnings
hefur farið fram og öll skilyrði
samningsins eru uppfyllt.
Sjávarútvegshluti Maritech seldur
Actavis hefur tilkynnt um sölu á
lyfjaverksmiðju sinni í Lier í
Noregi til norska tryggingar-
félagsins Storebrand. Félagið
greiðir sem samsvarar 900 milljón-
um króna fyrir verksmiðjuna. Á
þriðjudaginn tilkynnti félagið um
kaup á verksmiðju indverska lyfja-
fyrirtækisins Grandix Pharmac-
euticals þar sem fram fer fram-
leiðsla og þróun samheitalyfja. Er
áætlað að auka afkastagetu verk-
smiðjunnar þar úr 700 milljónum
taflna í fjóra milljarða. Á sama
tíma var tilkynnt um opnun félags-
ins á nýrri þróunareiningu á Ind-
landi sem mun sérhæfa sig í þróun
virkra lyfjaefna.
Actavis á tuttugu verksmiðjur í
tólf löndum. Breytingarnar í vik-
unni eru í samræmi við markmið
félagsins um samþættingu fram-
leiðslueininga og að styrkja fram-
legðarstig samstæðunnar. „Mark-
mið okkar fyrir þetta ár að ná
EBITDA-framlegð upp á 20 til 21
prósent. Við stefnum á að hækka
það hlutfall upp í 21 til 22 prósent á
næsta ári,“ segir Halldór Krist-
mannsson, framkvæmdastjóri
innri og ytri samskipta hjá Acta-
vis. Hann segir að til að ná þessu
markmiði verði skoðað að minnka
enn frekar framleiðslu á öðrum og
óhagkvæmari stöðum. Engar
ákvarðanir liggi þó fyrir um hvar
það verði gert.
Actavis dregur úr
framleiðslu í Evrópu
Lánshæfi Glitnis er óbreytt að mati
Standard & Poor’s sem staðfesti mat
sitt þrátt fyrir að matsfyrirtækið
hafi lækkað lánshæfiseinkunn
íslenska ríkisins.
Ástæðurnar að baki lækkuðu
mati hjá ríkinu voru teknar með í
reikninginn við endurskoðun á mati
Glitnis, að Standard & Poor’s, en við
matið styður styrk staða bankans á
heimamarkaði sem og landfræðileg
dreifing með starfsemi bankans í
Noregi og í Svíþjóð frá því í maí á
þessu ári. „Í einkunnagjöfinni er
einnig horft til jafns og stöðugs
hagnaðar af starfseminni og gæða
eigna.“
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis segir þessa afstöðu Standar
& Poor‘s mikilvæga fyrir lánakerfið
og staðfesti að Glitnir, sem sé eini
bankinn sem metinn er af S&P, sé
svo eignadreifður að mat á veikleik-
um í íslenska hagkerfinu breyti ekki
mati á fjárhagslegum styrk og láns-
hæfi bankans. „Ef að líkum lætur
mætti draga sömu ályktun um aðra
íslenska viðskiptabanka.“
Glitnir heldur einkunn
Peningaskápurinn ...