Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 65

Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 65
Nissarnir eru afar vinsæl fyrir- bæri í skandinavískri þjóðtrú og tengjast sérstaklega jólunum. Þeir eru eins konar húsálfar sem halda aðallega til í útihúsum á bænda- býlum og gæta búsins sé vel við þá gert. Þess vegna þarf til dæmis alltaf að gefa þeim jólagraut á jól- unum. Nissinn með jólagrautinn sinn er orðinn eitt af einkennis- táknum jólanna á Norðurlöndum og birtist þannig í ýmsum mynd- um á jólakortum og jólaskrauti. Oftast er nissinn í mannsmynd: Lítill, ófríður, gráklæddur með rauða topphúfu og sítt skegg. Orðið ‘nissi’ er ungt orð í sænsku og norsku og er gæluorð dregið af nafni jólasveinsins, heilags Nik- ulásar. Fyrirbærið sjálft á sér samt mun eldri rætur í þjóð- trúnni. Ýmis önnur nöfn eru notuð yfir þennan húsálf í norsku svo sem: Gardsvorden, gardsbonden, tunvorden, tunkallen og tomten. Svipuð nöfn eru til í sænsku. Meginverkefni nissanna er að halda öllu í röð og reglu á bænda- býlunum, sérstaklega í gripahús- um og úti við. Þeir eru reglufastir og strangir og þola ekki óreglu af neinu tagi. Vinnuaðstaða þeirra er gjarnan í fjósinu en rúmbæli eiga þeir inni í bæ. Í það getur enginn lagst nema hljóta verra af. Í Noregi og Svíþjóð eru til marg- ar sagnir um hvernig þeim hefn- ist fyrir sem gleyma að gefa nis- sanum jólagraut eða borða hann sjálfir. Nissarnir eiga sér rætur í þeirri trú að sá sem upphaflega byggði býlið og gjarnan er heygður í bæj- arlandinu sé enn á stjái; hann vaki yfir býlinu og sé annt um velferð þess. Eins og nissunum voru haug- búum líka gefnar gjafir á jólunum eða öðrum árstímum, til dæmis jólagrautur eða jólaöl. Nissarnir eins og þeir birtast á hinum Norðurlöndunum eru ekki til í íslenskri þjótrú. Hér eru þó til sagnir um að býlum fylgi land- námsmenn eða fyrri ábúendur, sömuleiðis að sérstakir staðir séu fornmannagrafir eða haugar og við þeim megi ekki hrófla. Sú trú hefur stundum fylgt slíkum stöð- um að í þeim sé fólgið fé eða önnur verðmæti. Reyni menn hins vegar að nálgast þetta góss elti óhappið þá eða þeim missýndist, svo sem að bæjarhús standi í ljósum logum. Til er líka í íslenskum þjóðsögum að huldufólki sé færð- ur matur, til dæmis á jólunum. Rétt er að taka fram að íslensku jólasveinarnir eru af öðru sauða- húsi en skandinavísku nissarnir. Í seinni tíð hafa þeir þó allir starfað á sama vettvangi ásamt heilögum Nikulási, og margt af þessari gömlu þjóðtrú hefur runnið saman við nýrri jólasiði. Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur Í jólalaginu ‘Jólasveinar ganga um gólf’, hvort stend ég upp á hól eða kannan upp á stól? Þessi vísa birtist fyrst í seinna bindi af Þjóðsögum Jóns Árna- sonar árið 1864: Upp á stól stendur mín kanna; níu nóttum fyrir jól, þá kem ég til manna. Stóllinn sem kannan stendur á heitir könnustóll og var þekkt húsgagn á heimilum heldri manna á miðöldum. Á honum stóðu ýmis ílát með vínföngum. Vísan virðist vera úr samnorrænu danskvæði og á að líkindum ekkert skylt við jólasveina. Vísurnar um jóla- sveinana sem ganga um gólf ann- ars vegar og könnuna hins vegar, standa heldur aldrei saman í handritum. Árið 1949 gáfu Friðrik Bjarnason og Páll Halldórsson út Nýtt söngvasafn handa skólum og heimilum, en í því birti Friðrik lag sitt við vísurnar tvær. Þær höfðu ekki verið tengdar saman áður, en lagið og vísurnar urðu brátt mjög vinsæl og hafa valdið því að nú telja flestir að vísurnar hafi átt samleið frá alda öðli. Kringum 1990 var farið að kenna börnum í sumum leikskólum upp- haf seinni vísunnar með þessu afbrigði: Upp á hól stend ég og kanna. Þessi texti á sér enga forsendu. Auk þess er það hugsanavilla að einhver standi upp á hól og kanni, án þess að tilgreina hvað það sé sem kannað er. Enginn vill nú gangast við að eiga upptökin að þessari útgáfu vísunnar. Hún hefur samt illu heilli komist á geisladisk með söng hins ágæta barnakórs Kársnesskóla og gerir það líklega erfiðara um vik að kveða villuna niður. Árni Björnsson,dr. phil. í menningarsögu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.