Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 36
Siðir um áramót geta verið skondnir og
skemmtilegir.
Í Cornwall á Englandi er siður að setja kol
og silfurpeninga fyrir framan útidyrnar á
nýársnótt. Það á að tryggja íbúum hússins
yl og næga peninga út árið.
Í Þýskalandi nota menn lauka til að spá fyrir
um veðrið á nýja árinu. Sex laukar eru skorn-
ir í tvennt og salti dreift í sárin. Hver helm-
ingur stendur fyrir einn mánuð ársins. Eftir
nokkrar klukkustundir eru laukarnir skoð-
aðir. Ef saltið hefur horfið inn í laukinn þýðir
það vætusama mánuði. Ef saltið er enn utan
á lauknum þýðir það hita og þurrviðri.
Í Hollandi brennir fólk jólatrén á
brennum og skýtur upp flugeldum
til að reka anda síðasta árs í
burtu.
Á nýársdag í Grikklandi er borin á
borð sérstök kaka sem heitir Vassil-
opitta. Inni í kökunni er silfur- eða gull-
peningur. Kökunni er dreift eftir strangri
röð og sá sem finnur peninginn mun eiga
gæfuríkt ár.
Á Spáni er siður að borða tólf vínber á mið-
nætti á gamlárskvöld, eitt í hvert skipti sem
klukkan slær. Fæstum tekst að koma niður
tólf vínberjum á tólf klukkuslögum, en sið-
urinn vekur kátínu þar sem fólk óskar hvert
öðru gleðilegs árs með fullan munn af vín-
berjum.
Í Austurríki borða menn svínakjöt á nýárs-
kvöld, vegna þess að svín eru svo dugleg að
róta sér áfram. Sælgæti er líka borið fram í
formi grísa og svína. Humar er ekki borðað-
ur á gamlárskvöld, en neysla hans boðar
afturför á árinu.
Í Brasilíu er því trúað að linsubaunajurtin
tákni ríkidæmi og linsubaunasúpa er borð-
uð á nýársdag eða linsubaunir og hrísgrjón.
Á Filippseyjum hoppa börnin tíu sinn-
um meðan klukkan slær tólf, en
það þýðir að þau muni stækka
meira á nýja árinu.
Í Rúmeníu trúa menn að
dýrin fái mál um mið-
nætti, en sömuleiðs að
það boði ógæfu að heyra
þau tala.
Á nýársdag í Egyptalandi
mega allir klæðast skærum
fötum, jafnvel stúlkurnar sem
klæðast yfirleitt svörtu. Börnum
er einnig gefið nammi en strák-
arnir fá nammi í laginu eins og
strákur á hestbaki en stelpur fá
nammi í laginu eins og stelpa í
kjól.
Í Japan standa nýárshátíðahöld í þrjá daga.
Fólk klæðist nýjum fötum og hús eru skreytt
með greni sem boðar æskuljóma og styrk,
bambus sem boðar heppni og plómur sem
boða visku og kjark. Á gamlárskvöld fá allir
tækifæri til að hringja bjöllu í búddamu-
sterinu þangað til hringt hefur verið 108
sinnum. Þeir sem ná að hringja verða ham-
ingjusamir á árinu. Þá hafa Japanar fyrir
sið að hlæja þegar klukkan slær tólf því það
boðar mikla heppni.
Á Srí Lanka er haldið upp á nýja árið 13. eða
14. apríl því þar er notað Hindú-dagatal. Á
gamlárskvöld er enginn matur eldaður né
kveikt á ljósum, flugeldum eða brennum
heldur notar fólk tímann í að heimsækja
vini og ættingja.
Á gamlársdag í Víetnam er planta, eins og
bambus-plantan, gróðursett í garði fjöl-
skyldna. Fjölskyldur skreyta síðan plönt-
una með bjöllum, blómum og rauðum borð-
um. Skreytingarnar eru ekki fyrir augað
heldur til að vernda fjölskylduna gegn illum
öndum.
Í Ástralíu er nýársdagur dagur til að gera
eitthvað skemmtilegt úti eins og fara í laut-
arferð eða útilegu á ströndinni eða fara á
brimbretti.
Í Mexíkó eru konur í rauðum nærfötum á
áramótum, en það eykur líkurnar á að þær
finni ástina á nýju ári.
Í Venesúela notar fólk hins vegar gul nær-
för á gamlárskvöld en það boðar gæfu á
nýja árinu.
Á Ítalíu er mistilteinn hengdur á útidyrnar,
en það boðar gæfu á nýju ári.
Vínberjaát, laukar
og rauð nærföt