Fréttablaðið - 29.12.2006, Side 35
Guðsmenn gera líka mistök í
fjármálunum. Því fékk Guðni
Már Harðarson prestur að
kynnast er hann fjárfesti í
hlutabréfum í Stoke.
Þegar Íslendingar keyptu Stoke
greip um sig knattspyrnuæði á
Íslandi. Enska deildin fylltist af
Íslendingum og við eignuðumst
fyrsta þjálfarann okkar. Guðni
var einn af þeim sem heilluðust
og lét 100.000 krónur í hlutabréf í
Stoke. „Stuttu eftir að ég keypti
hlutinn var ég í mat hjá tengda-
foreldrum mínum. Tengdafaðir
minn, sem er mikill fjármálamóg-
úll og klár í þeim efnum, heyrði
frétt í útvarpinu um Stoke og
sagði að kaup í klúbbnum væru
eins og fleygja peningum út um
glugga,“ segir Guðni, sem þorði
ekki fyrir neina muni að segja frá
kaupunum. „Ég þagði í marga
mánuði þangað til ég loksins þorði
að segja frá. Tengdapabbi reynd-
ist sannspár en gengi bréfanna
hefur lækkað um 60 prósent. Það
var ekki lítið sem mér var strítt á
þessu.“
Hlutabréfin í Stoke eru ekki
einu slæmu kaupin sem Guðni
hefur gert. „Ég var á bókamark-
aði í Perlunni og sá þar Fjögur
fræknu bækurnar. Fortíðarþráin
kviknaði og ég keypti mér allar
bækurnar á einhvern átta þúsund
kall,“ segir Guðni. „Konan mín
sagði við mig að þetta væri bara
nostalgíukast og ég ætti aldrei
eftir að lesa þær. Ég var nú á öðru
máli og fór glaður heim með bæk-
urnar. Ég held ég hafi lesið fjórar
blaðsíður og svo ekki nennt að
lesa meira.“
Hvar bækurnar eru núna er
einfalt mál. Þær eru ekki hillu-
stáss og ekki einu sinni í geymslu.
Þær eru í sumarbústað foreldra
Guðna þar sem hann er enn ólík-
legri til að lesa þær. „Sumt er
bara betra í minningunni og á að
fá að lifa þar,“ segir Guðni hlæj-
andi.
Bestu kaup Guðna eru í formi
farmiða sem skilaði honum til Taí-
lands. „Það var ótrúleg ferð sem
víkkaði sjóndeildarhringinn mikið
og gerði mann mun víðsýnni,“
segir Guðni. „Miðinn var kannski
dýr en þarna var ég í einn og hálf-
an mánuð og eyddi svipuðu og á
einni viku í London. Ég mæli með
því að fólk skoði þennan kost
þegar það ætlar að ferðast.“
Keypti hlutafé í Stoke
Útsala er á jólaskreytingum í
Blómavali.
Blómaval, stórmarkaður með allt
fyrir blóma- og garðáhugafólk,
boðar nú sextíu prósenta afslátt af
allri jólavöru. Nú er því rétti tíminn
til að gera góð kaup fyrir næstu
jólavertíð.
Þá eru túlipanar á tilboði í Blóma-
vali þessa dagana en tíu stykki
kosta 990 krónur. Getur verið fal-
legt að skreyta hús sín með lifandi
blómum á myrkasta tíma ársins.
Blómaval er með verslanir í
Skútuvogi, Grafarholti, Kringlu,
Smáralind, Akureyri, Selfossi og
Keflavík.
Jólavaran á slikk
Útsalan er hafin í Tekk Comp-
any. Veittur verður allt að sex-
tíu prósenta afsláttur af verði.
Sófar, borð, stólar og skápar eru
meðal þess sem finna má á veru-
legum afslætti í Tekk Company, en
útsalan hófst þar í gær. Allt að
sextíu prósenta afsláttur verður
veittur af sófum, fimmtíu prósent
af hægindastólum og fjörutíu pró-
sent af borðum og stólum.
Þá verður öll jólavara seld með
fimmtíu prósenta afslætti og
fjörutíu prósentum verður slegið
af verði annarrar smávöru á borð
við handklæði og rúmteppi. Tíu
prósenta afsláttur verður veittur
af vöru í versluninni sem ekki fer
á útsölu.
Opið verður frá tíu til sex á
laugardag og níu til tólf á gamlárs-
dag.
Útsalan hafin í
Tekk Company